Fréttablaðið - 04.10.2012, Side 1

Fréttablaðið - 04.10.2012, Side 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur skoðun 18 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Sjúkraþjálfun & stoðtæki 4. október 2012 233. tölublað 12. árgangur É g fékk samning við Elite Iceland og komst inn í 12 manna úrslit í keppninni. Ég hef brennandi áhuga á tísku og öllu sem við henni kemur,“ segir Ragnheiður, sem svaraði nokkrum tískutengdum spurningum fyrir blaðið. Er mikill tískuáhugi í skólanum? Já, ég myndi segja það. Í Verzló hefur alltaf verið mikið um tískuáhugafólk. Það er gaman að fylgjast með Verz-lingum og sjá hvernig flestallir ganga um í sömu fötunum en mynda svo sinn eigin persónulega stíl út frá því. Er mikið rætt um tísku meðal vina þinna? Við vinkonurnar tökum ein-staka spjall um nýjustu tískustraum-ana og hverju okkur langar til að bæta í fataskápinn. Við erum samt allar með rosalega ólíkan stíl og ekki alltaf sam- mála um hvað er fallegt og ekki fallegt. Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku? Áhuginn hefur aukist með árunum og eftir að ég byrjaði í Verzló. Ég hef verið dugleg að skoða tískublogg og það er skemmtilegt að fylgjast með götu-tískunni í Reykjavík og fá innblástur þaðan. Er einhver flík sem þú stenst ekki? Það er alltaf erfitt að standast freist-inguna þegar ég sé fallega skó. Ég er vandlát á skó og finn sjaldnast neina hér á landi sem henta mér. Langflest pörin mín hef ég pantað í gegnum net- ið eða hann elsku pabbi minn kaupir fyrir mig í London, en þangað fer hann oft í vinnuferðir. Eftirlætis-/nýjasta flíkin? Í lok sumars fór ég til Kaupmannahafnar og keypti mér margar flottar flíkur. En í uppáhaldi verð ég að segja að sé svarta kápan úr Monki. Uppáhalds uppáhaldi. Mér finnst mjög gaman að gramsa og finna einh MEÐ BRENNANDI ÁHUGA Á TÍSKUTÍSKUMÆR Ragnheiður Björnsdóttir er á lokaári í Verzlunarskóla Íslands. Ragnheiður hóf fyrirsætustörf í byrjun síðasta árs þegar hún var beðin um að koma í prufur fyrir Elite Model Look Iceland 2011. U Á BLEIKUR OKTÓBERÞar sem nú er bleikur mánuður og árvekni gegn brjósta- krabbameini í fullum gangi er ekki úr vegi að klæðast einhverju bleiku. Bleikir skór vekja örugglega athygli og ættu að minna á þennan baráttumánuð. til dæmis þessi glæsilegi push up BH á kr. 4.500,- TILBOÐ - STAKAR STÆRÐIR Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is Einnota latex hanskar Kynningarblað Spelkur, öryggishnappar, nýjar rannsóknarniðurstöður, bætt færni og lífsgæði SJÚKRAÞJÁLF N FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 &STOÐTÆKI Kaup hlaup 4.–8. október Opið til 21 í kvöld Fyndin, snjöll og fáguð Á förum til Færeyja Sif Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Norræna hússins í Færeyjum til fjögurra ára. tímamót 26 FÓLK „Það er aldrei nóg af söng og gleði,“ segir Sigurgeir Ingi Þorkelsson, varaforseti nem- endafélags Menntaskólans við Hamrahlíð og einn forsprakka nýstofnaðs Glee-klúbbs í skólan- um. Klúbburinn er að fyrirmynd bandarísku sjónvarps- þáttanna Glee sem fjalla um hóp ungs fólk í menntaskóla sem sameinast í söng og dansi. „Fyrst var hugmyndin sett fram meira í gríni en alvöru, en vegna fjölda áskorana var ákveð- ið að hrinda henni í framkvæmd. Yfir hundrað manns hafa boðað komu sína á fyrsta fundinn,“ segir Sigurgeir, en téður stofnfundur verður haldinn í dag klukkan hálf fjögur. - áp / sjá síðu 50 Grín varð fúlasta alvara: Yfir 100 vilja í Glee-klúbbinn SIGURGEIR INGI ÞORKELSSON MENNTUN Hlutgerving stúlkna í myndefni framhaldsskólablaða hefur aukist undanfarin ár. Þetta er niðurstaða rannsóknar Jóns Ingvars Kjaran, doktorsnema á Menntavís- indasviði HÍ. „Kynslóðin sem kemur inn í framhalds- skólana 2007 og eftir það er hin svokallaða „klámkynslóð“, þannig að ég er svona að skoða hvort draga megi einhverjar ályktanir út frá því,“ segir Jón Ingvar. Hann segir kynjamismunun hafa minnkað í myndefni skólablaðanna um 2005 en nú færist hún aftur í vöxt. Í fyrirlestri á