Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 50
4. október 2012 FIMMTUDAGUR38
bio@frettabladid.is
38
Leikstjórarnir Joe og Anthony
Russo eru í óðaönn að undirbúa
tökur á kvikmyndinni Captain
America: The Winter Soldier. Leik-
arinn Chris Evans mun bregða sér
í gervi Captain America en óljóst
er hvaða leikkona leikur á móti
honum í myndinni.
Russo-bræðurnir hafa upplýst
að þeir myndu helst vilja fá leik-
konurnar Emiliu Clarke sem fer
með hlutverk Daenerys Targaryen
í Game of Thrones, Jessicu Brown
Findlay úr Downton Abbey, Teresu
Palmer sem lék í I Am Number
Four, Imogen Poots úr 28 Weeks
Later eða Alison Brie sem fer með
hlutverk Trudy Campbell í sjón-
varpsþáttunum Mad Men til liðs
við sig.
Allar leikkonurnar fimm eru
rísandi stjörnur og afskaplega
hæfileikaríkar og á orðatiltækið
„sá á kvölina sem á völina“ vel við
því Russo-bræðurnir eiga erfitt
verk fyrir hendi.
Eru á óskalistanum
Á ÓSKALISTANUM Emilia Clarke og
Alison Brie eru í hópi fimm leik-
kvenna sem orðaðar eru við hlutverk
í kvikmyndinni Captain America: The
Winter Soldier. NORDICPHOTOS/GETTY
Spennumyndin Taken 2
verður frumsýnd í kvik-
myndahúsum annað kvöld.
Liam Neeson bregður sér
aftur í hlutverk sérsveitar-
mannsins Bryans Mills.
Ári eftir að sérsveitarmaðurinn
Bryan Mills bjargaði dóttur sinni
úr klóm mannræningja er hann
staddur í fríi í Istanbúl. Dóttir hans
og fyrrverandi eiginkona koma í
óvænta heimsókn til hans en endur-
fundir fjölskyldunnar eru skamm-
lífir. Glæpamaðurinn Murad Kras-
niqi leitar hefnda því Mills myrti
son hans í París árinu áður. Kras-
niqi rænir því fyrrverandi eigin-
konu Mills á meðan dóttir hins
síðarnefnda leggur á flótta og aftur
þarf Mills að nýta þekkingu sína til
að bjarga ástvinum sínum úr klóm
ósvífinna glæpamanna.
Taken 2 er framhald spennu-
myndarinnar Taken frá árinu 2008.
Aftur er það Luc Besson sem fram-
leiðir myndina og skrifar handritið
ásamt Robert Mark Kamen. Leik-
stjóri myndarinnar er hinn franski
Olivier Megaton, en þeir Besson
unnu einnig saman við gerð hasar-
myndarinnar Colombiana, sem
skartaði Zoe Saldana í aðalhlut-
verki.
Taken 2 fær hörmulega dóma á
kvikmyndavefnum Rottentomatoes.
com og hlýtur aðeins 7 ferskleika-
stig af 100 mögulegum. Gagnrýn-
endur segja samtölin í myndinni
kjánaleg og að það eina sem geri
Taken 2 þolanlega sé atriðin þegar
Mills stekkur á milli húsþaka í
æsispennandi eltingaleik. Á kvik-
myndasíðunni Londonfilmfanatiq.
com segir að með Taken 2 hafi Bes-
son og Kamen eyðilagt fyrra sköp-
unarverk sitt. Þrátt fyrir þessa
neikvæðu dóma ætla 97 prósent
lesenda Rottentomatoes.com að sjá
myndina þegar hún kemur í kvik-
myndahús.
Liam Neeson fer aftur með hlut-
verk sérsveitarmannsins Bryans
Mills, Maggie Grace fer með hlut-
verk Kim Mills, Famke Janssen
leikur fyrrverandi eiginkonu Mills
og Rade Šerbedžija leikur illmenn-
ið Murad Krasniqi.
Glímir aftur við glæpona
Á HLAUPUM Liam Neeson bregður sér aftur í hlutverk sérsveitarmannsins Bryans Mills. Í Taken 2 leitar hann fyrrverandi konu
sinnar sem hefur verið rænt.
