Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2012, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 10.09.2012, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 10. september 2012 15 Við vorum á Spáni fjölskyld-an í sumar og meðal þess sem var svo ánægjulegt að upp- lifa var sá siður ökumanna að staðnæmast nær undantekn- ingarlaust fyrir gangandi veg- farendum. Þetta er víst mikið gert í útlöndum, heyrir maður. Annað sem var beinlínis hríf- andi að fylgjast með í fari hinna erlendu ökumanna var sá siður þeirra að gefa stefnuljós þegar þeir hugðust beygja, svo að aðrir vegfarendur gætu gert ráðstafanir í samræmi við það. Svona er þetta víst í útlöndum. Þar er ekki farið með áform um væntanlega beygju sem við- kvæmar trúnaðarupplýsingar sem heyra undir persónuvernd … Eins og hjá sumum. Við þekkjum öll staðlað- ar hugmyndir um ökulag til- greindra þjóða og hvernig það endurspeglar eitthvað sem kennt er við þjóðarkarakter. Ítalirnir með allt handapatið að veifa hver öðrum út um bíl- glugga; Englendingar öfugum megin í sinni sérviskuræktun og heimsveldisórum; Frakkar með óskiljanleg hringtorg; Ind- verjar brunandi fyrir blind- hornin með ramma forlaga- hyggju að leiðarljósi; Þjóðverjar – vrúmm! – áfram á átóbönum og vei þeim sem drollar þar á framúrakrein – þar líðst engum að hugsa: ég hef ákveðið að vera hér á vinstri akrein og ég ætla að vera þar eins og mér hentar og aka eins og mér sýnist og ég tel mig hafa fullt leyfi til ... Eins og hjá sumum. Því þar er auðvitað íslenski ökubúrinn lifandi kominn, sem áskilur sér fullan rétt til að þvælast fyrir öðrum sé hann í skapi til þess. Sem hann er ansi oft. Við erum áreiðanlega vænsta fólk hér á Íslandi en sé sú kenning rétt að ökulag endurspegli þjóðarsál er óneitanlega viss ástæða til að hafa áhyggjur … „Helvíti – það eru hinir“ Íslenskir ökumenn eru ekki glaðlegt fólk á vondum degi – og oft eru vondir dagar: það er rigning, skyggni ekkert og það er verið að rífast um lána- vísitöluútreikninga í útvarpinu; miðstöðin á fullu til að ná móð- unni af rúðunni og þrátt fyrir lækkandi bensínverð á alþjóða- mörkuðum hefur samráðsnefnd olíufélaganna tilkynnt að staða innkaupajöfnunarreiknings sé slík að verðið á bensíni þurfi að hækka um þrettán krónur frá og með gærdeginum. Svona dagar, og stundum er stemning- in drungaleg á stóru umferðar- götunum. Það hvarflar stundum að manni að íslenskir bílstjórar líti á aðra ökumenn eins og hina keppendurna í Hungurleikun- um. Þeir sjá þá að minnsta kosti ekki sem meðborgara á sömu leið heldur óvini sem þarf að sjá við og snúa á. Á fjölförnum umferðargötum er loftið lævi blandið. Hver og einn virðist staðráðinn í að láta ekki hlut sinn fyrir neinum. Vera á undan að næstu ljósum. Ná leiftursnöggt að smeygja sér inn í bilið sem kann að vera milli tveggja bíla þar sem bíl- stjórarnir eru þeir afglapar að hafa bíllengd á milli sín; auka hraðann geri einhver sig líklegan til að skipta um akrein og halda honum þannig á þeirri akrein sem hann vill ekki vera á. Allt virðist snúast um að sigra. Þetta er keppni. Og í hverju skyldi vera keppt? Það veit enginn. Og verðlaun- in? Engin nema ánægjan af því að hafa náð að gera öðrum lífið svolítið leitt. Umfram allt: Sú aðgerð að gefa stefnuljós er veikleika- merki. Þar með vita hinir kepp- endurnir um áform þín og standa betur að vígi en ella. Látirðu ógert að gefa stefnuljós en beygir