Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 10

Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 10
4. október 2012 FIMMTUDAGUR10 HÚS Á HVOLFI Í Lille í Frakklandi má sjá þetta „Hús sem féll af himnum ofan“, eins og listamaðurinn Jean- Francois Fourtou kallar verkið. NORDICPHOTOS/AFP LANDBÚNAÐUR Þingmaður Dana á Evrópuþinginu, Bendt Bendt- sen, sem er fyrrverandi atvinnu- málaráðherra Danmerkur, vill að sendiherra Noregs hjá Evr- ópusambandinu, ESB, verði kall- aður inn á teppið vegna tillagna norsku ríkisstjórnarinnar um breytta tolla á ýmsum landbún- aðarvörum. Á viðskiptavefnum e24.no er vitnað í viðtal Bendt- sen við Nationen þar sem hann kveðst njóta stuðnings sænskra, þýskra og hollenskra þingmanna á Evrópuþinginu. Bendtsen segir að tilraunir til þess að hafa áhrif á sendiherra Noregs hjá ESB, Atle Leikvoll, hafi verið eins og að skvetta vatni á gæs. „Það er greinilegt að Norðmenn bera ekki virðingu fyrir neinu nema fiski.“ Þingmaðurinn kveðst vinna að því að fá í gegn viðbrögð á þeim vettvangi. Fulltrúar sjávarút- vegsfyrirtækja í Noregi óttast viðbrögð ESB við fyrirhuguðum tollabreytingum. Norska ríkisstjórnin hefur lagt til að settur verði á prósentutoll- ur í stað krónutolls á nautafillet, lambakjöt og harða osta. Gert er ráð fyrir að breytingarn- ar taki gildi um á ra mót . Trygve Vedum landbúnaðar- ráðherra segir að markmið- ið sé að auka matvælafram- leiðslu í Noregi um 20 prósent á næstu árum. Þess vegna sé prósentutollur á vissar landbúnaðarvörur nauð- synlegur. Sendiherra ESB í Noregi, János Herman, hefur afhent Vedum bréf framkvæmdastjóra landbún- aðarmála hjá ESB, Dacian Ciolos, þar sem hann lýsir yfir áhyggjum sambandsins vegna tollabreyt- inganna. Norskur lagaprófessor, Fredrik Sejersted, segir breytingar sem leiða til hækkunar tolla brjóta í bága við anda 19. gr. EES-samn- ingsins. Samkvæmt skýrslu OECD njóta norskir bændur mestra landbúnaðarstyrkja. - ibs Hörð viðbrögð ESB við tillögum norsku ríkisstjórnarinnar um aukna tollvernd landbúnaðarafurða: Þingmaður Dana vill fá sendiherra inn á teppið BENDT BENDTSEN 50 ERLENDAR STÖÐVAR Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 FORBRYDELSEN Þriðja og síðasta þáttaröðin hefst á DR 1 á sunnudaginn kl. 18.00 MENNTUN Mikilvægt er að standa vörð um Háskóla Íslands (HÍ) þar sem hann sinnir kennslu í öllum greinum. Þetta segir Katrín Jak- obsdóttir menntamálaráðherra í samtali við Fréttablaðið aðspurð um gagnrýni Ara Kristins Jóns- sonar, rektors Háskólans í Reykja- vík (HR), vegna misræmis í nið- urskurði í framlögum milli HR og ríkisháskólanna. „Ef litið er á tölur um niðurskurð í framlögum til háskólanna sýna nið- urstöðutölur að minna hefur verið skorið niður hjá HÍ, en á móti kemur að skólinn er bæði búinn að taka á sig önnur verkefni og nemendum þar hefur fjölgað langmest,“ segir Katrín. Fram kom hjá Ara að 17,4 pró- senta lækkun hefði orðið á framlög- um til HR frá 2009, fært til núvirð- is, fram að fjárlagafrumvarpi 2013. Niðurskurðurinn hjá HÍ hefði verið 0,7 prósent. „Það má fara út í alls konar talnaleikfimi,“ segir Katrín, „en niðurskurðurinn á fjárlögum fyrir háskóla frá 2009 til 2012 er þrír milljarðar sem fara út úr kerfinu.“ Hún bætir því við að meðal þess sem HÍ hafi tekið á sig og hafi fylgt aukin framlög séu verkefni tengd aldarafmæli skólans auk þess sem fjölgun nemenda hafi verið langtum meiri í HÍ en öðrum skólum. „Síðan er ekkert launungarmál að mér finnst mikilvægt að verja HÍ sem þann skóla sem sinnir kennslu í öllum greinum, og hafa framlög til hans þó verið skorin niður um tæpa 2,2 milljarða.“ Ari benti á það að HR skilaði flestum nemendum í tæknigrein- um, sem væru afar eftirsóttir fyrir atvinnulífið. Engu að síður fengi skólinn minni fjárframlög á hvern nemanda en HÍ. Katrín svarar því til að þetta megi skýra með því að framlög á hvern nemanda fari eftir náms- greinum, ekki skólum, og sé mikill munur þar á, allt frá 500.000 krón- um á ári fyrir ódýrustu nemendurna upp í 2,6 milljónir fyrir tannlækna- nema. Þannig fylgi verkfræðinem- anda sama framlag í HR og HÍ. „Stóri punkturinn í þessu öllu saman er að við höfum verið að skera niður í háskólakerfi sem var undirfjármagnað fyrir. Ef við berum okkur saman við OECD- löndin erum við undir meðaltali í framlögum á hvern nema og það er staðreynd sem virðist stundum gleymast. HR hefur unnið mjög gott starf og hefur átt stóran hlut í að efla gæði menntunar. En ég held að áhersla allra skóla ætti að vera á að efla háskólastigið í heild.“ thorgils@frettabladid.is Vill standa vörð um starfið í HÍ Menntamálaráðherra rökstyður minni niðurskurð til HÍ miðað við HR með því að HÍ hafi tekið á sig fleiri nemendur og ný verkefni. Hún segir mikilvægt að verja hið fjölbreytta nám sem þar sé í boði. HÁSKÓLALÍF Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir mismun í niðurskurði til háskóla skýrast af nýjum verkefnum HÍ og fjölgun nemenda. Auk þess finnst henni mikilvægt að standa vörð um starf HÍ og fjölbreytt námsframboð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Opinberir eða óopinberir skólar? Ari Kristinn sagði aðspurður um framtíð háskólakerfisins hér á landi að hann sæi fyrir sér að allir skólarnir yrðu reknir sem sjálfseignarstofnanir, frekar en hefðbundnar ríkisstofnanir. Katrín segir þá umræðu vera frekar óþroskaða. „Ég vil fá á hreint hvað eigi að vinnast með breyttu formi. Þessi leið hefur verið farin í Finnlandi og Danmörku og óljóst hvað hefur unnist þar. Mig minnir að í Danmörku gildi til dæmis enn öll lög um opinbera starfsmenn þrátt fyrir að skólarnir séu reknir sem sjálfseignarstofnanir. Þetta er allavega eitthvað sem kallar á mikla ígrundun og vinnu.“ Katrín segir fyrirkomulagið í Noregi og Svíþjóð vera á hinn veginn þar sem ríkisskólar séu við lýði. „Í Svíþjóð eru meira að segja allir háskólar skilgreindir sem ríkisskólar, líka þeir tveir sem eru einkareknir, af því að þeir fá meirihluta framlaga frá hinu opinbera. Það ætti þá kannski að snúa dæminu við og spyrja hvenær skóli verður opinber. Er það þegar hann þiggur meirihlutann af sínum fjármunum frá hinu opinbera?“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.