Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 18
18 4. október 2012 FIMMTUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Stundum verð ég orðlaus, ekki oft samt. Það gerðist þó þegar ég heyrði að for- maður Sjálfstæðisflokksins teldi þjóðarat- kvæðagreiðsluna 20. október ólýðræðislega. Mér skildist að það væri vegna þess að hann teldi að stjórnarflokkarnir ætluðu að nota niðurstöðurnar til að rökstyðja það sem best hentaði stefnu þeirra. Það var stefna stjórnarflokkanna að efna til stjórnlagaþings til að endurskoða stjórn- arskrána. Sjálfstæðisflokkurinn var and- vígur því. Málamiðlun náðist á Alþingi um að skipa stjórnlaganefnd, boða til þjóðfund- ar og loks halda stjórnlagaþing. Mig minnir að það hafi verið hugmynd stjórnarandstöð- unnar að halda þjóðfundinn. Af hverju þessi málamiðlun? Jú, til þess að reyna að vinna það mikilvæga verkefni sem endurskoðun stjórnarskrárinnar er í sem mestu samkomulagi þjóðar og þings. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu ekki atkvæði með heildartillögunni. Þeir voru sjálfum sér samkvæmir í því að þiggja eða kannski taka en gefa ekkert til baka. Líkleg- ast er barnaskapur að ergja sig yfir því. Þverskurður fólksins í landinu, 950 manns, mætti á þjóðfundinn. 522 – fimm hundruð tuttugu og tveir – buðu sig fram til stjórnlagaþings. Hæstiréttur komst að þeirri skrýtnu niðurstöðu að framkvæmd kosninganna hefði verið á þann veg að rétt væri að ógilda kosninguna. Alþingi ákvað að skipa þá fulltrúa sem hlutu kosningu í stjórnlagaráð. Stjórnlagaráð náði samkomulagi um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Það hefur Alþingi ekki tekist í gegnum áratug- ina þrátt fyrir margar stjórnarskrárnefndir. Stjórnlagaráðið byggði á niðurstöðum þjóð- fundarins. Nú er fólkið í landinu spurt hvort það vilji að frumvarp að nýrri stjórnarskrá verði byggt á tillögum stjórnlagaráðsins. – Ég fæ ekki séð að það þurfi að túlka niður- stöðu úr þeirri atkvæðagreiðslu. Annað- hvort segir meirihluti þeirra sem taka þátt já eða þeir segja nei. Það er ekki flóknara en það. Ég trúi því að fleiri muni segja já. Sumir stjórnmálamenn og sumir lög- fræðingar telja sig eina til þess fallna að gera tillögu að stjórnarskrá. Þeir telja sig hafa einhverja eiginleika sem við hin höfum ekki. Stjórnarskráin er fyrir okkur öll og hún verður best ef hún kemur frá fólkinu í landinu. Ja hérna, ólýðræðisleg þjóðaratkvæðagreiðsla! Ný stjórnar- skrá Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður Einn áhugalaus Eftir að Jóhanna Sigurðardóttir til- kynnti í síðustu viku að hún væri á leið úr stjórnmálum fóru af stað miklar vangaveltur um það hver yrði arftaki hennar, eins og við var að búast. Haft var samband við framá- fólk í Samfylkingunni sem flest þótt- ist moðvolgt fyrir því að gefa kost á sér en var líklega flest ýmist mun volgara en það lét uppi – nú, eða mun fráhverfara því. Einungis einn var harður á því að hann hefði engan áhuga. Sá heitir Össur Skarphéðinsson og hefur reyndar áður verið formaður Samfylkingarinnar. Fléttan Strax og umræðan fór á flug þóttust sumir sjá fléttu næstu vikna og mán- aða í hendi sér: Deilur mundu að vonum rísa um það hver hinna köll- uðu ætti að taka við kaleik Jóhönnu. Fljótlega færu að berast fréttir af því að ónefnt Samfylkingarfólk væri farið að þrýsta á Össur að taka að sér verkefnið til að lægja öldurnar. Hann mundi svo taka svokall- aðan Ólaf Ragnar, svara kallinu og láta til