Fréttablaðið - 04.10.2012, Side 2

Fréttablaðið - 04.10.2012, Side 2
4. október 2012 FIMMTUDAGUR2 Alveg mátulegur Heimilis GRJÓNAGRAUTUR H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA REYKJAVÍKURBORG Fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingar sem saman mynda meirihluta borgar- stjórnar samþykktu á þriðjudag að útilistaverkið Svarta keilan yrði á suðvesturhorni Austurvallar eins og safnstjóri Listasafns Reykja- víkur lagði til. Listamaðurinn Santiago Sierra gaf borginni Svörtu keiluna með því skilyrði að það stæði á Aust- urvelli. Verkið, sem er innblásið af búsáhaldabyltingunni, er sagt vera minnismerki um borgaralega óhlýðni. Alþingi hefur lýst eindreginni andstöðu við staðsetningu Svörtu keilunnar á Austurvelli. Minni- hlutinn í borgarstjórn er á sömu línu. Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir verkið tengjast óeirðum veturinn 2008 til 2009. Þó að flestir sem hafi mótmælt við Alþingishúsið á þeim tíma hafi gert það með frið- samlegum hætti hafi ofbeldi verið beitt og lögregluþjónar særðir. „Þó í kannski ekki miklum mæli hafi verið – og í rauninni með hót- unum um ofbeldi – þá var löglega kjörin ríkisstjórn hrakin frá völd- um,“ segir Kjartan, sem kveðst vona að slíkir atburðir endurtaki sig aldrei. „Mér finnst í rauninni bara síst ástæða til að minnast þess með einhverju sérstöku minn- ismerki. Að minnsta kosti hefði mátt finna því annan stað; það hefði ekki átt að vera sett niður á þessum helga stað þjóðarinnar.“ Sóley Tómasdóttir úr Vinstri grænum sagði á borgarstjórnar- fundinum á þriðjudag að jákvætt væri að tengja saman list og borg- aralega óhlýðni, sem væri nauð- synleg. „Það verk sem nú stendur til að staðsetja á Austurvelli getur þó ekki talist hentugt til þessa, enda er þannig verið að hampa lista- manni sem hefur markvisst leik- ið sér í krafti sterkrar efnahags- legrar og samfélagslegrar stöðu að mörkum sjálfsvirðingar hjá fólki sem ekki er í stöðu til að afþakka smánarleg tilboð hans um niður- lægingu gegn gjaldi,“ bókaði Sóley. Kjartan tekur undir þetta: „Hann var að kaupa ógæfusama einstaklinga og vændiskonur til þess að húðflúra á bakið á þeim. Mér finnst það nánast vera mann- réttindabrot í sjálfu sér hvernig hann kemur fram við fólk. Mér finnst það ekki viðeigandi að lista- verk sem fer á mest áberandi og einhvern helgasta stað þjóðarinn- ar eigi að vera unnið með þeim hætti.“ Kosið verður til borgarstjórnar að nýju næsta vor. Spurður hvort hugsanlegur nýr meirihluti myndi fjarlægja listaverkið segir Kjart- an ekki hægt að segja til um það núna. „Þetta er ákveðin niðurstaða og síðan er að sjá hvernig þetta kemur út.“ gar@frettabladid.is Svarta keilan tákn um ofbeldi á helgum stað Borgarfulltrúi segist „síst sjá ástæðu“ fyrir minnismerki um ofbeldi á einum „helgasta stað“ þjóðarinnar. Í mótmælunum á Austurvelli hafi lögreglumenn særst og löglega kjörin ríkisstjórn verið hrakin frá undir hótunum um ofbeldi. SVARTA KEILAN OG BÚSÁHALDABYLTINGIN Staðsetning listaverks Santiagos Sierra um borgaralega óhlýðni á Austurvelli vekur hörð viðbrögð hjá Alþingi og minnihlut- anum í borgarstjórn Reykjavíkur. SAMSETT MYND VERSLUN Verslunarkeðjan Iceland hefur tekið húsnæði Europris við Fiskislóð í vesturbæ Reykjavíkur á leigu og mun opna