Fréttablaðið - 10.09.2012, Page 6
10. september 2012 MÁNUDAGUR6
Kræsingar & kostakjör
ALLT Á PRJÓNANA Í NETTÓ!
Garndeildir Nettó | Reykjanesbær | Grindavík | Egilsstaðir | Akureyri | Mjódd | Grafarvogur | Borgarnes
Léttlopi 228 KR
Kræsingar & kostakjör
Hentar
fyrir krak
ka
á öllum
aldri!
Bókin
er seld með
kynningar-
afslætti í
verslunum.
Hjúkrunarrými í hverjum landshluta
49
12
179
27
114
21
244
29
360
37
90
24
1.330
117
Fjöldi hjúkrunarrýma nú
Biðlisti
FRÉTTASKÝRING
Hver er staðan á hjúkrunarrýmum?
Alls eru 267 manns nú á bið-
lista eftir hjúkrunarrými á land-
inu, samkvæmt nýjum tölum frá
Landlæknisembættinu. Biðlistinn
er styttri en fyrir ári, en þá beið
281 eftir hjúkrunarrými.
Flestir, eða 117 manns, bíða nú
hjúkrunarrýmis á höfuðborgar-
svæðinu. 37 bíða eftir plássi á
Norðurlandi, 29 á Suðurlandi,
27 á Vesturlandi og 24 á Austur-
landi. 21 hjúkrunarrými vantar á
Suður nesjum og 12 á Vestfjörð-
um.
Fyrir tveimur árum kynnti
félagsmálaráðuneytið bygg-
ingarátak og uppfærða áætl-
un um uppbyggingu 360 hjúkr-
unarrýma í níu sveitarfélögum
frá árinu 2010 til ársins 2012.
Sveitarfélögin sem um ræddi
eru Akureyri, Borgarbyggð,
Fljótsdalshérað, Garðabær,
Hafnarfjörður, Kópavogur,
Reykjanesbær, Mosfellsbær og
Seltjarnarnes. Seinna bættist
svo Ísafjörður við og ráðgert
er að skrifað verði undir vilja-
yfirlýsingu um uppbyggingu í
Bolungarvík á næstu dögum.
Því eru hjúkrunarrýmin sem
byggja á upp samkvæmt áætlun-
inni orðin ríflega 460, samkvæmt
svari velferðarráðuneytisins við
fyrirspurn Fréttablaðsins. Ýmist
er verið að fjölga hjúkrunarrým-
um eða eyða fjölbýlum á hjúkr-
unarheimilum, en það er í sam-
ræmi við viðmið ráðuneytisins
um aðbúnað í hjúkrunarrýmum.
Samkvæmt svari velferðar-
ráðuneytisins er kostnaðurinn
við þessar framkvæmdir um
þrettán milljarðar króna og þær
munu krefjast um 1.100 ársverka.
Utan þessarar áætlunar er
einnig unnið að uppbyggingu
rýma í Stykkishólmi, á Akranesi
og Eskifirði.
Staðan eftir landshlutum
Hjúkrunarrými voru 2.366 á
landinu öllu í febrúar síðastliðn-
um. 1.330 þeirra eru á
höfuðborgarsvæðinu en
uppbygging á 60 hjúkr-
unarrýmum í Garðabæ,
30 rýmum á Seltjarnar-
nesi, 30 rýmum í Mos-
fellsbæ, 44 í Kópavogi
og 60 í Hafnarfirði er
mislangt á veg komin.
„ Þ á e r á æt lu ð
umfangsmikil uppbygg-
ing ríflega 200 hjúkrun-
arrýma á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem hvað
brýnast er að fjölga
rýmum, í samstarfi við
sveitarfélögin,“ segir í
svari ráðuneytisins.
Á Suðurnesjum eru
114 hjúkrunarrými nú.
Komist hefur verið að
samkomulagi um bygg-
ingu sextíu rýma hjúkrunarheim-
ilis í Reykjanesbæ sem mun leysa
af hólmi þau rými sem nú eru í
notkun á hjúkrunarheimilinu
Hlévangi og Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Nýja hjúkrunarheim-
ilið á að komast í notkun 2014.
Á Vesturlandi eru 179 hjúkr-
unarrými. Ný viðbygging við
Dvalar heimili aldraðra í Borgar-
nesi var tekin í notkun í sumar,
en hjúkrunarrýmum fjölgaði
ekki við það. Búið er að undir-
rita viljayfirlýsingu um uppbygg-
ingu hjúkrunarrýma í Stykkis-
hólmi, en rýmum mun ekki fjölga
við það. Þá verða níu rými fyrir
heilabilaða vígð á Höfða á Akra-
nesi í næstu viku.
