Fréttablaðið - 17.09.2012, Side 50

Fréttablaðið - 17.09.2012, Side 50
17. september 2012 MÁNUDAGUR18 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. timamot@frettabladid.is Við blásum til málþings fyrir aðila skólasamfélagsins í Gerðubergi í dag,“ segir Ketill B. Magnússon, formaður samtakanna Heimilis og skóla sem eru 20 ára í dag. Yfirskrift mál þingsins er Samráð í sátt og verður athyglinni beint að samráði milli skóla og for- eldra varðandi breytingar á skóla- starfi. „Við viljum vekja athygli á því að þess hefur ekki alltaf verið gætt af hálfu sveitarfélaganna að hafa samráð við foreldra í þeim breytingum á skóla- umhverfinu sem fylgt hafa samdrætti og niðurskurði,“ segir Ketill. „Þannig að markmið málþingsins er að fá fram ólík sjónarmið varðandi samráð svo við getum í framhaldinu stillt saman væntingar okkar og skilning. Undan- farin ár hafa komið upp mál þar sem foreldrar hafa verið ósáttir við hvernig staðið hefur verið að breytingum í skólasamfélaginu og það þarf að endur- hugsa það hvernig staðið er að slíku. Samráðið þarf að verða nánara bæði varðandi praktísk mál, sem koma upp dag frá degi í rekstri skóla, og einnig í stefnumótun.“ Hefur samt ekki eitthvað áunnist á þessum tuttugu árum? „Jú jú, sam- tökin hafa náð miklum árangri. Í dag er það orðið almennt viðurkennt að for- eldrar eru hluti af skólasamfélaginu og að það beri að hafa þá með í ákvarð- anatöku varðandi skólastarfið. Það er í lögum að foreldrar skuli eiga fulltrúa í stjórnskipulegu apparati skólans og sama gildir um sveitarfélögin. Þar eiga foreldrar að eiga áheyrnarfulltrúa í öllum skólanefndum. Þannig að það er enginn vafi á að foreldrasamtökin hafa náð miklum árangri bæði gagnvart yfirvöldum og skólunum sjálfum, en það má aldrei sofna á verðinum. Þótt eitthvað þyki sjálfsagt í dag gæti það orðið fljótt að breytast ef því er ekki stöðugt fylgt eftir.“ Ætlið þið að gera eitthvað fleira til að fagna afmælinu? „Já, við ætlum að fagna þeim árangri sem við höfum náð með því að heiðra söguna og þá aðila sem hafa verið frumkvöðlar í gegnum tíðina,“ segir Ketill. „Við verðum með foreldradaginn í nóvember í annað sinn, sem er hefð sem við viljum koma á. Þar leggjum við áherslu á að safna saman foreldrum og fjalla um málefni sem brenna á þeim. Annað sem gaman er að segja frá er að í nóvember koma hingað formenn landssamtaka foreldra á öllum Norðurlöndunum og funda á Íslandi í tilefni afmælisins. Fókusinn verður á að deila þekkingu og reynslu af foreldrastarfi á Norðurlöndunum.“ Varst þú í Gerðubergi á stofnfund- inum 17. september 1992? „Nei, það var ég ekki,“ segir Ketill og skellir upp úr. „Ég var ekki einu sinni búinn að eign- ast mitt fyrsta barn. Hins vegar þekki ég frumkvöðlana sem voru þar og hef lært mikið af þeim.“ fridrikab@frettabladid.is HEIMILI OG SKÓLI 20 ÁRA: BLÁSA TIL MÁLÞINGS Í GERÐUBERGI Hafa náð miklum árangri en ekki má sofna á verðinum VILL SAMRÁÐ Ketill B. Magnússon, formaður Heimilis og skóla, segir vilja brenna við að sveitar- félögin hafi ekki samráð við foreldra varðandi breytingar á skólaumhverfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BAZ LUHRMANN kvikmyndaleikstjóri á afmæli í dag „Stundum ertu á undan, stundum á eftir, hlaupið er langt og á endanum keppirðu bara við sjálfan þig.“ 50 Merkisatburðir 17. september 1630 Borgin Boston í Bandaríkjunum er stofnuð af breskum landnemum. 1823 Fyrsta grindadráp í Reykjavík. 450 marsvín eru rekin á land. 1844 Fyrstu Alþingiskosningar í Reykjavík. Sveinbjörn Egilsson hlýtur flest atkvæði, 15, en neitar þingsetu og verður því Árni Helgason þingmaður, en hann hlaut 11 atkvæði. 1917 Verslunarráð Íslands er stofnað. 1939 Seinni heimsstyrjöldin: Sovétríkin ráðast inn í Pólland úr austri í samræmi við samkomulag þeirra við Þýskaland. 1966 Vegur fyrir Ólafsfjarðarmúla er formlega opnaður. 1987 Fréttaþátturinn 19:19 hefur göngu sína á Stöð 2. 1992 Landsbankinn tekur eignir Sambands íslenskra sam- vinnufélaga upp í skuldir og innlimar þar með Samvinnu- bankann. 