þar nýtt útibú 1. desember. Í næsta nágrenni eru verslanir Bónuss og Krónunnar. Jóhannes Jónsson kaup- maður seg- ist ekki vera hræddur við samkeppn- ina. „Nei, nei. Maður verður bara að vanda sig,“ segir hann. Iceland opn- aði fyrstu verslunina í Engihjalla í Kópavogi í lok júlí og verður áformuð verslun önnur verslunin sem Jóhannes opnar undir merkj- um Iceland á Íslandi. Á þriðjudag var tilkynnt að verslunum Europris ætti að loka og að 50 starfsmenn verslunar- innar myndu að lokinni rýming- arsölu missa vinnuna. - bþh Jóhannes í Iceland: Opnar Iceland í Vesturbænum JÓHANNES JÓNSSON LÖGREGLUMÁL Tveir menn í annar- legu ástandi voru handteknir í Mjóddinni í gær eftir að hafa hnuplað úr apóteki og reynt hið sama í verslun Nettó. Mennirnir voru bersýni- lega ekki allsgáðir og voru með háreysti svo að starfsfólki og við- skiptavinum stóð stuggur af þeim. Lögreglumenn, sem kvaddir voru á vettvang, höfðu upp á mönn- unum og létu þá skila stolnu vör- unum. Jafnframt var grunur um að þeir hefðu komið á staðinn á stolnum bíl. - sh Í annarlegu ástandi með læti: Tveir hnuplarar teknir í Mjódd DÓMSMÁL Már Guðmundsson seðlabankastjóri fær laun sín ekki leiðrétt. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp úrskurð í máli Más gegn Seðlabankanum í gær. Seðlabankinn var sýknaður af kröfum Más um að launalækkun hans yrði ógilt. Már stefndi Seðlabank- anum í byrjun árs en þá höfðu lög verið sett um að laun ríkisstarfsmanna mættu ekki vera hærri en laun forsætisráðherra. Um laun Más var samið í ágúst 2009. Í sama mánuði var kjararáði falið að ákvarða laun seðlabankastjór- ans í samræmi við kjaralög stjórnenda ríkisins. Þarna telur Már að lögunum hafi verið beitt afturvirkt og á þeim forsendum krefst hann ógildingar stjórnvalds- ákvörðunar kjararáðs. Andri Árnason, lögmaður Más, segir að fara þurfi yfir réttarstöðu embættismanna sem skipaðir eru til fimm ára. Svo virðist vera sem réttarstaða þeirra sé ekki sú sama og þeirra embættismanna sem hafa almennan uppsagnarfrest. Spurður hvort ákvörðun hafi verið tekin um að áfrýja dómnum segir hann að svo sé ekki. „Við förum yfir dóminn og tökum ákvörðun um áfrýjun innan tíðar. Skoða þarf rökstuðning dóms- ins fyrir afstöðu til réttarstöðu embættismanna með fimm ára skipunartíma og sem um var deilt í málinu,“ segir Andri. - bþh Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfum Más Guðmundssonar seðlabankastjóra: Seðlabanki Íslands sýknaður SEÐLABANKASTJÓRI Már Guðmundsson þarf að gera sér laun sem ekki eru hærri en laun forsætisráðherra að góðu áfrýi hann dómnum ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DÓMSMÁL Ummæli Þórs Saari þing- manns um að Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, „hafi verið á launum hjá LÍÚ í áratugi“ hafa verið dæmd dauð og ómerk. Þór þarf jafn- framt að greiða Ragnari 300 þús- und krónur í miskabætur vegna ummælanna og 800 þúsund í máls- kostnað. