Fréttablaðið - 10.09.2012, Síða 62
10. september 2012 MÁNUDAGUR30
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Ég er að missa mig yfir nýja
Villagers-laginu. Það heitir The
Waves og er magnaður and-
skoti með alveg ótrúlega upp-
byggingu sem endar í hreinni
fullnægingu. Ég held að ég hafi
spilað það svona tíu sinnum í
gegn síðasta mánudag.“
Birgir Örn Steinarsson, tónlistarmaður.
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti gefur út sína
fyrstu plötu, Dýrð í dauðaþögn, á þriðjudaginn. Tvö
lög af henni, Leyndarmál og Sumargestir, hafa notið
mikilla vinsælda í sumar og því er eftirvæntingin
mikil.
Aðspurður segist Ásgeir Trausti hafa verið í eitt
ár að semja lögin, þrír mánuðir fóru í upptökur og
um tveir mánuðir í að vinna umslagið. Ferlið hefur
því verið ansi langt en hann er mjög spenntur að
sjá hvernig viðtökurnar verða. Strákarnir í Hjálm-
um aðstoðuðu Ásgeir Trausta við upptökurnar,
sem kemur ekki á óvart því söngvari sveitarinnar
er bróðir hans Þorsteinn Einarsson. Þeir spiluðu
einnig inn á plötuna og verða með honum á þrenn-
um útgáfutónleikum. Þeir fyrstu verða á Græna
hattinum 14. september, þeir næstu á Hvamms-
tanga hinn 16. og þeir þriðju og síðustu á Faktorý
18. september. „Það er rosalega þægilegt að hafa
svona reynslubolta í þessu með sér þegar maður er
að koma svona nýr inn,“ segir Ásgeir Trausti um
Hjálmana.
Lögin á plötunni eru annars úr öllum áttum.
„Lögin eru öll rosa ólík og textarnir eru allir mjög
mismunandi,“ segir hann. Faðir hans, Einar Georg
Einarsson, samdi sjö texta og Júlíus Róbertsson þrjá
en hann spilar einnig með Ásgeiri.
Það eru spennandi hlutir fram undan hjá
tónlistar manninum efnilega, sem er þó sallarólegur
yfir öllu saman. „Ég nenni ekki að vera að stressa
mig, ég sé engan tilgang í því. Þetta rennur bara
áfram og ég fylgi með.“ - fb
Ný plata og þrennir tónleikar
SALLARÓLEGUR Ásgeir Trausti er sallarólegur og nennir lítið að
vera að stressa sig yfir hlutunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Minningartónleikar um útigangsmanninn
Loft Gunnarsson, sem lést fyrr á þessu ári,
verða haldnir á morgun, þriðjudaginn 11.
september, í Vídalínskirkju í Garðabæ. Allt
andvirði miðasölu rennur í minningarsjóð
Lofts sem hefur það eina markmið að bæta
aðbúnað utangarðsmanna í Reykjavík.
Aðspurður segir Frosti Logason, vinur
Lofts, að tónleikarnir hafi átt sér töluvert
langan aðdraganda. „Fjölskyldu hans lang-
aði fljótlega eftir jarðarför Lofts að gera eitt-
hvað til að bæta hag útigangsmanna. Vinkona
Lofts hélt ljóðasamkeppni og gerði ljóðabók
sem var hugsuð fyrir sama málstað og svo er
afmælið hans ellefta september. Við vissum
alltaf að við myndum gera eitthvað á afmælis-
degi Lofts,“ segir Frosti.
Pétur Ben, Ómar og Óskar Guðjónssynir,
Esja, Ellen og KK og Frizko spila á tónleik-
unum, sem hefjast klukkan 20. Miðar fást á
Midi.is. „Þetta verða mjög flottir tónleikar,“
segir hann og bætir við að allir hafi verið
æstir í að fá að taka þátt. „Hann var svo rosa-
lega vinamargur. Allir vissu hver hann var og
höfðu talað við hann.“
Tónleikarnir í Vídalínskirkju verða að sögn
Frosta bókstaflega í bakgarðinum þar sem
Loftur ólst upp. Því eigi það einstaklega vel
við að halda tónleikana þarna. - fb
Til minningar um góðan vin
LOFTUR GUNNARSSON Fjöldi þekktra tónlistarmanna
minnist Lofts Gunnarssonar á tónleikum í Vídalínskirkju.