2001 Mesta stigafall í sögu Dow Jones-vísitölunnar verður á fyrsta viðskiptadegi bandarísku kauphallarinnar eftir 11. sept- ember. AFMÆLISÞING HEIMILIS OG SKÓLA Í GERÐUBERGI 17. SEPTEMBER KL. 14-16 Dagskrá: Ketill B. Magnússon, formaður Heimilis og skóla, opnar málþingið Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, flytur ávarp Um samráð – Arndís Ósk Jónsdóttir, stjórnunarráðgjafi Börn og breytingar í skólum – Margrét María Sigurðardóttir, Umboðsmaður barna Sjónarmið sveitarfélaga – Halldór Halldórsson, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga Pallborðsumræður og spurningar úr sal Fyrrum formenn heiðraðir Afmæliskaffi Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR Hvassaleiti 56, lést sunnudaginn 9. september. Útförin fer fram frá Grensáskirkju þriðjudaginn 18. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Magnús R. Jónasson Sigrún Sigurðardóttir Sigurrós Jónasdóttir Ólafur G. Flóvenz Elín Jónasdóttir Eggert Jónasson ömmubörn og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KARL G SIGURBERGSSON Suðurgötu 26, Keflavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 11. september. Útför hans fer fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju föstudaginn 21. september kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Þroskahjálp á Suðurnesjum. Valgerður Bjarnadóttir Bjarni Frímann Karlsson Sólveig D Ögmundsdóttir Ragnar Karlsson Þóra Eyjólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, RÓSA SVEINBJARNARDÓTTIR Dalalandi 8, Reykjavík, lést miðvikudaginn 12. september. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 18. september kl. 15.00. Jónína Helgadóttir Víkingur Sveinsson Einar Helgason Inga Guðmundsdóttir Kolviður Helgason Margrét Hreinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN BJÖRNSSON fræðiritahöfundur, frá Bólstaðarhlíð, Vestmannaeyjum, Ægisíðu 92, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 4. september verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 21. september kl.13.00. Bryndís Jónsdóttir Halldóra Björk Jónsdóttir Ingimar Haraldsson Þorgerður Bryndísardóttir Jónsdóttir Bogi Agnarsson Birna Ólafía Jónsdóttir Ásmundur Jón Þórarinsson Björn Jón Jónsson barnabörn og barnabörn. Vanessa Williams var krýnd ungfrú Ameríka 1984 þann 17. september 1983, fyrst þeldökkra kvenna. Titill- inn færði henni þó litla hamingju því fljótlega eftir að úrslitin voru kunn- gjörð fóru henni að berast hatursbréf og dauðahótanir. Steininn tók þó úr tíu mánuðum seinna þegar upp voru grafnar nektarmyndir af Williams, sem teknar höfðu verið árið 1982, og þær birtar í tímaritinu Penthouse. Eftir gífurlegt fjölmiðlafár og hótanir stuðningsaðila um að þeir myndu hætta að styðja keppnina fjárhagslega yrði Williams ekki svipt titlinum afsalaði hún sér honum á blaðamannafundi þann 23. júlí 1984. Við titlinum tók sú sem hafði verið í öðru sæti í keppn- inni, Suzette Charles, sem einnig er þeldökk. Williams fékk þó að halda kórónunni og námsstyrknum sem hún hafði hlotið í verðlaun og er enn skráð sem ungfrú Ameríka 1984 í opinberum gögnum Miss America Organization. Williams haslaði sér síðar völl bæði sem söngkona og leikkona og hefur meðal annars leikið í sjón- varpsþáttaseríunum um Ugly Betty og Aðþrengdar eiginkonur auk þess sem plötur hennar hafa selst í millj- ónum eintaka og hún hlotið fjölda Grammy-verðlauna. ÞETTA GERÐIST 17. SEPTEMBER 1983 Fyrsta þeldökka ungfrú Ameríka LANDSSAMTÖKIN HEIMILI OG SKÓLI Heimili og skóli – landssamtök foreldra eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum. Foreldrar og forráðamenn barna geta gerst félagar í Heimili og skóla og aðrir geta gerst styrktarfélagar. Samtökin veita ráðgjöf til foreldra og foreldrasamtaka og gefa út tímarit og ýmiss konar efni um foreldrastarf. Samtökin voru stofnuð 17. september 1992. Markmið þeirra er að stuðla að bættum uppeldis- og menntunar- skilyrðum barna og unglinga. Þúsundir foreldra eru félagar í Heimili og skóla og með stuðningi þeirra hefur tekist að byggja upp þjónustu við foreldra og félög þeirra.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.