leiðast af einskærri fórnfýsi. Fyrsta frétt Og viti menn. Í gær barst frétt af því að ónefndir Samfylkingarmenn væru farnir að þrýsta á Össur að gefa kost á sér til formennsku. Hann hefur það í hendi sér hvort spádómurinn rætist enn frekar, en glæst frammistaða hans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um helgina vakti á honum verðskuldaða athygli og verður síst til þess að skemma fyrir honum ef hann ákveður að láta undan þrýstingnum. stigur@frettabladid.isB reytt framtíðarsýn fyrir unga Íslendinga er útgangs- punktur þess breiða hóps, sem í fyrradag hittist á Hótel Nordica og samþykkti ályktun undir fyrirsögninni „sam- staða um þjóðarhagsmuni“. Í ályktuninni er bent á að mikilvægasta verk- efni íslenzkra stjórnmála sé að tryggja sambærileg lífskjör og í nágrannalöndunum. Við ungu fólki á Íslandi blasi hins vegar framtíð með lægri launum, dýrara lánsfé, minna athafnafrelsi og veikara velferðakerfi. Fyrirsjáanlegt sé að Ísland muni búa við takmarkanir á viðskiptafrelsi um langa framtíð, verði ekkert að gert. Hugmyndir um gjaldeyrishöft í nýju formi sýni að óbreytt staða sé óhugsandi og endurskoðun samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sé óhjá- kvæmileg. Til að jafna samkeppnisstöðu við nágrannalöndin telur hópurinn nauðsynlegt að ná breiðri sam- stöðu um fjögur markmið. Í fyrsta lagi agaða hagstjórn, sem miði að fjármálastöðugleika og upptöku nothæfs gjaldmiðils. Í öðru lagi traustan pólitískan stuðning við efnahagsmarkmiðin og aðildar- viðræðurnar við Evrópusambandið, því að aðeins þannig náist eins hagstæður samningur og mögulegt sé. Í þriðja lagi nýja, raunhæfa áætlun um aðildarviðræðurnar – sem þýðir væntanlega í raun að í þær verði tekinn sá tími sem þarf, þannig að makríldeilan þvælist til dæmis ekki fyrir viðræðum um sjávarútveg og að það sjái fyrir end- ann á glímu ESB við ríkisfjármála- og skuldavanda. Í fjórða lagi að stjórnarskránni verði breytt þannig að þjóðin geti tekið ákvarðanir um stöðu Íslands í Evrópu á næsta kjörtímabili. Það þýðir að sett verði í hana ákvæði um að framselja megi vald til alþjóðastofnana. Fundurinn ítrekaði það rökrétta sjónarmið að ekki eigi að veikja stöðu Íslands með því að útiloka einstaka kosti, það er að segja aðildina að ESB, á meðan ekki sé vitað að aðrir vegir séu færir. Það sem einkennir málflutning allra þeirra, sem vilja draga aðildarum- sóknina til baka, er að þeir vita ekki hvaða aðra leið á að fara til að verja framtíðarhagsmuni Íslendinga. Hópurinn sem samþykkti þessa ályktun býr að mikilli þekk- ingu og reynslu. Hann er saman settur úr framáfólki úr vísindum, menntakerfi, atvinnulífi og stjórnmálum. Þeir sem komið hafa nálægt pólitík eru flestir úr Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu. Með þessum málflutningi er talað beint inn í tómarúmið á miðj- unni, sem þessir þrír flokkar hafa allir vanrækt. Ályktunin er eins og fyrstu drög að stefnuskrá efnahagslega frjálslynds, alþjóðasinn- aðs flokks – sem er ekki til á Íslandi í dag en margir gætu hugsað sér að kjósa. Forsvarsmenn hópsins segjast ekki ætla sér í framboð, alltént ekki að svo stöddu. Hins vegar hljóta forystumenn í áðurnefndum þremur flokkum að hugsa sitt. Hvernig ætla þeir að ná atkvæðum þeirra kjósenda sem hugsa eins og þessir 72, sem settu nöfn sín undir ályktunina? Skynsamleg stefna um að verja þjóðarhag: Talað inn í tóma- rúmið á miðjunni Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.