Á Vestfjörðum eru 49 hjúkrun-
arrými en í byggingu er 30 rýma
heimili á Ísafirði. Þá er áætlað að
undirrita samning um
uppbyggingu einbýla á
nýju hjúkrunarheimili í
Bolungarvík.
Á Norðurlandi eru
360 hjúkrunarrými en
fyrir skemmstu var
nýtt hjúkrunarheimili,
Lögmannshlíð, fullbúið
til notkunar. Þangað
flytjast 45 íbúar af
öðrum dvalarheimilum.
Á Austurlandi eru nú
níutíu hjúkrunarrými.
Í vor var skrifað undir
samning um byggingu
hjúkrunarheimilis á
Egilsstöðum sem á að
taka í notkun árið 2014.
Hjúkrunarrými fyrir
fjörutíu manns verða á
heimilinu. Þá er stefnt
að því að nýtt hjúkrunarheimili
verði tekið í notkun á Eskifirði
á næsta ári, en það verður fyrir
tuttugu íbúa.
Á Suðurlandi eru 244 hjúkr-
unarrými. Engin uppbyggingar-
áform voru í landshlutanum sam-
kvæmt fyrrgreindum áætlunum.
thorunn@frettabladid.is
Uppbygging brýnust
á höfuðborgarsvæði
267 aldraðir bíða nú eftir hjúkrunarrými, en þeir voru 281 á sama tíma í fyrra.
Áætlun ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir uppbyggingu rúmlega 460 rýma en
stór hluti þess er ekki ný rými. Fjölgun rýma er brýnust á höfuðborgarsvæðinu.
117
manns bíða
nú eftir
hjúkrunarrými
á höfuðborg-
arsvæðinu en
37 á Norður-
landi.
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
% AFSLÁTTUR
10.-30. SEPTEMBER
HEILBRIGÐISMÁL Biðlistar á Land-
spítalanum lengjast þvert á mark-
mið spítalans að fækka þeim kerfis-
bundið. Þetta kemur fram í pistli
forstjórans, Björns Zoëga, sem
hefur áhyggjur af þróuninni.
Í skrifum hans kemur fram að í
dag eru um tvö þúsund sjúklingar á
biðlistum spítalans „en það er nokk-
ur fjölgun frá því 1. janúar síðast-
liðinn, þvert á markmið okkar um
að fækka verulega á biðlistunum,“
segir Björn.
Hann segir markmið starfsfólks
spítalans fyrir árið 2012 hafa verið
mjög metnaðarfull og þess vegna
hafi í mörgum tilvikum verið mjög
erfitt að ná þeim. „Það er þó hægt
að gleðjast yfir markmiði eins og
því að við nálgumst óðfluga að
fækka spítalasýkingum niður í
5%. Þær eru 6,1% núna en nefna
má að á öðrum háskólasjúkrahús-
um á Norðurlöndum er tíðnin oft í
kringum 9-10%,“ skrifar Björn.
Sex mánaða uppgjör spítalans
var neikvætt í fyrsta skipti í þrjú
ár, eða upp á 84 milljónir króna.
Bráðabirgðauppgjör fyrir fyrstu
sjö mánuði ársins bendir hins vegar
til þess að hallinn minnki hægt og
sígandi, í samræmi við endurskoð-
aða áætlun Landspítalans frá því í
maí. - shá
Forstjóri LSH hefur áhyggjur af því að fjölgað hefur á biðlistum frá áramótum:
Biðlistar lengri en færri sýkjast
Á LANDSPÍTALA Í FOSSVOGI Ágætlega
gengur að fækka spítalasýkingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NESKAUPSTAÐUR Miklar skemmd-
ir urðu á húsnæði Verkmennta-
skóla Austurlands í Neskaup-
stað þegar heitavatnsrör sprakk
og heitt vatn fossaði um bygg-
inguna. Meðal annars skemmd-
ust gólfefni, hurðir og húsgögn.
Ekki er búið að meta tjón á
tölvubúnaði skólans og því ekki
vitað hversu mikill skaðinn var.
Öll önnur hæð skólans er þó
stórskemmd og kemur óhappið
því til með að raska skólastarfi
á næstu vikum.
- trg
Skólastarf raskast fyrir austan:
Vatnsleki olli
stórtjóni í VA
Er launahækkun forstjóra
Landspítalans réttlætanleg?
JÁ 26,3%
NEI 73,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú nýtt þér síðsumars-
útsölurnar?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN