Fréttablaðið - 17.09.2012, Page 62
17. september 2012 MÁNUDAGUR30
LÖGIN VIÐ VINNUNA
Árlega er alþjóðlega Alzheimersdagsins hinn
21. september minnst um heim allan.
Að þessu sinni mun FAAS beina sjónum að hjúkrunar-
heimilum framtíðarinnar, hvernig þau munu þróast og
hvaða áherslur ber að leggja í þeirri þróun.
FAAS býður í tilefni dagsins til málstofu á Grand Hóteli
föstudaginn 21. september 2012 kl. 17-19
Málstofa um
„Hjúkrunarheimili
framtíðarinnar“
- Munum þá sem gleyma -
„Lagið Disparate Youth með
Santigold setur yfirleitt tóninn
fyrir vikuna á mánudögum.“
Sunneva Sverrisdóttir, annar stjórnandi
þáttarins Tveir plús sex á Popptíví.
Kvikmyndin Djúpið verður frumsýnd í kvik-
myndahúsum í þessum mánuði og er leikskáldið
Jón Atli Jónasson handritshöfundur myndar-
innar. Hann skrifaði einnig handritið að Frosti,
sem frumsýnd var 7. september síðastliðinn, og
er leikskáld Borgarleikhússins.
Inntur eftir því hvort þetta hafi verið sér-
staklega annasamt ár svarar Jón Atli neitandi.
„Nei, það tekur langan tíma að gera bíómynd
á borð við Djúpið og ég lauk þeirri vinnu fyrir
nokkuð löngu síðan. Balti gerði aðra kvikmynd
í millitíðinni og því hefur þetta tekið sinn tíma.
Allir sem að henni standa eru þó ánægðir með
hvað vandað var til verka,“ segir Jón Atli og
kveðst spenntur fyrir frumsýningu Djúpsins.
„Ég hef séð myndina á vinnslustigum hennar og
er orðinn mjög spenntur að sjá hana í bíósal.“
Jón Atli er einnig að leggja lokahönd á
spennusögu sem hann hyggst gefa út fyrir
jól. Hann segir löngun ekki hafa ráðið því að
hann settist við skriftir á spennusögu heldur
hafi efniviðurinn valið formið. „Ég vann óvart
Gaddakylfuna í fyrra og ákvað í kjölfarið að
rannsaka þetta form betur. Þessi saga er ekki
unnin út frá vinningssögunni en er í sama anda
og fjallar um hrylling hversdagsins.“
Þetta er ekki fyrsta bók Jóns Atla því árið
2001 sendi hann frá sér smásagnasafnið Brot-
inn taktur og fyrsta skáldsaga hans Í frostinu
kom út árið 2005. Hann hefur þó helst vakið
athygli fyrir leikverk sín og vann meðal annars
Grímuverðlaunin fyrir leikritið Brim árið 2004.
Þegar Jón Atli er að lokum spurður út í fram-
tíðarverkefni sín er hann svarafár. „Það er
ýmislegt í vinnslu, meira get ég ekki sagt.“
- sm
Leggur lokahönd á spennusögu
IÐINN VIÐ KOLANN Jón Atli Jónasson hefur í nógu að
snúast. Hann skrifaði handritið að Frosti og Djúpinu
auk þess að vera leikskáld Borgarleikhússins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við höfum skipulagt fjölda brúð-
kaupa hérlendis fyrir samkyn-
hneigða ferðamenn en þetta var í
fyrsta skipti sem gagnkynhneigt
par leitaði til okkar,“ segir Eva
María Þórarinsdóttir Lange hjá
hinsegin ferðaþjónustufyrir-
tækinu Pink Iceland.
Pink Iceland var stofnað
snemma árs 2011 og sérhæfir sig í
að þjónusta samkynhneigða ferða-
menn sem vilja koma til Íslands.
Mjög fljótlega fóru þeim að berast
beiðnir frá samkynhneigðum
pörum sem óskuðu eftir aðstoð við
skipulagningu brúðkaupa og skuld-
bindingaathafna á Íslandi. Fyrir
tveimur vikum fékk Pink Iceland
þó hina óvenjulegu beiðni að taka
að sér skipulagningu á brúðkaupi
gagnkynhneigðs pars frá Banda-
ríkjunum og fékk til þess tíu daga.
„Við redduðum því að sjálfsögðu, á
íslenska mátann. Þau spurðu hvort
það væri vandamál fyrir okkur að
þau væru gagnkynhneigð en að
sjálfsögðu var það ekki, við erum
ekki með neina fordóma,“ segir
Eva María og hlær. Parið, Shandi
og Casey, hefur verið saman í
nítján ár og eiga von á sínu fyrsta
barni. Þau gengu í hjónaband á
Þingvöllum þann 3. september í
grenjandi rigningu. Fjölskyldum
þeirra var svo tilkynnt um það í
gegnum Skype seinna um kvöldið.
Í kjölfarið hélt parið svo í tíu daga
brúðkaupsferð um landið.
Aðspurð hvort Pink Iceland
muni í framhaldinu miða þjónustu
sína í meiri mæli að gagnkyn-
hneigðum segir Eva María það
ekki vera stefnuna. „Við erum með
okkar markhóp á hreinu og það er
hinsegin-hópurinn. Fyrirtækið er
samt rekið í fordómaleysi og við
tökum á móti öllum fagnandi,“
segir hún. „Ætli viðeigandi mottó
fyrir okkur sé ekki Allt fyrir
ástina,“ bætir hún við og hlær.
