Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 48

Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 48
4. október 2012 FIMMTUDAGUR36 36tónlist TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Í SPILARANUM tonlist@frettabladid.is Retro Stefson Retro Stefson Valgeir Sigurðsson Architecture of Loss Thee Attacks Dirty Sheets Goðsagnirnar í Kiss gefa út sína tuttugustu hljóðvers- plötu í næstu viku. Tæp fjörutíu ár eru liðin frá stofnun rokksveitarinnar. Tuttugasta hljóðsversplata rokk- goðsagnanna í Kiss, Monster, kemur út í næstu viku. Hún hefur að geyma tólf bein- skeytt rokklög úr smiðju söngvar- ans og gítarleikarans Pauls Stan- ley, bassaleikarans tungulipra Genes Simmons, gítarleikarans Tommys Thayer og trommarans Erics Singer. Monster er fyrsta hljóðvers- plata Kiss síðan Sonic Boom kom út fyrir þremur árum. Hún var sú fyrsta í ellefu ár frá sveitinni og komst í annað sæti á bandaríska Billboard-listanum. Upptökustjóri á báðum þessum plötum var Paul Stanley. Honum til aðstoðar var Greg Collins og fóru upptökurnar fram í Kaliforníu. Ferill Kiss hefur verið magn- aður. Á þeim tæpu fjörutíu árum frá stofnun hljómsveitarinnar hafa 28 plötur hennar náð gullsölu í Bandaríkjunum [hálf milljón ein- taka], sem er það mesta sem nokk- urt bandarískt rokkband hefur náð. Sveitin hefur selt fjörutíu milljón plötur í Bandaríkjunum og samtals yfir eitt hundruð milljónir í öllum heiminum. Kiss á rætur sínar að rekja til Wicked Lester, rokkhljómsveitar frá New York með Gene Simmons og Paul Stanley í fararbroddi. Þeir sögðu skilið við hina meðlimina árið 1972 eftir að Epic Records hafnaði útgáfu á plötu sem þeir höfðu tekið upp. Seinna sama ár kom Simmons auga á auglýsingu í tímaritinu Rolling Stone frá trommaranum Peter Criss. Hann byrjaði að æfa með þeim félögum og í janúar árið eftir bættist gít- arleikarinn Ace Frehley við hóp- inn. Á sama tíma var nafninu Wic- ked Lester hent og Kiss tekið upp í staðinn. Kiss hefur verið dugleg við tón- leikahald bæði í Evrópu og Banda- ríkjunum undanfarin ár, við góðar undirtektir hinna fjölmörgu aðdá- enda sveitarinnar. Þar syngja þeir hástöfum með goðunum sínum í lögum á borð við Rock and Roll All Nite, I Was Made For Lovin‘ You og Lick It Up. freyr@frettabladid.is Tuttugasta platan frá Kiss 20 Rokkararnir í Kiss gefa út sína tuttugustu hljóðversplötu í næsta mánuði. NORDICPHOTOS/GETTY Aðdáaendaklúbbur Kiss á Íslandi, Kiss Army Iceland, ætlar að hittast á Glaumbar í nóvember í tilefni nýju plötunnar. Hljómsveit mætir á svæðið og spilar lög með Kiss, spurningakeppni verður haldin og horft verður á tónleika með sveitinni. Klúbburinn var stofnaður í sumar og meðlimirnir eru á fimmta hundrað talsins. Þráinn Árni Baldvinsson og Heiðar Jónsson, sem eru í stjórn klúbbsins, hittu meðlimi Kiss fyrir tónleika hennar í Ósló í sumar. „Fyrir tilviljum löbbuðum við fram hjá hótelinu þeirra og sáum Paul Stanley labba inn á hótelið. Við fengum að hitta alla í bandinu og þeir voru þvílíkt almennilegir,“ segir Þráinn, sem verður með fyrstu mönnum til að tryggja sér eintak af nýju plötunni hér á landi. „Kiddi í Smekkleysu fær eintök á föstudaginn eða mánudaginn. Þá tekur maður vínyl og tvær til þrjár mismunandi geisladiskaútgáfur.“ Hann bíður spenntur eftir að heyra útkomuna: „Ég er búinn að heyra eitt lag, Hell or Hallelujah, og það er algjörlega frábært.