Fréttablaðið - 04.10.2012, Síða 33

Fréttablaðið - 04.10.2012, Síða 33
KYNNING − AUGLÝSING Sjúkraþjálfun & stoðtæki4. OKTÓBER 2012 FIMMTUDAGUR 3 Með því að nýta sólar-hrings þjónustu og vökt-un sem fyrir er hjá Ör- yggismiðstöðinni er hægt að bjóða upp á lausnir í öryggi og velferð sem ekki hafa verið í boði áður. „Það er þekkt erlendis frá að ör- yggisfyrirtæki feti sig inn á vel- ferðarmarkað, enda hlutir sem vinna vel saman,“ segir Guðrún Dadda Ásmundardóttir, iðjuþjálfi hjá Öryggismiðstöðinni. Leiga eða kaup á hjálpartækjum Öryggismiðstöðin býður mikið vöruúrval hjálpartækja til leigu eða sölu, allt frá hækjum yfir í rampa fyrir hjólastóla, göngu- grindur, rafmagnshjólastóla, raf- magnsstandstóla, fólkslyftara og margt fleira. „Við erum með mikið úrval og alhliðalausnir fyrir nán- ast allt sem tengist velferð og hjálpartækjum. Einnig erum við með fullkomin hjúkrunarrúm og búnað sem tengist þeim og rekum eina verkstæðið á landinu sem sér um bílabreytingar fyrir fatlaða sem gerir þeim kleift að aka bíl.“ Tæknilausnir fyrir hreyfihamlaða Fyrir þá sem eru með litla eða enga hreyfigetu er mikilvægt að geta átt í samskiptum við um- heiminn. Augun eru þar mikil- vægur þáttur. Öryggismiðstöð- in er með svokallaðar Tobi-tölv- ur. „Það eru tölvur sem hægt er að stjórna með augunum. Þannig getur sá sem hefur litla sem enga hreyfigetu haft samband við um- heiminn. Hann getur skrifað, sent tölvupóst, farið á netið og aflað sér upplýsinga á eigin spýtur. Þetta eykur sjálfstæði og rýfur einangr- un einstaklinga svo um munar.“ Umhverfisstjórnun og sjálfstæði Sjálfstæði er mikilvægt og fyrir þann sem er hreyfihamlaður getur athöfn eins og að slökkva ljós verið flókið verkefni. „Allt sem tengt er við rafmagn er hægt að tengja við fjarstýringu sem sá hreyfihaml- aði ber á sér. Hann getur þannig slökkt og kveikt ljós, á sjónvarpi, dregið frá gardínur, opnað glugga eða hurð ásamt fleiru með fjar- stýringunni. Þetta eykur sjálfstæði og öryggi einstaklingsins og getur jafnvel gert honum kleift að búa einn.“ Öryggishnappur með sólarhringsvöktun „Öryggismiðstöðin hefur boðið upp á öryggishnappinn frá 1996. Hnappinn er hægt að bera á arm- bandi eða hálsól og virkar hann þannig að einstaklingur þrýst- ir á hann í neyðartilviki. Við það opnast samstundis talsamband við stjórnstöð sem kannar ástand viðkomandi og öryggisvörður er sendur á staðinn. Á stjórnstöð er hjúkrunarfræðingur á vakt allan sólarhringinn, alla daga árs- ins. Þannig getur öryggisvörð- ur í útkalli fengið leiðbeiningar um viðbrögð frá honum. Örygg- ishnappurinn veitir þannig gífur- lega mikið öryggi fyrir þann sem ber hann og ekki síður aðstand- endur. Öryggismiðstöðin er með samning við Sjúkratryggingar Ís- lands sem niðurgreiðir kostnað við hnappinn að settum ákveðn- um skilyrðum. Þeir sem eru með öryggishnapp fá uppsetningu á reykskynjurum, þeim að kostnað- arlausu. Reykskynjarinn er bein- tengdur við Öryggismiðstöðina í gegnum öryggishnappinn. „Rann- sóknir hafa sýnt að eldri borgar- ar eru oft ekki með eldvarnir í lagi og reykskynjarar ekki til staðar. Það var því tilvalið að auka öryggi þeirra með því að nýta þessa leið án þess að auka kostnað.“ Ferilvöktun Með nýjustu tækni og tengingu við stjórnstöð Öryggismiðstöðv- arinnar opnast ýmsir möguleikar. „Ferilvöktun er til dæmis þjón- usta sem tengist öryggishnappn- um og er ákjósanlegur kostur fyrir einstaklinga með Alzhei- mer og fjölskyldumeðlimi þeirra. Ef Alzheimer-sjúklingur fer að rápa eins og það er kallað, fer til dæmis út og villist jafnvel, erum við með kerfi sem lætur hans nán- ustu vita. Tæknin sem við notum felst í tímastilltum rofa á hurð sem sendir boð ef farið um dyrnar á óæskilegum tíma. Þannig er hægt að gera ættingjum viðvart án tafar ef eitthvað óeðlilegt kemur upp á. Einnig eru í boði lausnir fyrir maka þeirra sem eru veikir, en algengt er að makar eigi jafnvel erfitt með svefn af ótta við að sá veiki fari að rápa um miðja nótt. Þá setjum við upp hreyfiskynjara sem sendir boð í lítið boðtæki ef sá veiki fer á stjá um miðja nótt. Oft eru það makar sjúklinga sem enda fyrr á sjúkrahúsi vegna álags við umönnun. Þetta er því gríðarmik- ilvægt öryggistæki sem bætir vel- ferð og vellíðan í leiðinni.“ Öryggi og velferð er okkar fag Öryggismiðstöðin hefur á undanförnum árum fært út starfsemi sína með því að samnýta þekkingu á öryggis-, heilbrigðis- og velferðarmálum. Fyrirtækið býður upp á mjög fjölbreytta þjónustu og vöruúrval á velferðarsviði. Öryggismiðstöðin býður mikið vöruúrval hjálpartækja til leigu eða sölu. „Við erum með mikið úrval og alhliðalausnir fyrir nánast allt sem tengist velferð og hjálpartækjum.“ MYND/ANTON Fólkslyftur ásamt aukabúnaði er hægt að leigja og kaupa hjá Öryggismiðstöðinni. Öryggismiðstöðin er með sjúkrarúm í nokkrum gerðum sem hægt er að skoða í sýningarsal. Öryggismiðstöðin rekur eina verkstæðið á landinu sem sér um bílabreytingar sem gera fötluðum kleift að aka. Öryggismiðstöðin rekur verkstæði á sem sér um bílabreytingar fyrir fatlaða. GLÆSILEGUR SÝNINGARSALUR OG FAGLEG RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA Hjá Öryggismiðstöðinni vinnur teymi sérfræðinga sem í sameiningu hafa skapað öflugt þjónustufyrirtæki á öryggis- og velferðarsviði sem þjónustar einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Þar eru hjúkrunarfræðingar og iðjuþjálfarar í vinnu sem veita faglega ráðgjöf og hægt er að skoða vörurnar í glæsilegum sýningarsal í Askalind 1 Kópavogi. Einnig er hægt að skoða vörur og nálgast nánari upplýsingar um Öryggismiðstöðina á heimasíðunni www.oryggi.is. Þeir sem eru með öryggishnapp fá uppsetningu á reykskynjurum, þeim að kostnaðarlausu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.