Fréttablaðið - 10.09.2012, Síða 52
10. september 2012 MÁNUDAGUR20
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. flík, 6. fyrirtæki, 8. merki, 9. pfn.,
11. skst., 12. hlutdeild, 14. uppskafn-
ingsháttur, 16. í röð, 17. hyggja, 18.
bergmála, 20. mergð, 21. pappírsblað.
LÓÐRÉTT
1. formóðir, 3. skammstöfun, 4.
jarðbrú, 5. sjáðu, 7. kurteisi, 10.
hvoftur, 13. hvíld, 15. klædd, 16.
úrskurð, 19. til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. pels, 6. ms, 8. hak, 9.
mig, 11. no, 12. aðild, 14. snobb, 16.
de, 17. trú, 18. óma, 20. úi, 21. miði.
LÓÐRÉTT: 1. amma, 3. eh, 4.
landbrú, 5. sko, 7. siðsemi, 10. gin,
13. lot, 15. búin, 16. dóm, 19. að.
Keila á mið-
vikudaginn?
Ég skal athuga!
Því miður!
Þá er Stoke á
dagskránni!
Þú veist að venjulegt
fólk skipuleggur líf sitt
samkvæmt dagatal-
inu, ekki leikjadagskrá
Liverpool!
– og þarna
hefurðu
venjulegt fólk –
heimskingjar!
Hvað finnst þér,
Palli?
Er í lagi með
þessi föt?
Já, já,
hví
ekki?
Það er ekki eins og ein-
hver horfi á þig eða neitt.
Gelgjuskeiðið er
lækningin við of
háu sjálfsáliti.
Barna-
lán
Hér eftir
verður þú ekki
þekktur undir
nafninu
Kolbeinn kuti
heldur Stína stuð.
Getum
við málað
herbergið
mitt?
Í hvaða lit? Þessum
blá-fjólubláa
hérna.
Viltu mála herbergið
þitt í sama lit
og marblettinn?
Bara
veggina.
Ég hugsa að þessi
grænguli litur í kring
gæti verið góður á
rúmteppið.
Spánn er meðal þeirra þjóða þar sem hljóðmengun er hvað mest. Það kemur
íslenskum sólarlandaferðalöngum eflaust
ekki á óvart sem komið hafa á spænskan
bar. Þar talar hver og einn með slíkum
raddstyrk að halda mætti að viðmæland-
inn væri í næsta bæjarfélagi. Þar á ofan
þjösnast barþjónninn svo á kaffikvörninni
að viðskiptavinurinn fær það fljótlega á
tilfinninguna að hann sé staddur í vél-
smiðju.
ÉG taldi mig vera að fara í skjól frá þess-
ari mengun þegar ég fór einn góðan
sunnudag í messu. Þar töluðu hins
vegar sóknarbörnin hvert ofan í annað
en guðsmaðurinn var jafn ankanna-
legur og sendifulltrúi frá Satúrnus
þar sem hann hjalaði um Jesú Krist
meðan messugestir voru önnum kafn-
ir í kjaftagangi að raða samborgur-
um sínum á skalann frá óþokkum
upp í öðlinga.
UM síðustu helgi taldi ég mig
loksins vera kominn í var en
þá féll frá gömul sómakona
nátengd tengdafólki mínu. Hélt
ég þá til líkvöku eins og sið-
venjur gera ráð fyrir. Spánverj-
ar koma nefnilega sínu fólki til
grafar innan við tveimur sólar-
hringum frá því þeir gefa upp
öndina. Þessa tæpa tvo sólar-
hringa er hinum framliðna hins vegar
haldinn félagsskapur í formi þessarar lík-
vöku sem ég varð nú vitni að í fyrsta sinn.
ÞEGAR ég kom að kapellu útfararstofunn-
ar var ég uppfullur af lúterskum hátíð-
leik og hvíslaði því samúðarorðum að við-
stöddum. Vissulega voru einhverjir með
tár á hvarmi en annars var hátíðleikinn af
skornum skammti. Menn voru við sama
heygarðshornið og kjöftuðu sem áður,
hver ofan í annan. Sumir létu ekki undir
höfuð leggjast að hafa uppi gamanmál.
Það kom þeim lúterska verulega spánskt
fyrir sjónir og eyru.
VESTUR á Bíldudal var ég nefnilega alinn
upp við það að börn voru lokuð inni og
dregið fyrir glugga þegar einhver var bor-
inn til grafar. Þar var ég líka sóknarbarn
séra Döllu Þórðardóttur sem var snilling-
ur í því að fanga athygli áheyrenda með
innblásnum prédikunum svo þessi kristi-
legi kjaftagangur hér á Spáni var mér
algjör nýlunda.
ÞAÐ var ekki laust við að það færi um
mig þegar ég leit í kringum mig og sá að
allir á líkvökunni voru með láréttu rifuna
á útopnu nema ég og svo sú framliðna. Það
gerði þó ekkert til því ég læt þetta yfir
mig ganga af léttúð einni og heldri konan
var horfin til annarra heima þar sem mér
skilst að hljóðmengunin sé heldur minni.
Kristilegur kjaftagangur
ht.is
UPPLÝSINGA
SKJÁIR
Frábær myndgæði jafnvel við erfiðar
bjartar aðstæður. PHILIPS 46“ sunlight
readable skjárinn er bjartasti skjárinn
frá PHILIPS og því tilvalinn þar sem
birta er mikil.
BJARTARI EN
ÁÐUR HEFUR
ÞEKKST
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ SELFOSSI S: 480 3700
HÚSAVÍK AKUREYRI S: 460 3380
KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 REYKJAVÍK S: 569 1500