Fréttablaðið - 10.09.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.09.2012, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGHljóðfæri MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 20122 Mörgum er minnisstætt atriðið í tónlistarkvik-myndinni Shine A Light eftir Martin Scorsese þegar Keith Richards rífur af sér svarta Guild GSR Starfire IV-gítarinn sinn í lok lagsins Champagne And Reefers, réttir hann Buddy Guy og segir að hann megi eiga hann. Buddy rekur í rogastans, enda gítarinn einkar glæsilegur og verðmætur eftir því. Um eiginlegt verðmæti er erfitt að fullyrða, þar sem gítarar af nákvæmlega þessari gerð eru ekki framleiddir lengur. Þótt gjöfin hafi verið vegleg munaði hljómsveitarstjórann í The Rolling Stones lítið um hana. Fyrir það fyrsta er hann vellauðugur eftir hálfa öld í aðalliðinu í efstu deild rokksins. Svo sá heldur ekki högg á vatni í gítarsafninu, því að Keith Richards á að eigin sögn um það bil þrjú þúsund gítara. Fyrir nokkrum árum var haft eftir honum í blaða- viðtali að til greina kæmi að opna safn með helstu gripunum. Hann kvaðst ekkert hafa við alla þessa gítara að gera. Hann hefði aðeins tvær hendur og hann gæti hrein- lega ekki notað þá alla. Einnig kvaðst Keith hafa íhugað þann möguleika að gefa gítarana. Hann hefði hvort sem er þegið þá flesta að gjöf. Sextíu ára gítar Keith Richards segist almennt nota um það bil tíu gítara þegar The Rolling Stones eru á hljóm- leikaferð. Flestir eru þeir fram- leiddir hjá Fender- og Gibson- verksmiðjunum. Fender-gítar- arnir eru sumir komnir vel til ára sinna, til dæmis einn Telecaster, sem verður 60 ára á næsta ári. Gítarnum gaf Keith viðurnefnið Micawber eftir persónu í skáld- sögunni David Copperfield eftir Charles Dickens. Í hljóðfærinu eru einungis fimm strengir og það notar gítarhetjan einkum til að leika lögin Brown Sugar og Honky Tonk Woman. Að minnsta kosti tveir aldraðir fimm strengja Tele- caster-gítarar eru til vara í hverri hljómleikaferð. Annar var smíð- aður 1954 og hinn 1967. Í báðum eru einungis fimm strengir. Sá fjórði dúkkaði reyndar upp árið 2005 eftir að hafa verið í hvíld frá árinu 1986. Sá var smíðaður árið 1975 og var einmitt fyrst notaður í hljómleikaferð Rolling Stones um Norður-Ameríku það ár. Lifir í gömlum glæðum Svo kann að vera að Keith Richards þurfi að dusta rykið af þessum öldungum og fleiri gæða- gripum síðar á þessu ári. The Roll- ing Stones fagnaði hálfrar aldar af- mæli í júlí síðastliðnum. Þrálát- ur orðrómur hefur verið á kreiki um að hljómsveitin hyggist efna til hljómleika í tilefni tímamót- anna. Orðrómurinn hefur þó yfir- leitt verið borinn til baka. Keith Richards greindi þó frá því í blaða- viðtali fyrir nokkru að hljómsveit- in hefði verið við æfingar og haft var eftir Mick Jagger að ekki væri loku fyrir það skotið að hljóm- sveitin léki saman opinberlega fyrir árslok. Keith Richards á gítara í þúsundatali Von er á enn einni safnplötunni með tónlist The Rolling Stones. Sú heitir GRRR! og kemur út 12. nóvember. Á henni verða tvö ný lög, Gloom And Doom og One Last Shot. Vísir menn fullyrða að bæði hafi lögin verið hljóðrituð í París í síðasta mánuði. Þessi gítar er sextíu ára gamall.Keith Richards notar um það bil tíu gítara á hljómleikaferðum. MYND/AFP Focal býður upp á þrjár vöru-línur í stúdíóhátölurum, CMS, Solo og Twin og svo það nýjasta, SM9, sem er f lagg- skipið. „Xavier Metzger frá Focal verður í Hljóðfærahúsinu Tóna- búðinni Síðumúla 20 með par af flaggskipinu þeirra SM9 á morg- un, þriðjudag. Þetta er hluti af Evrópukynningu á þessum hátöl- urum og ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst til að hlusta á svona dýrgripi,“ segir Sindri Már Heimis- son, framkvæmdastjóri Hljóðfæra- hússins Tónabúðarinnar. Sindri segir að allir þeir sem eru í hljóðvinnslu ættu að taka þessu tækifæri fagnandi og kynna sér Focal sem hafa fengið mikið lof gagnrýnenda víða um heim að undanförnu. „Það verður einn- ig hægt að hlusta á CMS- og Solo 6-hátalarana hjá okkur á morg- un. Við tókum forskot á sæluna og stilltum SM9 upp í hljóðveri okkar og það er ekki vafi í okkar huga að hér er um að ræða nýtt viðmið í gæðum á slíkum hátölurum. Þess- ir hátalarar eru reyndar ekki gef- ins en líklegt verð á parinu er níu hundruð þúsund til ein milljón króna. Slíkir hátalarar hafa einn- ig verið keyptir í heimahús af þeim sem gera miklar kröfur og vilja besta mögulegan hljóm er hlust- að er á góðar hljóðupptök- ur.“ Kynningin í Hljóðfæra- húsinu Tóna- búðinni verð- ur á morgun, 11. septem- ber k luk kan 18 og stendur til klukkan 20. Einnig verða Solo 6 og CMS 50 frá Focal sýndir. Hlustað á dýrgripi Hljóðfærahúsið og Tónabúðin tóku nýverið við umboði fyrir hina heimsþekktu Focal stúdíó hátalara. Focal er franskt fyrirtæki sem framleiðir einnig hágæða hátalara fyrir heimili, bíla og fleira. Hátalari Focal sm9. Gríðarlegt úrval – Topp vörumerki í stærstu hljóðfæraverslun landsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.