Fréttablaðið - 10.09.2012, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 10. september 2012 15
Við vorum á Spáni fjölskyld-an í sumar og meðal þess
sem var svo ánægjulegt að upp-
lifa var sá siður ökumanna að
staðnæmast nær undantekn-
ingarlaust fyrir gangandi veg-
farendum. Þetta er víst mikið
gert í útlöndum, heyrir maður.
Annað sem var beinlínis hríf-
andi að fylgjast með í fari hinna
erlendu ökumanna var sá siður
þeirra að gefa stefnuljós þegar
þeir hugðust beygja, svo að
aðrir vegfarendur gætu gert
ráðstafanir í samræmi við það.
Svona er þetta víst í útlöndum.
Þar er ekki farið með áform
um væntanlega beygju sem við-
kvæmar trúnaðarupplýsingar
sem heyra undir persónuvernd
… Eins og hjá sumum.
Við þekkjum öll staðlað-
ar hugmyndir um ökulag til-
greindra þjóða og hvernig það
endurspeglar eitthvað sem
kennt er við þjóðarkarakter.
Ítalirnir með allt handapatið
að veifa hver öðrum út um bíl-
glugga; Englendingar öfugum
megin í sinni sérviskuræktun
og heimsveldisórum; Frakkar
með óskiljanleg hringtorg; Ind-
verjar brunandi fyrir blind-
hornin með ramma forlaga-
hyggju að leiðarljósi; Þjóðverjar
– vrúmm! – áfram á átóbönum
og vei þeim sem drollar þar á
framúrakrein – þar líðst engum
að hugsa: ég hef ákveðið að vera
hér á vinstri akrein og ég ætla
að vera þar eins og mér hentar
og aka eins og mér sýnist og ég
tel mig hafa fullt leyfi til ...
Eins og hjá sumum. Því þar
er auðvitað íslenski ökubúrinn
lifandi kominn, sem áskilur sér
fullan rétt til að þvælast fyrir
öðrum sé hann í skapi til þess.
Sem hann er ansi oft. Við erum
áreiðanlega vænsta fólk hér á
Íslandi en sé sú kenning rétt að
ökulag endurspegli þjóðarsál er
óneitanlega viss ástæða til að
hafa áhyggjur …
„Helvíti – það eru hinir“
Íslenskir ökumenn eru ekki
glaðlegt fólk á vondum degi –
og oft eru vondir dagar: það
er rigning, skyggni ekkert og
það er verið að rífast um lána-
vísitöluútreikninga í útvarpinu;
miðstöðin á fullu til að ná móð-
unni af rúðunni og þrátt fyrir
lækkandi bensínverð á alþjóða-
mörkuðum hefur samráðsnefnd
olíufélaganna tilkynnt að staða
innkaupajöfnunarreiknings sé
slík að verðið á bensíni þurfi
að hækka um þrettán krónur
frá og með gærdeginum. Svona
dagar, og stundum er stemning-
in drungaleg á stóru umferðar-
götunum.
Það hvarflar stundum að
manni að íslenskir bílstjórar
líti á aðra ökumenn eins og hina
keppendurna í Hungurleikun-
um. Þeir sjá þá að minnsta kosti
ekki sem meðborgara á sömu
leið heldur óvini sem þarf að sjá
við og snúa á.
Á fjölförnum umferðargötum
er loftið lævi blandið. Hver og
einn virðist staðráðinn í að láta
ekki hlut sinn fyrir neinum.
Vera á undan að næstu ljósum.
Ná leiftursnöggt að smeygja
sér inn í bilið sem kann að vera
milli tveggja bíla þar sem bíl-
stjórarnir eru þeir afglapar
að hafa bíllengd á milli sín;
auka hraðann geri einhver
sig líklegan til að skipta um
akrein og halda honum þannig
á þeirri akrein sem hann vill
ekki vera á. Allt virðist snúast
um að sigra. Þetta er keppni.
Og í hverju skyldi vera keppt?
Það veit enginn. Og verðlaun-
in? Engin nema ánægjan af því
að hafa náð að gera öðrum lífið
svolítið leitt.
Umfram allt: Sú aðgerð að
gefa stefnuljós er veikleika-
merki. Þar með vita hinir kepp-
endurnir um áform þín og
standa betur að vígi en ella.
