Fréttablaðið - 10.09.2012, Page 4

Fréttablaðið - 10.09.2012, Page 4
10. september 2012 MÁNUDAGUR4 ÞJÓÐKIRKJAN Séra Steinunn Arn- þrúður Björnsdóttir, upplýsinga- fulltrúi á Biskupsstofu, hefur verið valin prestur í Hjallapresta- kalli. Það er val- nefnd presta- kallsins sem leggur til að Steinunn Arn- þrúður verði ráðin. Embætt- ið veitist frá 1. september. Frestur til að sækja um rann út þann 8. ágúst. Átta sóttu um en einn dró umsókn- ina til baka. Biskup skipar umsækjandann sem valnefndin nær samstöðu um, að því gefnu að hann telji valið reist á lögmætum sjónarmiðum. - sh GENGIÐ 07.09.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 216,5843 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,76 123,34 195,60 196,56 155,66 156,54 20,887 21,009 21,077 21,201 18,304 18,412 1,5535 1,5625 187,30 188,42 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Lyfjaval.is • sími 577 1160 15% afsláttur STEINUNN ARNÞRÚÐUR BJÖRNSDÓTTIR Átta umsækjendur um brauð: Steinunn valin í Hjallaprestakall MATVÆLAIÐNAÐUR Aðkallandi er að sett verði löggjöf um vernd land- fræðilegra merkinga á Íslandi er álit Samtaka iðnaðarins og sam- taka í mjólkur- og kjötvinnslu- iðnaði. Í atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytinu stendur til að skipa nefnd á næstunni til að undirbúa slíka löggjöf. Einar Karl Haraldsson, höf- undur nýlegrar skýrslu um vernd vöruheita, segir hættu á að slík heiti verði tekin upp af öðrum. Tók hann skyr sem dæmi. Þá geti íslenskir framleiðendur ekki náð fram aðgreiningu og erfiðara verður að auka verðmæti vör- unnar. Innlend löggjöf um vernd vöruheita er forsenda þess að semja um vernd íslenskra vöru- heita á erlendum mörkuðum, er hans mat. - shá Nefnd skipuð næstu daga: Vilja lög til að verja vöruheiti ÍSLENSKT Skyr er dæmi um vöruheiti sem ástæða þykir að vernda með lögum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SAMFÉLAGSMÁL Tveir til þrír ein- staklingar svipta sig lífi í hverjum mánuði á Íslandi, samkvæmt upp- lýsingum frá Embætti landlæknis og hafa 33 til 37 einstaklingar fall- ið fyrir eigin hendi árlega undan- farin ár. Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna er í dag. Hér á landi er dagurinn einnig helgaður minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Að þessu sinni verður athygli vakin á sjálfsvígum og forvörnum gegn þeim með ýmsum hætti; mál- þing um sjálfsvíg og forvarnir í safnaðarheimili Dómkirkjunnar við Tjörnina er klukkan þrjú til fimm, minningarstund í Dóm- kirkjunni klukkan átta og kerta- fleyting á Tjörninni að henni lok- inni. - shá Dagur sjálfsvígsforvarna í dag: 33 til 37 sjálfs- víg hér árlega SJÁVARÚTVEGUR Gríðarleg magn- aukning hefur orðið í útflutningi á ferskum þorski og ýsu til Frakk- lands á fyrstu sjö mánuðum árs- ins miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í samantekt Landssambands smábátaeigenda úr gögnum Hagstofu Íslands. Aukn- ingin er 49% í þorskinum og 127% í ýsu. Frakkar kaupa langmest allra þjóða héðan af ferskum þorski eða um helmingi meira en Bretar sem eru næstir. Alls hafa tæp 40% af öllum ferskum þorski verið seld til Frakklands á fyrstu sjö mánuðum ársins á móti 35 prósentum í fyrra. Veruleg aukning er einnig á útflutningi til Belgíu, Bandaríkj- anna og Sviss sem eru í þriðja til fimmta sæti yfir helstu kaupendur okkar af ferskum þorski. Útflutn- ingsverðmæti á ferskum þorski á fyrstu sjö mánuðum þessar árs nemur 12,4 milljörðum. Fersk ýsa skilaði tæpum 3,4 milljörðum í útflutningsverðmæti á tímabilinu janúar-júlí þessa árs, sem er 648 milljónum meira en á sama tíma- bili í fyrra. Bretar kaupa langmest af ýsu héðan og var hlutfallið 46% á þessu ári. Næstmest er flutt út til Bandaríkjanna og þá til Frakka- lands. - shá Útflutningur á ferskum fiski til Frakklands vaxið mikið milli áranna 2011 og 2012: Frakkar stórtækir í fiskkaupum LÖNDUN Það eru Frakkar sem kaupa mest af Íslendingum af ferskum þorski. