Fréttablaðið - 10.09.2012, Qupperneq 18
FÓLK|HEILSA
TEIKNA OG SKRIFA
MÖRG LEIKSKÓLABÖRN HAFA GAM-
AN AF ÞVÍ AÐ LÆRA STAFI. HÆGT ER
HVETJA BÖRNIN MEÐ ÞVÍ AÐ LÁNA ÞEIM
LITLA TÖFLU OG KRÍT OG KENNA ÞEIM
STAFINA. BÖRNIN SKEMMTA SÉR VIÐ AÐ
SKRIFA OG ÞURRKA AFTUR ÚT. SÖMU
TÆKNI ER HÆGT AÐ NOTA Í TÖLVU EN
TAFLAN ER KANNSKI ÞÆGILEGRI ÞEGAR
MJÖG UNG BÖRN EIGA Í HLUT. ÞAU GETA
ÞÁ LÍKA TEIKNAÐ DÝR, HÚS EÐA ANN-
AÐ ÞAÐ SEM HUGURINN LEYFIR.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
HEIMA VIÐ | FRIÐRIKA GEIRSDÓTTIR
KOM SKIPULAGI Á SKÁPANA
■ Friðrika Geirsdóttir verður dómari
í íslenskri útgáfu af Masterchef-þátt-
unum sem hefja göngu sína á Stöð 2 í lok
þessa árs. Masterchef-þættir hafa verið
afar vinsælir um allan heim. Til gamans
fengum við Rikku til að svara nokkrum
spurningum heima við.
Stendur þú í einhverjum framkvæmdum
þessa dagana á heimilinu eða hefur
nýlokið við? Nei, ekki eins og er. En
ég er reyndar búin að vera að taka til
í fataskápunum hjá mér og koma nýju
skipulagi á þar. Þar er alveg heilmikið
sem mætti hverfa, einnig væri kærkomið
að fá eitthvað nýtt inn. Ég hef reynt að
halda þá reglu að þegar ég kaupi eitt-
hvað nýtt í fataskápinn þá fer eitthvað
gamalt út. Eins og gefur augaleið þá
gengur það ekki alltaf upp. 2012 snýst
um skipulag á heimilinu mínu að þessu
sinni, sjáum til hvort að það gangi eftir.
Eitthvað slíkt á dagskránni? Fyrir utan
það að skipuleggja alla skápa þá langar
mig óskaplega til að fríska upp á nokkra
veggi. En auðvitað klæjar mann alltaf í
fingurna og langar að snúa öllu við en
það verður að bíða betri tíma.
Ertu dugleg að breyta og bæta heima
við? Ég er reyndar nokkuð sátt núna en
ég reyni að létta aðeins á fyrir sumarið
og svo aftur á móti fyrir veturinn þá kem
ég fleiri kertastjökum fyrir svona hér og
þar.
Er einhver hlutur sem þig langar sér-
staklega mikið í þessa dagana? Langar
mann ekki alltaf í eitthvað? Ég sá til að
mynda alveg óskaplega mikið af fal-
legum hlutum í Hugmyndum og heimili
og væri til í að fá að rasa þar út.
Hver er uppáhaldshluturinn þinn í eld-
húsinu? Hnífasafnið mitt auk þess sem
Kitchen Aid-vélin kemur alltaf að góðum
notum.
Hver er uppáhaldsstað-
urinn þinn á heimilinu?
Ég sit mikið við eldhús-
borðið þegar ég er að
vinna og þar fæ ég
margar góðar hug-
myndir auk þess er það
staðurinn þar sem fjöl-
skyldan kemur saman á
kvöldin.
V ík Prjónsdóttir er einn fjölmargra íslenskra hönnuða sem taka þátt í Hönnunarvikunni í Finnlandi sem
var sett síðastliðinn fimmtudag. Hönnun
Víkur Prjónsdóttur var valin af skipuleggj-
endum sýningarinnar til að vera í hinum
þekkta útstillingarglugga Stockmann-
stórverslunarinnar í miðborg Helsinki.
„Við tökum þátt í sýningu sem kallast
Everyday Discoveries sem er einn helsti
viðburður World Design Capital Helsinki
2012 en þar verður hönnun sem tengist
daglegu lífi fólks kynnt. Vík Prjónsdóttir
sýnir þar Selinn og Kópinn en það eru
teppi fyrir börn og fullorðna sem er hægt
að klæða sig í,“ segir Ólafur Páll Torfason,
framkvæmdastjóri Víkur Prjónsdóttur.
Selurinn var hannaður fyrir nokkrum
árum og hefur vakið athygli þar sem hann
hefur verið sýndur. „Selurinn og Kópurinn
hafa náð ákveðinni stöðu. Við skilgreinum
okkur ekki sem tískufyrirtæki heldur
bjóðum við upp á vöru sem hefur ákveð-
ið notagildi sem fellur ekki úr tísku. Fólk
hefur sýnt okkur mikinn áhuga og varan
hefur selst ágætlega. Margir sjá þó ekki
notagildið fyrr en þeir hafa prófað Selinn.
Það er ótrúlega gott að vera í honum þeg-
ar fólk er heima á kvöldin í tölvunni eða að
horfa á sjónvarpið. Í Selnum nær maður
ákveðinni jarðtengingu og einbeitingu.“
Vík Prjónsdóttir hyggur á landvinninga
í Finnlandi og tekur þátt í annarri sýningu
þar í október sem heitir Smart Process/
Smart design. „Þetta er liður í því að at-
huga hverjir okkar möguleikar eru í Finn-
landi. Við teljum að Finnar séu líkir okkur
Íslendingum að mörgu leyti og að íslensk
hönnun höfði til þeirra. Salan í netverslun
okkar sem kemur frá Finnlandi hefur til
dæmis aukist eftir að við fórum að sýna
þar,“ segir Ólafur.
Helsinki ber í ár titilinn World Design
Capital og hefur íslensk hönnun verið
áberandi í Finnlandi á árinu. Vík Prjóns-
dóttir er ekki eini íslenski hönnuðurinn
sem tekur þátt í Hönnunarvikunni í Finn-
landi. Á meðal íslenskra þátttakenda eru
Vík Prjónsdóttir, Studio Subba, Hrafnkell
Birgisson, Dögg Guðmundsdóttir, Haf-
steinn Júlíusson, Volki, Áslaug Jónsdóttir
og Össur. ■ lilja.bjork@365.is
SELURINN ÁBERANDI
HÖNNUN Selur Víkur Prjónsdóttur var valinn til að kynna hluta sýningarinnar
Everyday Discoveries á Hönnunarvikunni í Finnlandi.
TIL SÝNIS Selur Víkur
Prjónsdóttur í útstill-
ingarglugga stórversl-
unarinnar Stockmann í
Helsinki.
SELUR Selur, hönnun
Víkur Prjónsdóttur, er
þægilegt ullarteppi sem
hægt er að klæða sig í.
MYND/GULLI MAR
FRIÐRIKA GEIRS-
DÓTTIR
Listakokkur og dómari.
-inniheldur m.a. hinn öfluga
DDS1 asídófílus sem er bæði
gall- og sýruþolin.
-er sannkölluð himnasending
fyrir meltinguna, bætir og byggir
meltingarflóruna og hefur reynst
vel þeim sem þjást m.a. af
meltingarkrampa, uppþembu,
kandíta, lausri og tregri meltingu.
www.gengurvel.is
UPPLIFÐUMUNINN!®
®
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Sykur
Soja
Rotvarn-
arefni
P
R
E
N
T
U
N
.IS