svo bara allt í einu hefur þér þó að minnsta kosti tekist að tefja þann sem beið átekta og þar með hefurðu náð dýrmætu frumkvæði. Í hverju? Keppninni. Hvaða keppni? Nú Keppninni. Og erum við þá svona? Það mætti ætla það. En svo hittir maður þetta sama fólk einhvers staðar þar sem það þarf ekki að vera í Keppninni og þá reynist þetta vænsta fólk fullt af tillits- semi og elskulegheitum og horf- ir alls ekki á mann eins og það telji mann sitja á svikráðum við sig – öðru nær. Ökuleiði Eiginlega er önnur skýring nærtækari á þessu útbreidda fúllyndi íslenskra ökumanna í umferðinni og hún er sú að Íslendingum leiðist almennt að aka bíl. Um leið og þeir séu komnir undir stýri geti þeir naumast á heilum sér tekið fyrr en þeir eru lausir við þetta og komnir heim á Facebook. Eina fólkið – fyrir utan olíufélögin – sem hefur einhverja ánægju af samgöngumálum hér á landi eru listrænu umferðarverk- fræðingarnir sem hér hannar hver sína útfærslu af umferð- arslaufu og fær þar með útrás fyrir listrænan metnað sinn. Eitt af því versta sem ára- löng stjórn fulltrúa bílasala og olíufélaga á Reykjavík og nágrannabyggðum hefur haft í för með sér er hinn nánast algjöri skortur á almennings- samgöngum sem hér ríkir – sú gjörtæka fyrirlitning á slíkum ferðamáta sem ráðið hefur för um árabil þar sem litið er á það að ferðast með strætó sem jafn- gildi þess að fara á fátækra- hæli. Og meðal annarra orða: Hve- nær fáum við lestirnar? AF NETINU Greið leið Sigmundar Miðað við stöðu skoðanakannana um þessar mundir eru vaxandi líkur á að Framsóknarflokkurinn verði í lykilstöðu, þegar kemur að myndun ríkisstjórnar næsta vor. Það þarf eitthvað nýtt að gerast hjá nýju framboðunum til þess að þau nái sér verulega á strik og heldur ólíklegt að það eigi eftir að gerast. Fái Sjálfstæðisflokkurinn viðun- andi kosningu þarf hann engu að síður á samstarfsaðila að halda til þess að tryggja sér aðild að nýrri ríkisstjórn. Framsóknarflokkurinn er að óbreyttu eini aðilinn, sem þar getur komið til greina. [...] En svo er hitt að í slíku samstarfi mundi Sigmundur Davíð eiga greiða leið í forsætisráðuneytið. evropuvaktin.is Styrmir Gunnarsson Ekki eftir næstu kosningar Framsóknarflokkurinn gerði áhugaverða tilraun fyrir rúmum þremur árum þegar hann kaus sér formann sem hafði aldrei komið nálægt stjórnmálum fyrr. Það var virðingarvert. Flokkurinn svaraði með því harðri (og stundum afar óvæginni) gagnrýni sem hann hafði mátt þola í nokkur ár. Reynslan af þessari tilraun er hins vegar sú, að stökkið var of stórt. Framsóknarflokkurinn hefur goldið þess í stjórnarandstöðu að vera með nýliða sem formann. Hann hefur líka misst fólk fyrir borð og þingflokkurinn er enn þverklofinn í stórum málum. Það getur vel gerst að Sigmund- ur Davíð verði ráðherra í næstu ríkisstjórn. Það er heldur ekki úti- lokað að hann verði einhvern tíma forsætisráðherra. En það verður ekki eftir næstu kosningar. blog.pressan.is/andresjons Andrés Jónsson Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG FÁÐU GÓÐ RÁÐ VIÐ OFNÆMI NEUTRAL.IS Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum frá NeutralDönsku astma- og ofnæmissamtökin ÍS LE N SK A S IA .I S N AT 6 06 55 0 8. 20 12 Hungurleikarnir á Miklubraut Sú aðgerð að gefa stefnuljós er veikleika- merki. Þar með vita hinir keppendurnir um áform þín og standa betur að vígi en ella.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.