Menntakviku Menntavísindasviðs á morgun mun Jón Ingvar kynna rannsókn sína. - fsb / sjá síðu 30 Kynjunum mismunað á ný: Klámkynslóðin í ritnefndirnar? STYTTIR UPP Í dag verða norð- austan 5-10 m/s. Minnkandi úrkoma NA-lands og víða bjart veður syðra. Hiti 3-10 stig, mildast syðst. VEÐUR 4 5 4 4 9 7 Dagur ljóðsins Dagur Hjartarson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. menning 32 Aron valinn í landsliðið Markahæsti leikmaður dönsku deildarinnar er eini nýliðinn í hópi Lagerbäck. sport 44 JÓN INGVAR KJARAN ÖRYGGISMÁL Á annað þúsund sprengjur og skot hafa fundist við hreinsunarstarf Landhelgisgæsl- unnar á Reykjanesi síðustu fimm ár. Sigurður Ásgrímsson, deildar- stjóri hjá Gæslunni, segir starfið hafa gengið vel og átakinu ljúki senn. Skýrsla um framvinduna er væntanleg innan skamms. „Við erum búnir að gera mikið átak í samstarfi við Kadeco, Þró- unarfélag Keflavíkurflugvallar, um að hreinsa svæðin næst Kefla- vík, sem voru nýtt sem skotæfinga- svæði í stríðinu og eftir það, og það hefur gengið þokkalega vel. Auð- vitað er alveg útilokað að lýsa því yfir að svæðið sé orðið fullkom- lega hreint, en allavega hefur mikið unnist í þessu.“ Yfir þúsund sprengjur fundnar á Reykjanesi Á annað þúsund sprengjur og skot hafa fundist síðustu fimm ár á fyrrum æfinga svæðum varnarliðsins á Reykjanesi. Sprengjuleitarátaki þar er nú að ljúka og hægt að hefja uppbyggingu á svæðunum. Skýrsla um málið væntanleg. ■ Gæslan brýnir fyrir fólki sem finnur grunsamlega hluti að hreyfa alls ekki við þeim, heldur hafa samband við Gæsluna eða Neyðarlínuna í síma 112. Hætta á ferð kúlur, sprengjuvörpusprengjur og svo skot af öllum stærðum,“ segir Sigurður. Hann segir mikið af því sem finnist vera virkar sprengjur sem mikil hætta stafi af. „Sprengjurnar virkjast við að vera skotið, en tíu til tólf prósent af þeim sem skotið er virka ekki í fyrstu, af einhverri ástæðu. Þannig liggja þær, kannski í allt að 60 ár, bæði ofan jarðar og neðan. Þá er þetta orðið mjög tært, en kúlan er þá í fínu lagi og sprengiefnið líka, og þá er það orðið mjög hættulegt.“ Sigurður segir ástandið nú vera orðið nokkuð gott á svæðunum og ætti ekkert að koma í veg fyrir uppbyggingu, til dæmis á Patter- son-svæðinu sem liggur neðan við gamla varnarsvæðið, Ásbrú. - þj SKÓLAMÁL Háskóli Íslands er kominn í 176. sæti á lista Times Higher Education yfir bestu háskóla heims, sem birtur var í gærkvöld. „Þetta er mikilvæg og góð staðfesting á því starfi sem hefur verið unnið innan skólans,“ segir Kristín Ingólfsdóttir lektor, „því samkeppnin er gríðarlega hörð. Metnir eru sautján þúsund háskólar og við lendum í efstu tveimur prósentunum.“ Skólinn komst í fyrsta sinn inn á þennan lista í fyrra og er nú sex sætum ofar en þá. „Við fundum það strax í fyrra hvað þetta skiptir miklu máli á við- horfi til dæmis samstarfsaðila okkar erlendis til skólans. Svo skiptir þetta ekki síst máli fyrir stúd- entana okkar, jafnt innlenda sem erlenda.“ Til grundvallar matinu eru lagðir allir helstu starfsþættir háskóla en megináherslan er á kennslu, námsumhverfi, umfang rannsókna og áhrif þeirra á alþjóðlegum vettvangi. - gb Háskóli Íslands færist ofar á lista Times Higher Education yfir bestu háskóla heims: Hefur áhrif á viðhorf til skólans BLEIKAR BARÁTTUKONUR Valsstúlkur klæddust bleikum búningum þegar þær tóku á móti Snæfelli í fyrstu umferð í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í gær. Uppátækið og tengd fjársöfnun er til styrktar átaki Krabbameinsfélags Íslands, Bleiku slaufunni. Stúlkurnar leika í bleiku út mánuðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Svæðin sem um ræðir eru Vogaheiði og svæðið í kring- um Patterson-flugvöll, en þar stóð bandaríski herinn fyrir skot- æfingum allt fram til ársins 1960. Hreinsunarsvæðið er afar víð- feðmt, á Vogaheiði er rætt um fimmtán ferkílómetra og Patterson- svæðið er um tólf ferkílómetrar. „Þetta eru mikið til fallbyssu-

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.