Fréttablaðið - 04.10.2012, Qupperneq 47
FIMMTUDAGUR 4. október 2012 35
Opið laugard. kl. 10-14
LANCÔME DAGAR
Í DEBENHAMS 4. – 10. OKTÓBER
Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir Lancôme vörur
fyrir 9.000 krónur eða meira
~ Lancôme taska
~ Trésor Midnight Rose ilmur 5 ml
~ Visionnaire dropar 5 ml
~ Rouge in Love varalitur 379N
~ Teint Idole farði 5 ml
~ Genifique krem 5 ml
~ Hypnôse Doll Eyes maskari ferðastærð
~ Augnblýantur svartur
Verðmæti kaupaukans 14.000 krónur
Einnig aðrar gerðir kaupauka
*E
in
n
k
au
p
au
ki
á
v
ið
sk
ip
ta
vi
n
. G
ild
ir
m
eð
an
b
ir
g
ði
r
en
d
as
t.
www.facebook.com/LancomeIceland
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 04. október
➜ Sýningar
21.00 Óperusýningin Ráðskonuríki
verður flutt á Café Rosenberg. Það er
Alþýðuóperan sem setur verkið á svið á
hátt sem aldrei hefur þekkst hérlendis.
Miðaverð er kr. 2.000.
21.00 Leiksýningin Orð skulu standa
heldur áfram göngu sinni í Þjóðleik-
húskjallaranum í vetur. Fastir „leikarar”
í sýningunni eru Sólveig Arnarsdóttir
og Guðmundur Steingrímsson. Umsjón-
armaður er Karl Th. Birgisson. Gestir á
fyrstu sýningu vetrarins eru Björn Jör-
undur Friðbjörnsson og Jóhanna Vigdís
Arnardóttir.
➜ Hátíðir
13.00 Reykjavík International Film
Festival er fullu fjöri í Reykjavík. Dagskrá
má nálgast á heimasíðunni http://riff.
is/schedule.
➜ Bókmenntir
20.00 Höfundarkvöld með Kristof
Magnusson verður á Súfistanum, í
Bókabúð Máls og menningar Laugavegi
18. Nýlega kom út bókin Það var ekki
ég eftir Kristof í íslenskri þýðingu Bjarna
Jónssonar. Aðgangur ókeypis.
➜ Tónlist
21.00 Hljómsveitin Skuggamyndir
leikur þjóðlagatónlist frá Balkanskaga á
sínum mánaðarlegu tónleikum á Café
Haítí í Reykjavík. Aðgangseyrir kr. 1.500.
22.00 Herra Halli og Hverveithvað
halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da
Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
22.00 Hljómsveitin Ojba Rasta heldur
útgáfutónleika í Iðnó. Miðasala fer fram
á midi.is og í verslunum Brim í Kringl-
unni og á Laugarvegi 71.
➜ Fyrirlestrar
17.00 Guðjón Andri Gylfason, lífefna-
fræðingur og framhaldskólakennari
heldur erindi um þáttun frumuhimnu
þarmaþekjufrumna í Atlantshafsþorski.
Andri setur efnið fram á almennu máli.
Þetta er fyrsta erindið á fimmtudagsfyr-
irlestraröð Akureyrarakademíunar í vetur
og verður haldið í Samkomuhúsi Leik-
félags Akureyrar, Borgarasal. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Klarínettið verður í önd-
vegi á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í
Hörpu í kvöld.
Einleikari er sænski
klarínettleikarinn
Martin Fröst en honum
hefur verið hampað sem
einum af fremstu klar-
ínettleikurum heims og
þykir hafa einkennandi
og persónulegan stíl.
Franski hljómsveitar-
stjórinn Yan Pascal
Tortelier stjórnar hljómsveit-
inni en hann hefur stjórnað öllum
helstu stórhljómsveitum
í heimi, þar á meðal Sin-
fóníuhljómsveit Íslands
á tónleikum á Listahá-
tíð 1998.
Fjögur verk eru á
efnisskránni. Klarín-
ettkonsertinn Peacock
Tales eftir sænska
tónskáldið A nders
Hillborg; Première
Rhapsodie eftir Claude
Debussy; Tallis-fantas-
ían eftir Vaughan Willi-
ams og eina sinfónía Césars
Franck.
Fröst með Sinfóníunni
Hafnarborg, menningar- og lista-
miðstöð Hafnarfjarðar, efnir
til Skuggaleika laugardaginn 6.
október. Þar gefst tækifæri til að
kynnast rannsóknum og tilraun-
um sem tengjast skugganum á
einn eða annan hátt. Þátttakend-
ur halda stutt erindi um skugga
út frá fræðasviði sínu og sérþekk-
ingu.
Tilefni Skuggaleikanna er
sýningin SKIA – skuggi, sem nú
stendur yfir í Hafnarborg. Meðal
fyrirlesara á Skuggaleikum, auk
Guðna Tómassonar, listsagnfræð-
ings og sýningarstjóra SKIA, eru
Eyja Margrét Brynjarsdóttir
heimspekingur, Gunnar Steinn
Valgarðsson og Hrafn Þorri Þór-
isson frá Vitvélastofnun Háskól-
ans í Reykjavík, Pétur Pétursson,
prófessor í guðfræði, Sigurður
Árni Sigurðsson myndlistarmað-
ur, Snævarr Guðmundsson land-
fræðingur, Soffía Valtýsdóttir
arkitekt og Þorsteinn Vilhjálms-
son eðlisfræðingur.
Dagskráin hefst klukkan 13 og
er ókeypis og öllum opin.
Skuggaleikar í Hafnarborg
GUÐNI TÓMASSON Sýningarstjóri Skia
verður meðal þeirra sem leggja orð í
belg.
MARTIN FRÖST