Fréttablaðið - 10.09.2012, Page 57

Fréttablaðið - 10.09.2012, Page 57
MÁNUDAGUR 10. september 2012 25 bærið sem tröllreið kvikmynda- iðnaðinum fyrir aldamót. Augljós- lega átti að búa til eftirvæntingu og það tókst að vissu leyti. Íslensk- ir spennutryllar eru ekki í bíó í hverri viku og hugmyndin er ekki slæm. Ungt par, mastersneminn Agla og kvikmyndagerðarmaður- inn Gunnar sem eru leikin af Önnu Gunndísi Guðmundsdóttur og Birni Thors, vaknar í rannsóknarbúðum uppi á jökli og uppgötva eftir því sem líður á daginn að allir félagar þeirra úr rannsóknarleiðangrin- um eru á bak og burt. Dularfullir og ógnvænlegir atburðir fara að gerast og sífellt syrtir í álinn hjá söguhetjunum okkar sem eru ein og yfirgefin í einskismannslandi þar sem náttúruöflin sýna þeim enga miskunn. Það er erfitt að fara yfir myndina án þess að gefa of mikið upp um söguþráðinn, en hitt má segja að framvindan er óhemju hæg fyrir hlé þar sem þau Agla og Gunnar velta fyrir sér hvert félagar þeirra gætu hafa farið. Spennan og hryllingurinn sem liggja undir, láta bíða eftir sér og birtast svo ekki nema rétt í skötu- líki. Loks er niðurlagið endaslappt svo ekki sé dýpra í árina tekið. Það er oftar en ekki til marks um góða kvikmynd og ánægjulega kvöld- stund þegar áhorfendur yfirgefa salinn með höfuðið fullt af spurn- ingum, en í þessu tilfelli spurðu sig flestir hvort myndin væri í alvör- unni búin. Það sem má þó segja myndinni til hróss er að leikstjór- inn, Reynir Lyngdal, nær að skapa nokkuð góða umgjörð um þau Öglu og Gunnar. Leikmyndin og útlitið er sannfærandi, allt hljóð er vel unnið og Reynir kemur ágætlega til skila ákveðnum votti af inni- lokunarkennd og ónotum, án þess þó að það grípi áhorfandann fylli- lega. Þau Anna Gunndís og Björn skila sínum hlutverkum vel og er ekki við þau að sakast þótt heild- arútkoman sé nokkuð döpur og skilji ekkert eftir sig. Þó að Frost hafi vissulega eitt og annað til síns ágætis er það einfaldlega ekki nóg þegar sagan heldur ekki og þá ekki myndin sjálf. Niðurstaðan er því vonbrigði. Þorgils Jónsson Niðurstaða: Slappur spennu- vísindatryllir sem nær aldrei að grípa áhorfandann og skilur ekkert eftir sig. Renée Zellweger ætlar að setjast í leikstjórastólinn í fyrsta sinn og leikstýra gamanmynd- inni 4½ Min- utes. Leikkonan fer einnig með aðalhlutverk- ið í myndinni á móti Johnny Knoxville. Zellweger hefur áður verið á bak við tjöldin í Holly- wood, eða þegar hún var einn af framleiðendum Miss Potter sem kom út 2006. 4½ Minutes gerist í New York-borg og er byggð á ævi uppistandarans Dov Davidoff. Zellweger leikur einstæða móður sem kynnist grínistanum Jimmy Bennett sem á í erfiðleikum með að festa ráð sitt. Leikstýrir í fyrsta sinn Kvikmyndir ★★★★★ Frost Leikstjórn: Reynir Lyngdal Aðalhlutverk: Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Björn Thors, Hilmar Jónsson, Helgi Björnsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Hallur Ingólfsson. Fátt er verra fyrir spennutrylli en spennufall, en það er eiginlega besta orðið til að lýsa kvikmynd- inni Frosti. Kynningarherferð myndarinnar lofaði nokkuð góðu þó hún hafi óneitanlega vakið upp minningar um Blair Witch-fyrir- Kaldur dagur í helvíti EIN STJARNA Gagnrýnandinn Þorgils gefur íslensku spennumyndinni Frost bara eina stjörnu. MYND/BJARNI GRÍMS Söngvarinn Enrique Iglesias gæti verið næsti dómari í sjónvarps- þáttunum American Idol. Söngv- arinn mun hafa fengið tilboð um að ganga til liðs við hinn vinsæla sjónvarpsþátt og gerast dómari. Aðrir dómarar í þættinum munu vera Nicki Minaj, Keith Urban og Mariah Carey. Árslaun söngvarans yrðu ekki af verri endanum því hann fengi 490 milljón krónur fyrir starf sitt. Það er þó ekki víst að Iglesias taki tilboðinu því hann hefur áður afþakkað tilboð um að gerast dómari X Factor og The Voice. Boðið dómarasætið RENÉE ZELLWEGER

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.