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp úrskurð sinn í gærmorgun um að fullyrðing Þórs væri röng. Mat dómsins er að röng fullyrðing geti ekki með nokkru móti verið heimil tjáning, átt erindi til almennings eða verið liður í gagnrýni og ádeilu á starf Háskóla Íslands eins og Þór heldur fram. Dómurinn segir jafnframt að ummæli Þórs í garð Ragnars séu tilhæfulaus, óviðurkvæmileg og ærumeiðandi í því samhengi sem þau voru birt í fréttum DV sjöunda og áttunda september í fyrra. Þór er þingmaður Hreyfingar- innar. Hann lét ummælin falla í tengslum við umræðu um sjávar- útvegsmál. Dómurinn hafnar því enn fremur að upplýsingarnar sem Þór gaf DV „endurspegli umræðu sem sé fræðandi og upplýsandi og auki skilning almennings á fjöl- mörgum þáttum sjávarútvegs og hvað þá að ummæli stefnda geti verið liður í almennri þjóðfélags- umræðu um málið“. - bþh Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í máli Ragnars Árnasonar gegn Þór Saari: Ummæli Þórs dæmd ómerk ÞÓR SAARI RAGNAR ÁRNASON NORÐURLÖND Helgi Hjörvar alþingismaður hefur spurt ríkis- stjórnir hinna Norðurlandanna um það hvers vegna Íslandi bjóð- ast lægri vaxta- kjör en Írlandi. Helgi, sem er formaður Íslandsdeildar Norðurlanda- ráðs og efna- hags- og við- skiptanefndar Alþingis, bend- ir á að kjör á láni Norðurlandanna til Íslands séu þriggja mánaða EURIBOR- vextir að viðbættu 2,75 prósenta álagi. Danmörk og Svíþjóð hafi hins vegar gert tvíhliða lána- samninga við Írland þar sem vaxtakjör séu EURIBOR-vextir og eins prósents álag. Helgi spyr hvort Norðurlöndin hyggist endurskoða vaxtakjörin á láni Íslands, sérstaklega í ljósi þess að skuldatryggingarálag Íslands sé lægra en Írlands. - gb Helgi Hjörvar furðar sig: Íslandi buðust verri lánakjör HELGI HJÖRVAR FRAKKLAND Saksóknari í Frakk- landi hefur hætt rannsókn á máli Dominique Strauss-Kahn, fyrr- verandi yfirmanns Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, sem var grunaður um að hafa tekið þátt í hópnauðg- un í New York. Belgísk kona hefur dregið vitn- isburð sinn til baka og þar með telur saksóknari ekki lengur for- sendu fyrir ákæru í málinu. Strauss-Kahn á þó enn yfir höfði sér málaferli vegna gruns um að hann hafi tengst vændis- hring sem teygði anga sína bæði til Belgíu og New York. Sjálfur vísar hann öllum ásök- unum um aðild að vændishring á bug. - gb Rannsókn hætt í einu máli: Strauss-Kahn andar léttar TYRKLAND Tyrkneski herinn varp- aði sprengjum á skotmörk í Sýr- landi í gærkvöldi. Árásin var svar við sprengju- árás sýrlenska stjórnarhersins á tyrkneskan landamærabæ, þar sem fimm létust, þar af kona og þrjú börn hennar. Þetta er í fyrsta skipti sem Tyrkland svar- ar árásum frá Sýrlandi. „Tyrkland mun aldrei láta slíka ögrun sýrlenskra stjórn- valda gegn þjóðaröryggi okkar óátalda,“ sagði Recep Erdogan forsætisráðherra í yfirlýsingu. Árás Sýrlendinga var fordæmd víða um heim, meðal annars af aðalriturum Sameinuðu þjóðanna og NATO. - þj / sjá síðu 8 Kaflaskil í átökum í Sýrlandi: Tyrkland svarar í sömu mynt SPURNING DAGSINS Verið að hampa listamanni sem hefur markvisst leikið sér í krafti sterkrar efnahags- legrar og sam- félagslegrar stöðu að mörkum sjálfsvirðingar hjá fólki. SÓLEY TÓMASDÓTTIR BORGARFULLTRÚI VG Guðrún, verður þetta gagnlegt fyrir Hafnfirðinga? „Já, þeir munu vonandi hafa gagn og gaman af.“ Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir er bæjarstjóri í Hafnarfirði. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa innleitt nýjar reglur um birtingu gagna með fundargerðum til að auka gagnsæi í stjórnsýslu bæjarins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.