Að sögn Evu Maríu var ætlunin
EVA MARÍA: PINK ICELAND ANNAST BRÚÐKAUP GAGNKYNHNEIGÐS PARS
Ekki með neina fordóma
gegn gagnkynhneigðum
Hingað til hefur Pink Iceland komið að undirbúningi tólf
brúðkaupa, en aðeins er rúmt ár síðan það fyrsta kom inn
á borð til þeirra. Eva María segir þó misjafnt hversu mikið
þau koma að skipulagningunni. „Í sumum brúðkaupum
gerum við allt frá nafnspjöldum og boðskortum en í
öðrum aðstoðum við að minna leyti, til dæmis bara
með tónlist og skreytingar,“ segir hún en nokkur
íslensk pör hafa einnig leitað eftir aðstoð frá
þeim. Þegar erlend pör eru annars vegar gengur
Pink Iceland svo langt í þjónustunni að sjá um
alla pappírsvinnu fyrir brúðhjónin líka.
ÍSLENSK BRÚÐKAUP LÍKA
með stofnun Pink Iceland aldrei
sú að fara í brúðkaupsbransann.
Það hafi gerst alveg óvart en sé
nú orðið með þeirra helstu verk-
efnum. „Við erum í rauninni búin
að búa til hliðarhugmynd án þess
að hafa ætlað okkur það. Þetta eru
samt með okkar allra skemmti-
legustu verkefnum þó þeim fylgi
mikil nákvæmnisvinna og þau geti
valdið miklu stressi,“ segir hún
hlæjandi. tinnaros@frettabladid.is
GAGNKYNHNEIGT BRÚÐKAUP Shandi og Casey nýttu sér þjónustu hinsegin ferða-
þjónustufyrirtækisins Pink Iceland við undirbúning brúðkaups síns. MYND/KRISTÍN MARÍA
Breski listamaðurinn Tracey
Moberly verður á meðal fyrir-
lesara á alþjóðlegu ráðstefnunni
You Are In Control sem verður
haldin í fimmta sinn í Hörpu 4. til
6. nóvember. Ráðstefnan snertir
allar hliðar skapandi greina, svo
sem mat, tölvutækni, bókmenntir,
hönnun, tónlist, kvikmyndagerð,
tölvuleikjagerð og viðskipti.
Moberly mun fara yfir verkefnið
sitt Text Me Up!. Það er samantekt
á persónulegum sms-sendingum,
margar frá frömuðum innan list-
heimsins, sem teknar hafa verið
saman í bók. „Ég er mjög ánægð
með að hafa verið boðið að flytja
erindi á You Are In Control 2012
og hlakka mikið til að kynnast fjöl-
breytileika íslenskra listamanna
og skapandi fólks,” segir Moberly.
„Þetta er fullkominn vett vangur
til að skoða hlutverk skapandi
fólks þegar litið er á áskoranir og
tækifæri sem mannfólkið stendur
frammi fyrir næstu tíu árin.“
Roberta Lucca frá tölvuleikja-
fyrirtækinu Bocca Studios heldur
einnig fyrirlestur á ráðstefnunni.
Lucca mun tala um tvö lykilverk-
efni sem Bossa vinnur að þessa
dagana, eða Bafta-verðlaunaverk-
efnið Monstermind sem er Face-
book-app sem leyfir þátttakendum
að byggja sinn eigin bæ, og Merlin
The Game sem er leikur byggður
á samnefndri sjónvarpsþáttaröð og
kemur út í október.
SMS-skilaboð og
Merlin-leikur
TRACEY MOBERLY Listamaðurinn verður
á meðal fyrirlesara á You Are In Control.
MYND/JOHNNY GREEN
Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til skemmtilegt og
einstakt skart undir heitinu Salkasvan og selur á sam-
skiptavefnum Facebook. Salka er aðeins fjórtán ára
gömul en segist hafa saumað og skapað með ömmu
sinni frá tveggja ára aldri.
„Ég hef alltaf haft gaman af því að sauma og föndra.
Amma mín er saumakona og ég hef saumað með henni
síðan ég var tveggja ára gömul. Ég heimsæki hana
alltaf á sunnudögum og einn daginn fann ég pínulitlar
dúkkur heima hjá henni og datt í hug að það gæti verið
flott að búa til eyrnalokka úr þeim,“ útskýrir Salka
sem segist föndra skart úr hvers kyns smáhlutum.
Sjálf getur hún ekki notað eyrnalokka og því datt henni
í hug að mynda lokkana og setja á Facebook ef vera
skyldi að öðrum litist á þá.
„Ég get ekki notað eyrnalokka en hélt kannski að
annað fólk gæti viljað þetta. Ég hef selt þrjú pör hingað
til.“
Salka er fjórtán ára gömul og í 9. bekk í grunnskóla.
Hún er dóttir Svanhvítar Tryggvadóttur hárgreiðslu-
konu og stjúpdóttir Georgs Hólm tónlistarmanns.
Aðspurð segist hún gjarnan vilja læra einhvers konar
hönnun í framtíðinni. „Ég hef rosalega gaman af tísku
og hönnun og myndi annað hvort vilja læra fata- eða
skartgripahönnun, ég hef mest gaman af því.“
Innt eftir því hvort hún eigi sér önnur áhugamál en
hönnun svarar hún játandi: „Ég hangi mest með vinum
mínum en hef líka gaman af því að teikna.“
Þeir sem hafa áhuga á að skoða skartið hennar Sölku
er bent á síðuna Salkasvan á Facebook. - sm
Býr til skart úr smáhlutum
SKAPANDI STÚLKA Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til
skemmtilegt skart úr smáhlutum og selur á Facebook.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN