Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 28
FÓLK|TÍSKA
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt
fyrir flottar
konur
st. 40 – 58
Tökum upp nýjar
vörur í hverri viku
Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
YFIRHAFNARDAGAR
15% AFSLÁTTUR
Skipholti 29b • S. 551 0770
Ný sending frá BASLER,
í brúnum og rauðum litum
NÁM Í DANMÖRKU
HJÁ VIA UNIVERSITY COLLEGE Í HORSENS
BJÓÐUM VIÐ UPP Á MARGVÍSLEGA MENNTUN
Í BOÐI ER:
Á ENSKU OG
DÖNSKU Á ENSKU Á DÖNSKU
- Byggingafræði
- Véltæknifræði
- Byggingaiðnfræði
- Markaðshagfræði
- Byggingatæknifræði
- Tölvutæknifræði
- Framleiðslutæknifræði
- Útflutningstæknifræði
- BS í Markaðsfræði
- Véltækni
- Landmælingar
- Vöruþróun og
tæknileg sameining
- Aðgangsnámskeið
Fulltrúi skólans Johan Eli Ellendersen, verður á Íslandi 5.-12. október.
Áhugasamir geta haft samband í síma 8458715, eða netfang jee@viauc.dk.
Leggið inn skilaboð/skrifa og við munum hringja/skrifa til baka.
VIAUC.DK/HORSENS
VIA UNIVERSITY COLLEGE
Chr. M. Østergaards Vej 4
DK-8700 Horsens
Tel. +45 8755 4000
Fax: +45 8755 4001
Mail: horsens@viauc.dk
Berglind Sveinsdóttir, sem býr í Hnífsdal, fékk þá hugmynd fyrir um það bil fimm árum að hanna
lopapeysu með merki Ísafjarðarbæjar.
Hún prjónaði slíkar peysur á alla í fjöl-
skyldunni en í kringum tónlistarhá-
tíðina Aldrei fór ég suður í vor fór hún
að bjóða peysurnar til sölu. Hún hefur
varla haft undan síðan.
„Sannir Ísfirðingar kunna að meta
peysuna en sömuleiðis ferðamenn og
þá sérstaklega Bandaríkjamenn. Þeir
eru margir með ríka þjóðerniskennd og
þetta höfðar til þeirra,“ segir Berglind.
Hún segist hafa teiknað munstrið á
rúðustrikað blað og fengið eiginmann
sinn til að setja það upp í excel. „Það er
þó ekki nákvæmlega eins og Ísafjarðar-
merkið, enda þyrfti þá að sækja um sér-
stakt leyfi. Ég hafði merkið til hliðsjónar
og munstrið minnir á það.“
Peysurnar eru allar handprjónaðar
og koma í fjórum útgáfum. „Ég er með
eina rennda, aðra rennda með hettu,
eina hálfrennda og svo eina heila. Þá hef
ég verið að gera húfur og ennisbönd í
stíl.“ Allt er þetta handprjónað og Berg-
lind viðurkennir að hún sé komin með í
axlirnar.
Peysurnar, sem hún selur undir
merkinu Bsveinsmade, fást í versluninni
Karitas að Aðalstræti 20 á Ísafirði og á
Facebook. Hún vonast til að koma þeim
í sölu víðar innan tíðar.
PRJÓNAR ÍSFIRSKAR
LOPAPEYSUR
HEFUR VARLA UNDAN Berglind Sveinsdóttir hannaði lopapeysu með merki
Ísafjarðarbæjar fyrir nokkrum árum. Fyrr á þessu ári fór hún að bjóða slíkar
peysur til sölu við góðar undirtektir. Peysurnar eru allar handprjónaðar.
FYLGIHLUTIR
Berglind gerir húfur og
ennisbönd í stíl.
SITUR VIÐ
Berglind hefur varla
lagt frá sér prjónana að
undanförnu.
FJÓRAR GERÐIR
Peysurnar koma í fjórum mismunandi
gerðum. Ein er rennd, önnur rennd
með hettu, ein hálfrennd og ein heil.
FYRIRMYNDIN
Berglind hafði merki
Ísafjarðarbæjar til hlið-
sjónar við hönnun peys-
unnar. Þar má greina
sjó, skip, sól og mastur
en Berglind sleppti
mastrinu og einfaldaði
munstrið, enda ekki
leyfilegt að gera ná-
kvæma eftirlíkingu.
SANNUR ÍS-
FIRÐINGUR
Berglind byrjaði að
selja peysurnar á
tónlistarhátíðinni
Aldrei fór ég suður
í vor. Mugison tók
sig vel út.