“ KISS ARMY FAGNAR PLÖTUNNI Á GLAUMBAR Á hverju ári fellur maður fyrir plötum sem maður gerði engar vænt- ingar til. Óvæntasta uppáhaldsplatan mín á árinu 2012 er One Day I‘m Going to Soar með Dexys, hljómsveit Kevins Rowland. Rowland er auðvitað þekktastur fyrir verk sín með Dexys Midnight Runners, sem var vinsæl á fyrri hluta níunda áratugarins og átti smelli eins og Geno og Come on Eileen. Rowland segir að nafnið Dexys hæfi nýju sveitinni vel af því að tónlistin sé eins og hjá þeirri gömlu, en samt ekki … One Day I‘m Going to Soar er frábær plata. Lagasmíðarn- ar eru flottar og í útsetningun- um blandast saman sálartón- list (sem var útgangspunktur DMR), diskó, popp og rokk. Það eftirminnilegasta við plöt- una eru samt textarnir. One Day I‘m Going to Soar er eins konar sjálfsævisögu- leg þemaplata. Hún fjallar um endalaus vandamál söguhetj- unnar í samskiptum við hitt kynið og þær efasemdir og hugarangur sem þeim fylgja. Þetta er bæði fyndin plata og afhjúpandi og persónuleg. Hún virkar eins og sambland af sjálfsþerapíu og kómískum söngleik. Söguhetjan fer í gegnum öll stigin í ferlinu: Hann er ástfanginn, missir áhugann, fyllist bölsýni, rífur sig niður og safnar kjarki á nýjan leik. Söngur Rowlands er líka mjög skemmtilegur. Hann túlkar oft hugar- ástand söguhetjunnar kostulega á leikrænan hátt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kevin Rowland kemur á óvart. Hann vakti mikla athygli árið 1999 þegar hann klæddist kjól utan á plötunni My Beauty og á tónleikum í kjölfarið. Sú plata var léleg. Nýja platan er hins vegar snilldarverk. Kostulegur Kevin SNILLDARVERK Kevin Rowland er í feiknagóðu formi á Dexys-plötunni. OJBA RASTA með Ojba Rasta er plata vikunnar. „Hin stóra reggíhljómsveitin á Íslandi með frábæra frumsmíð.“ - TJ Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 27. september - 3. október 2012 LAGALISTINN Vikuna 27. september - 3. október 2012 Sæti Flytjandi Lag 1 Retro Stefson ..............................................................Glow 2 Muse .....................................................................Madness 3 Ásgeir Trausti ................................................. Leyndarmál 4 Moses Hightower ............................. Sjáum hvað setur 5 Valdimar ......................................................................... Sýn 6 Philip Phillips ............................................................Home 7 Mumford & Sons ............................................. I Will Wait 8 Ragnar Bjarnason / Jón Jónsson ...................... Froðan 9 Of Monsters And Men ..................................Dirty Paws 10 Maroon 5 ............................................... One More Night Sæti Flytjandi Plata 1 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn 2 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal 3 Moses Hightower ................................ Önnur Mósebók 4 Retro Stefson ..............................................Retro Stefson 5 Mugison ........................................................... 5 CD Pakki 6 Eivör ............................................................................Room 7 Mannakorn ......................................... Í blómabrekkunni 8 Sigur Rós ...................................................................Valtari 9 Ojba Rasta .......................................................Ojba Rasta 10 Mumford & Sons ..................................................... Babel Glæsibæ • Sími 894 8060 www.rolo.is-Facebook

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.