MYND/BJÖRN ÁRNASON
„Mér finnst miklu skemmtilegra
að lesa þessa bók en síðustu tvær
bækur sem ég las, en það voru
kennslubækur í leikfimi,“ segir
Þórunn Hjartardóttir myndlist-
arkona, hljóðbókalesari og sjón-
lýsandi. Þórunn er önnum kafin
þessa dagana við að lesa íslenska
þýðingu hinnar umtöluðu skáld-
sögu Fifty Shades of Gray eftir E.
L. James, mest seldu bókar heims
í dag, inn á hljóðbók fyrir Blindra-
bókasafn Íslands. Á næstu dögum
hefst einnig lestur á bókinni
Fantasíur sem ritstýrt er af Hildi
Sverrisdóttur inn á slíka hljóðbók
hjá Blindrabókasafninu. Kynlíf
og tengdir hlutir eru veigamestu
umfjöllunarefni beggja bókanna
og má því segja að erótíkin ráði
ríkjum í Blindrabókasafninu
þessa dagana.
Þórunn hefur lesið inn á flest-
ar tegundir hljóðbóka í fjölda ára,
meðal annars nokkrar bækur sem
innihalda misjafnlega berorðar
kynlífslýsingar. „Ætli það gróf-
asta sem ég hef lesið hingað til sé
ekki Belle du Jour – Opinská ævi-
saga gleðikonu í London sem kom
út fyrir nokkrum árum. Snákar
og eyrnalokkar eftir japanska
höfundinn Hitomi Kanehara var
líka nokkuð djörf. Ég vanda mig
alltaf eins og ég get, burtséð frá
því hvers konar bækur ég les, og
geri mitt besta til að hljóma sann-
færandi í lestrinum,“ segir Þór-
unn og bætir við að hugsanlega
gætu óreyndir lesarar átt erfitt
með að lesa klámfengnar lýsingar
upphátt. „Sjálf kippi ég mér ekki
upp við þær og finnst alltaf jafn
huggulegt að sitja í hljóðverinu og
lesa upp.“
Hlutverk Blindrabókasafnsins
er að opna þeim sem ekki geta
nýtt sér prentað letur aðgang
að prentuðu máli á hljóðbók eða
öðru aðgengilegu formi. Hafþór
Ragnarsson, starfsmaður í hljóð-
veri safnsins, segir að reglulega
séu haldnir fundir þar sem farið
ERÓTÍKIN RÆÐUR RÍKJUM: KYNLÍFSSKÁLDSÖGUR Á HLJÓÐBÓKUM
Beðmál í Blindrabókasafni
er yfir óskir lánþega og yfirlit
yfir væntanlega bókatitla og
ákvarðanir um lestur á bókum
teknar út frá þeim. „Ég held að
flestir lesarar mæti svona verk-
efni sem hverju öðru og líklega
er best að gera sem minnst af því
að setja sig í sérstakar stellingar.
Til dæmis las ég eitt sinn sjálfur
sögu inn á hljóðbók þar sem aðal-
persónan hékk sífellt úti á svölum
þar sem hann glápti á smástelpur
á skólalóð. Ég tengdi ekkert sér-
staklega vel við þann karakter,“
segir Hafþór.
kjartan@frettabladid.is
KÓSÍ Þórunn Hjartardóttir hefur lesið inn á fjölda
hljóðbóka fyrir Blindrabókasafnið og þykir alltaf
jafn huggulegt í hljóðverinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NORSKA BLINDRA-
BÓKASAFNINU HRÓSAÐ
Norska tímaritið Cupido, sem í yfir
aldarfjórðung hefur fjallað um kynlíf,
kynheilsu og kynferðisleg réttindi,
tilnefndi á föstudag norska blindra-
bókasafnið til menningarverðlauna
blaðsins árið 2012. Í tilnefningunni
segir að með hljóðbókum opni
safnið lánþegum sínum leið inn í
heim erótísks skáldskapar og sýni
jafnframt að ríkisstofnanir geti sýnt
áhuga og ábyrgð á kynferðislegum
réttindum þegna sinna. HAFÞÓR RAGNARSSON