● Liam Neeson er írskur leikari sem sló í gegn árið 1993
með hlutverki sínu í Schindler‘s List. Fyrir hlutverkið
var hann tilnefndur til BAFTA-verðlaunanna, Óskars-
verðlaunanna og Golden Globe verðlaunanna sem
besti leikari í aðalhlutverki.
● Maggie Grace er uppalin í bænum Worthington í
Ohio í Bandaríkjunum. Hún hætti í menntaskóla og
flutti ásamt móður sinni til Los Angeles í þeirri von að
gerast leikkona. Hún hóf feril sinn með hlutverkum í
hinum ýmsu sjónvarpsþáttum en vakti fyrst heimsat-
hygli fyrir leik sinn í Taken.
● Famke Janssen er hollensk og vann áður sem fyrir-
sæta. Fyrsta kvikmyndahlutverk hennar var sem hin
illgjarna Xenia Onatopp í Bond-myndinni GoldenEye
frá árinu 1995.
● Leikarinn Rade Šerbedžija, oft nefndur Rade Sher-
bedgia á ensku, er af serbneskum uppruna. Hann var
einn vinsælasti leikari fyrrverandi Júgóslavíu á áttunda
og níunda áratug síðustu aldar. Hann hefur meðal
annars leikið í X-Men: First Class, Harry Potter and the
Deathly Hallows og sjónvarpsþáttunum CSI og 24.
FJÖLÞJÓÐLEGT LEIKARALIÐ TAKEN
3 SINNUM hefur frumsýningardegi kvikmyndarinnar The Lone Ranger verið
frestað. Johnny Depp fer með aðalhlutverk myndarinnar. Upprunalega stóð til að frum-
sýna myndina sumarið 2011 en hún verður líklega frumsýnd 13. júlí næsta ár.
★★★★★
LAWLESS
Yfirstíliseruð en kraftmikil saga frá
blúsuðu og búsuðu tímaskeiði.
★★★★★
THE DARK KNIGHT RISES
Helst til þunglamalegur lokakafli en
mikil veisla fyrir augun.
★★★★★
THE CAMPAIGN
Ekki sú hárbeitta pólitíska satíra sem
einhverjir vonuðust eftir en himna-
sending fyrir aðdáendur Wills Ferrell.
★★★★★
DJÚPIÐ
Ekki fullkomin en skipar sér þó sess
undir eins sem ein af bestu myndum
Baltasars.
★★★★★
ÁVAXTAKARFAN
Fyrir eldri börnin er þetta ef til vill
brytjað niður í óþarflega smáa bita.
En sem barnaefni fyrir þau yngstu er
Ávaxtakarfan nokkuð vel heppnuð.
★★★★★
THE EXPENDABLES 2
Engin meistarasmíð en talsvert betri
en fyrri myndin.
★★★★★
THE BOURNE LEGACY
Stendur fyrri myndunum að baki en
engu að síður frambærilegur njósna-
tryllir sem byggir á óvenjutraustri
formúlu.
Framleiðslufyrirtækið Dream-
Works hyggst búa til mynd um
ævi WikiLeaks-stofnandans Juli-
ans Assange. Leikarinn Benedict
Cumberbatch hefur verið orðaður
við hlutverk Assange.
Vefsíðan Deadline.com segir að
Jeremy Renner hafi einnig verið
orðaður við hlutverk Assange og
því sé ekki fullvíst að hlutverk-
ið falli Cumberbatch í skaut. Bill
Condon er líklegur til að leikstýra
myndinni, en hann hefur meðal
annars leikstýrt Kinsey, Dream-
girls og tveimur síðustu myndunum
í Twilight-myndaröðinni.
Gæti leikið
Assange
Í HLUTVERK ASSANGE Leikarinn
Benedict Cumberbatch gæti farið með
hlutverk Julians Assange í nýrri mynd.
NORDICPHOTOS/GETTY
HEFST Í KVÖLD KL. 21.20
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
ÞÚSUNDIR
MYNDBANDA
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
KVIKMYNDARÝNI