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VESTFIRÐIR Nýtt hvalbeinahlið var vígt við hátíðlega athöfn í skrúðgarðinum Skrúði á Þingeyri í gær. Gömlu beinin hafa verið í garðinum frá árinu 1932 og eru nú varðveitt í Náttúrugripasafni Bolungarvíkur. Nýju beinin eru úr langreyði sem var veidd árið 2009 og eru gjöf frá Hval ehf. Talið er að gömlu beinin séu af einni stærstu steypireyði sem veidd hefur verið í norðanverðu Atlantshafi og eru nýju beinin rúmum metra styttri en þau gömlu. Nýtt hvalbeinahlið í Skrúði Bein af lang- reyði notuð VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 29° 29° 28° 23° 28° 26° 22° 22° 27° 21° 25° 24° 30° 19° 27° 21° 19°Á MORGUN 5-10 m/s, hvassara austan til. MIÐVIKUDAGUR Hvessir og þykknar upp SV-til síðdegis. 5 5 3 4 2 5 3 6 4 7 0 13 14 13 16 14 18 16 22 11 18 16 9 6 4 4 5 9 7 6 7 6 HVASST! Í dag gengur kröpp lægð yfi r landið og það verður töluvert hvasst, einkum austanlands og sunnan Vatna- jökuls. Lægir smám saman í kvöld og nótt, fyrst NV-til en áfram verður hvasst SA- og A-lands á morgun. Kólnar heldur í veðri. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður Þjófar slógust við verði Öryggisverðir í verslun við Skógar- lind í Kópavogi lentu skömmu eftir hádegi í gær í handalögmálum við mann sem talinn er hafa ætlað að stela rafmagnsvespu úr versluninni ásamt félaga sínum. Mennirnir tveir voru ölvaðir og voru vistaðir í fanga- geymslu fram eftir degi. LÖGREGLUFRÉTTIR LÖGREGLUMÁL Átján ára íslenskur piltur, Kristján Hinrik Þórsson, var skotinn til bana á bílastæði fyrir utan verslun í bandarísku borginni Tulsa í Oklahoma aðfaranótt laug- ardags. Tildrög skotárásarinnar, sem varð klukkan hálftvö að nóttu, eru óljós. Að því er haft er eftir lög- reglu í bandarískum fjölmiðlum sat Kristján Hinrik – kallaður Hin- rik – í Chrysler Concorde-bíl með öðrum manni fyrir utan verslunina QuikTrip þegar árásarmaðurinn kom aðvífandi, lenti í snörpu rifr- ildi við ökumanninn, dró síðan upp skammbyssu og hleypti af minnst níu skotum inn í bílinn. Fram kom í fjölmiðlum vestra í gær að árásarmaðurinn hefði hald- ið því fram að ökumaðurinn hefði nánast ekið sig niður. Hann stökk í kjölfarið á flótta. Bíll tvímenning- anna rann síðan yfir á bílastæði við nálæga kirkju og staðnæmdist á tré. Hinrik og félagi hans, hinn 37 ára gamli John White, voru fluttir í snatri á sjúkrahús þar sem Hinrik var úrskurðaður látinn. White ligg- ur enn helsærður á spítalanum. Ekk- ert hefur enn komið fram um það hvernig Hinrik og White tengjast. Árásarmannsins, blökkumanns með hökutopp sem hafði rauða der- húfu á höfði við árásina, var enn leitað í gærkvöldi. Lögregla vann að því að fara yfir upptökur úr öryggis myndavélum á staðnum. Haft var eftir Dave Walker, yfir- manni morðdeildar lögreglunnar í Tulsa, í fréttum RÚV í gær að svo virðist sem Hinrik hefði aðeins verið saklaus strákur á röngum stað. Hann hefur svo til alla tíð búið í Tulsa ásamt móður sinni. Bílastæðið við QuikTrip versl- unina var vettvangur áþekkrar árásar í ágúst í fyrra. Þá voru tveir menn skotnir til bana í bíl sínum og bíða tveir menn dóms fyrir morð vegna þess. stigur@frettabladid.is Morðingja íslensks pilts leitað í Tulsa Átján ára Íslendingur skotinn til bana á bílastæði við verslun í bandarísku borg- inni Tulsa. Virðist hafa verið saklaus strákur á röngum stað. Félagi hans liggur milli heims og helju á spítala. Morðinginn flúði og var ófundinn í gærkvöldi. MIKILL VIÐBÚNAÐUR Málið hefur vakið mikla athygli í Tulsa og verið meðal helstu fréttamála þar um helgina. LEITA BANAMANNSINS White reyndi að aka bílnum í burtu en komst ekki langt og bíllinn rann á tré í grenndinni. MYND/NEWSON6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.