Fréttablaðið - 17.09.2012, Page 55

Fréttablaðið - 17.09.2012, Page 55
MÁNUDAGUR 17. september 2012 23 Björg Júlíana Árnadóttir sýnir olíumálverk sín í Kirsuberja- trénu við Vesturgötu 1 um þessar mundir. „Að þessu sinni hef ég tekið form blóma með það í huga að manneskjur, og þá konur sér- staklega, eiga ýmislegt sam- eiginlegt. Og ég reyni að tengja konuna við blómin á ljóðrænan máta,“ segir Björg Júlíana. „Ég byrjaði að mála af fullum krafti 2008, eftir að ég missti vinnuna en ég vann í banka. Þá fór ég í Myndlistarskóla Kópa- vogs auk þess sem ég fór í nám í Iðnskólanum í Hafnarfirði á lista- og hönnunarbraut,“ segir Björg Júlíana og bætir við að hún deili vinnustofu með nokkrum konum og þangað fái þær til sín góða leiðbeinendur. Björg hefur áður sýnt verk sín. „Ég hef haldið einkasýn- ingar á landsbyggðinni og tekið þátt í samsýningum með Grósku, sem er félag myndlistarmanna í Garðabæ. Í sumar bauð ég hóp kvenna í sumarbústað upp í sveit í teboð og sýndi myndirnar mínar. En núna eru verkin komin í Kirsuberjatréð og verður von- andi vel tekið,“ segir hún að lokum. Sýningin stendur til 24. sept- ember og er opin á verslunar- tíma. -bs Konur og blóm í Kirsuberjatrénu BJÖRG JÚLÍANA ÁRNADÓTTIR Konan og blómin nefnist sýning hennar í Kirsuberja- trénu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Feilspor eða fjárfesting til framtíðar? SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og SH – Samtök heilbrigðisfyrirtækja boða til opins morgunverðarfundar fimmtudaginn 20. september næstkomandi kl. 8.30 í Hvammi, Grand Hóteli. Frummælendur fundarins eru: Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítala. Í kjölfarið eru pallborðsumræður, þar sem viðhorf stjórnmála- flokkanna til fjárhagslegrar hagkvæmni verkefnisins eru reifuð af: Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, Samfylkingu Unni Brá Konráðsdóttur, Sjálfstæðisflokki Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, Framsóknarflokki Birni Vali Gíslasyni, Vinstri hreyfingunni – grænu framboði Þór Saari, Hreyfingunni. Fundarstjóri er: Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ. Þátttökugjald með morgunverði er 2.500 krónur. Skráning á svth@svth.is eða í síma 511 3000. Skráning og morgunverður hefjast kl. 8.00. Allir velkomnir. ÞJÓÐIN BYGGIR SPÍTALA Bækur ★★★ Næturóskin Höfundur: Anne B. Ragde. Hjalti Rögnvaldsson þýddi. Mál og menning Töffari missir kúlið Anne B. Ragde varð í einni svipan einn mest lesni höfundur á Norðurlöndum með þrílógíu sinni um Berlínaraspirnar sem seinna urðu að geysivinsælli sjónvarps- seríu þar sem ættarsagan og átök kynslóðanna voru í forgrunni. Í Næturóskinni rær hún á dálítið önnur mið. Söguhetjan, tón- listarblaðamaðurinn Ingunn, er nútímakona fram í fingurgóma, vel stæð, í góðu starfi, stjórnar lífi sínu sjálf og stundar kynlíf, mikið kynlíf, með hverjum sem henni sýnist. Kynlíf er í hennar augum uppspretta unaðar og gleði svo framarlega sem ekki er verið að flækja það með klístruðum tilfinningaflækjum og skuldbind- ingu. Einstaka sinnum hættir hún sér út í fast samband en er fljót að forða sér um leið og henni finnst áhugi hins aðilans dala. Höfnun er ekki á hennar matseðli. En auðvitað þjáist hún af undirliggjandi óham- ingju. Guð forði því að kona sem lifir á eigin forsendum geti verið ánægð. Það verður að dubba upp handa henni draumaprins, einn með öllu; barni, hundi og litlu og sætu húsi. Nema hvað. Sagan er alfarið sögð út frá hennar sjónarhorni og samskipti hennar við kynlífsfélagana og hinar konurnar í vinnunni ein- kennast af þörf fyrir að sýna og sanna að hún hafi fullkomið vald á öllum aðstæðum. Efasemdar- köstin þegar hún er ein heima, kannski á fjórða ginglasi, skapa hárfína spennu og sársaukinn sem undir liggur er einungis gefinn í skyn, aldrei orðaður beint þannig að lesandinn fyllist forvitni og löngun til að vita meira um þessa konu og fortíð hennar. Persóna Ingunnar er dásamlega vel skrifuð, alltaf stutt í húmorinn þótt undirtónninn sé sár og töffaraandlitið sem hún sýnir umheiminum virkar gegnheilt og sannfærandi. Ófullnægja hennar og efasemdir um eigið ágæti og lífsstíl virka dálítið minna sannfærandi og hinn dísæti og skærrauði ástarsöguendir kemur eins og blaut og illa lyktandi dula í andlit lesandans. Ragde er frábær stílisti og sögumaður, kann að skammta upplýsingar í réttu magni til að viðhalda áhuga lesandans og samtölin eru með því besta sem undirrituð hefur lesið langa lengi. Dásamleg kaldhæðnin og skerandi sársaukinn vega salt og skapa jöfnu sem nánast er ómót- stæðileg. Textinn flæðir vel og vönduð þýðing Hjalta Rögnvalds- sonar skilar hverju blæbrigði með sóma. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Vel skrifuð og skemmtileg saga um eina skemmtilegustu kvenpersónu sem sést hefur á prenti langa lengi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.