Látirðu ógert að gefa stefnuljós
en beygir svo bara allt í einu
hefur þér þó að minnsta kosti
tekist að tefja þann sem beið
átekta og þar með hefurðu náð
dýrmætu frumkvæði. Í hverju?
Keppninni. Hvaða keppni? Nú
Keppninni.
Og erum við þá svona? Það
mætti ætla það. En svo hittir
maður þetta sama fólk einhvers
staðar þar sem það þarf ekki að
vera í Keppninni og þá reynist
þetta vænsta fólk fullt af tillits-
semi og elskulegheitum og horf-
ir alls ekki á mann eins og það
telji mann sitja á svikráðum við
sig – öðru nær.
Ökuleiði
Eiginlega er önnur skýring
nærtækari á þessu útbreidda
fúllyndi íslenskra ökumanna
í umferðinni og hún er sú að
Íslendingum leiðist almennt
að aka bíl. Um leið og þeir séu
komnir undir stýri geti þeir
naumast á heilum sér tekið fyrr
en þeir eru lausir við þetta og
komnir heim á Facebook. Eina
fólkið – fyrir utan olíufélögin
– sem hefur einhverja ánægju
af samgöngumálum hér á landi
eru listrænu umferðarverk-
fræðingarnir sem hér hannar
hver sína útfærslu af umferð-
arslaufu og fær þar með útrás
fyrir listrænan metnað sinn.
Eitt af því versta sem ára-
löng stjórn fulltrúa bílasala
og olíufélaga á Reykjavík og
nágrannabyggðum hefur haft
í för með sér er hinn nánast
algjöri skortur á almennings-
samgöngum sem hér ríkir – sú
gjörtæka fyrirlitning á slíkum
ferðamáta sem ráðið hefur för
um árabil þar sem litið er á það
að ferðast með strætó sem jafn-
gildi þess að fara á fátækra-
hæli.
Og meðal annarra orða: Hve-
nær fáum við lestirnar?
AF NETINU
Greið leið Sigmundar
Miðað við stöðu skoðanakannana
um þessar mundir eru vaxandi
líkur á að Framsóknarflokkurinn
verði í lykilstöðu, þegar kemur að
myndun ríkisstjórnar næsta vor.
Það þarf eitthvað nýtt að gerast hjá
nýju framboðunum til þess að þau
nái sér verulega á strik og heldur
ólíklegt að það eigi eftir að gerast.
Fái Sjálfstæðisflokkurinn viðun-
andi kosningu þarf hann engu að
síður á samstarfsaðila að halda til
þess að tryggja sér aðild að nýrri
ríkisstjórn. Framsóknarflokkurinn er
að óbreyttu eini aðilinn, sem þar
getur komið til greina. [...]
En svo er hitt að í slíku samstarfi
mundi Sigmundur Davíð eiga
greiða leið í forsætisráðuneytið.
evropuvaktin.is
Styrmir Gunnarsson
Ekki eftir næstu kosningar
Framsóknarflokkurinn gerði
áhugaverða tilraun fyrir rúmum
þremur árum þegar hann kaus sér
formann sem hafði aldrei komið
nálægt stjórnmálum fyrr. Það var
virðingarvert. Flokkurinn svaraði
með því harðri (og stundum afar
óvæginni) gagnrýni sem hann
hafði mátt þola í nokkur ár.
Reynslan af þessari tilraun er
hins vegar sú, að stökkið var of
stórt. Framsóknarflokkurinn hefur
goldið þess í stjórnarandstöðu að
vera með nýliða sem formann.
Hann hefur líka misst fólk fyrir
borð og þingflokkurinn er enn
þverklofinn í stórum málum.
Það getur vel gerst að Sigmund-
ur Davíð verði ráðherra í næstu
ríkisstjórn. Það er heldur ekki úti-
lokað að hann verði einhvern tíma
forsætisráðherra. En það verður
ekki eftir næstu kosningar.
blog.pressan.is/andresjons
Andrés Jónsson
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í DAG
FÁÐU GÓÐ RÁÐ VIÐ OFNÆMI
NEUTRAL.IS
Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi
mælir með vörum frá NeutralDönsku astma- og ofnæmissamtökin
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
N
AT
6
06
55
0
8.
20
12
Hungurleikarnir á Miklubraut
Sú aðgerð að gefa stefnuljós er veikleika-
merki. Þar með vita hinir keppendurnir
um áform þín og standa betur að vígi en
ella.