Fréttablaðið - 04.10.2012, Side 33
KYNNING − AUGLÝSING Sjúkraþjálfun & stoðtæki4. OKTÓBER 2012 FIMMTUDAGUR 3
Með því að nýta sólar-hrings þjónustu og vökt-un sem fyrir er hjá Ör-
yggismiðstöðinni er hægt að bjóða
upp á lausnir í öryggi og velferð
sem ekki hafa verið í boði áður.
„Það er þekkt erlendis frá að ör-
yggisfyrirtæki feti sig inn á vel-
ferðarmarkað, enda hlutir sem
vinna vel saman,“ segir Guðrún
Dadda Ásmundardóttir, iðjuþjálfi
hjá Öryggismiðstöðinni.
Leiga eða kaup á hjálpartækjum
Öryggismiðstöðin býður mikið
vöruúrval hjálpartækja til leigu
eða sölu, allt frá hækjum yfir í
rampa fyrir hjólastóla, göngu-
grindur, rafmagnshjólastóla, raf-
magnsstandstóla, fólkslyftara og
margt fleira. „Við erum með mikið
úrval og alhliðalausnir fyrir nán-
ast allt sem tengist velferð og
hjálpartækjum. Einnig erum við
með fullkomin hjúkrunarrúm og
búnað sem tengist þeim og rekum
eina verkstæðið á landinu sem sér
um bílabreytingar fyrir fatlaða
sem gerir þeim kleift að aka bíl.“
Tæknilausnir
fyrir hreyfihamlaða
Fyrir þá sem eru með litla eða
enga hreyfigetu er mikilvægt að
geta átt í samskiptum við um-
heiminn. Augun eru þar mikil-
vægur þáttur. Öryggismiðstöð-
in er með svokallaðar Tobi-tölv-
ur. „Það eru tölvur sem hægt er
að stjórna með augunum. Þannig
getur sá sem hefur litla sem enga
hreyfigetu haft samband við um-
heiminn. Hann getur skrifað, sent
tölvupóst, farið á netið og aflað sér
upplýsinga á eigin spýtur. Þetta
eykur sjálfstæði og rýfur einangr-
un einstaklinga svo um munar.“
Umhverfisstjórnun og sjálfstæði
Sjálfstæði er mikilvægt og fyrir
þann sem er hreyfihamlaður getur
athöfn eins og að slökkva ljós verið
flókið verkefni. „Allt sem tengt er
við rafmagn er hægt að tengja við
fjarstýringu sem sá hreyfihaml-
aði ber á sér. Hann getur þannig
slökkt og kveikt ljós, á sjónvarpi,
dregið frá gardínur, opnað glugga
eða hurð ásamt fleiru með fjar-
stýringunni. Þetta eykur sjálfstæði
og öryggi einstaklingsins og getur
jafnvel gert honum kleift að búa
einn.“
Öryggishnappur
með sólarhringsvöktun
„Öryggismiðstöðin hefur boðið
upp á öryggishnappinn frá 1996.
Hnappinn er hægt að bera á arm-
bandi eða hálsól og virkar hann
þannig að einstaklingur þrýst-
ir á hann í neyðartilviki. Við það
opnast samstundis talsamband
við stjórnstöð sem kannar ástand
viðkomandi og öryggisvörður er
sendur á staðinn. Á stjórnstöð er
hjúkrunarfræðingur á vakt allan
sólarhringinn, alla daga árs-
ins. Þannig getur öryggisvörð-
ur í útkalli fengið leiðbeiningar
um viðbrögð frá honum. Örygg-
ishnappurinn veitir þannig gífur-
lega mikið öryggi fyrir þann sem
ber hann og ekki síður aðstand-
endur. Öryggismiðstöðin er með
samning við Sjúkratryggingar Ís-
lands sem niðurgreiðir kostnað
við hnappinn að settum ákveðn-
um skilyrðum. Þeir sem eru með
öryggishnapp fá uppsetningu á
reykskynjurum, þeim að kostnað-
arlausu. Reykskynjarinn er bein-
tengdur við Öryggismiðstöðina í
gegnum öryggishnappinn. „Rann-
sóknir hafa sýnt að eldri borgar-
ar eru oft ekki með eldvarnir í lagi
og reykskynjarar ekki til staðar.
Það var því tilvalið að auka öryggi
þeirra með því að nýta þessa leið
án þess að auka kostnað.“
Ferilvöktun
Með nýjustu tækni og tengingu
við stjórnstöð Öryggismiðstöðv-
arinnar opnast ýmsir möguleikar.
„Ferilvöktun er til dæmis þjón-
usta sem tengist öryggishnappn-
um og er ákjósanlegur kostur
fyrir einstaklinga með Alzhei-
mer og fjölskyldumeðlimi þeirra.
Ef Alzheimer-sjúklingur fer að
rápa eins og það er kallað, fer til
dæmis út og villist jafnvel, erum
við með kerfi sem lætur hans nán-
ustu vita. Tæknin sem við notum
felst í tímastilltum rofa á hurð sem
sendir boð ef farið um dyrnar á
óæskilegum tíma. Þannig er hægt
að gera ættingjum viðvart án tafar
ef eitthvað óeðlilegt kemur upp á.
Einnig eru í boði lausnir fyrir
maka þeirra sem eru veikir, en
algengt er að makar eigi jafnvel
erfitt með svefn af ótta við að sá
veiki fari að rápa um miðja nótt.
Þá setjum við upp hreyfiskynjara
sem sendir boð í lítið boðtæki ef sá
veiki fer á stjá um miðja nótt. Oft
eru það makar sjúklinga sem enda
fyrr á sjúkrahúsi vegna álags við
umönnun. Þetta er því gríðarmik-
ilvægt öryggistæki sem bætir vel-
ferð og vellíðan í leiðinni.“
Öryggi og velferð er okkar fag
Öryggismiðstöðin hefur á undanförnum árum fært út starfsemi sína með því að samnýta þekkingu á öryggis-, heilbrigðis- og
velferðarmálum. Fyrirtækið býður upp á mjög fjölbreytta þjónustu og vöruúrval á velferðarsviði.
Öryggismiðstöðin býður mikið vöruúrval hjálpartækja til leigu eða sölu. „Við erum með mikið úrval og alhliðalausnir fyrir nánast allt
sem tengist velferð og hjálpartækjum.“ MYND/ANTON
Fólkslyftur ásamt aukabúnaði er hægt að
leigja og kaupa hjá Öryggismiðstöðinni.
Öryggismiðstöðin er með sjúkrarúm í nokkrum gerðum sem hægt er að skoða í
sýningarsal.
Öryggismiðstöðin rekur eina verkstæðið á landinu sem sér um bílabreytingar sem gera
fötluðum kleift að aka.
Öryggismiðstöðin rekur verkstæði á sem
sér um bílabreytingar fyrir fatlaða.
GLÆSILEGUR SÝNINGARSALUR
OG FAGLEG RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA
Hjá Öryggismiðstöðinni vinnur teymi sérfræðinga sem í sameiningu
hafa skapað öflugt þjónustufyrirtæki á öryggis- og velferðarsviði sem
þjónustar einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Þar eru hjúkrunarfræðingar
og iðjuþjálfarar í vinnu sem veita faglega ráðgjöf og hægt er að skoða
vörurnar í glæsilegum sýningarsal í Askalind 1 Kópavogi. Einnig er hægt
að skoða vörur og nálgast nánari upplýsingar um Öryggismiðstöðina á
heimasíðunni www.oryggi.is.
Þeir sem eru
með
öryggishnapp fá
uppsetningu á
reykskynjurum, þeim að
kostnaðarlausu.