Fréttablaðið - 04.10.2012, Síða 55

Fréttablaðið - 04.10.2012, Síða 55
FIMMTUDAGUR 4. október 2012 43 „Hún er skemmtileg kántríhefðin hjá Norðmönnum, þeir eru svo mikið kántrí,“ segir gítarleikarinn Sigurgeir Sigmunds- son. Hann spilar með norsku kántrísveit- inni Big River Band einu sinni á ári á hátíðinni Lofoten Country Music Festi- val. Sveitin hefur gefið út eina plötu og þrisvar komist á norska kántrívinsældar- listann. „Íslendingar eru líka kántrísinn- aðir en þeir eru feimnari við að sýna það. Þeir eru feimnari við að setja upp hattinn og fara í skóna og köflóttu skyrtuna.“ Sigurgeir hefur í 35 ár spilað rokk með sveitum á borð við Start, Gildruna og Drýsil en undanfarin ár hefur hann fikrað sig út í kántríið með Klaufum og Björgvini Halldórssyni. Þar spilar hann á fetilgítara og kjöltustálgítara og er ein- mitt stofnandi Rokk- og stálgítarskólans. Aðspurður segir Sigurgeir sérstakt að spila á fetilgítarinn. „Þetta er eiginlega eins og að spila á gítarorgel,“ útskýrir hann. Á gítarnum eru tveir tíu strengja hálsar, átta fótpedalar og sex járn til að stýra tónunum. Sigurgeir snertir aldrei strengina með puttunum heldur notar járn til að spila. Hann leikur með Gildrunni á Eskifirði á laugardaginn. Sama dag geta tónlistar- unnendur fylgst með kynningu á hljóð- færum hans, þar á meðal kjöltustálgít- arnum sem hann grípur í með Gildrunni. - fb Íslendingar feimnir við kántríið HJÁ GÍTARSAFNINU Sigurgeir Sigmundsson spilar á hverju ári með norsku kántríhljómsveitinni Big River Band. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Aukatónleikum hefur verið bætt við hipphopphátíðina YOLO sem verður haldin á Þýska barnum 7. til 10. nóvember. Tónleikarnir verða fyrir unglinga og fara þeir fram í Stapanum í Reykjanesbæ 7. nóvember. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá stígur bandaríski rapparinn Hopsin frá útgáfunni Funk Volume á svið á hátíðinni, auk rjómans af íslenskum hipp- hoppurum. Meðal þeirra eru For- gotten Lores, Larry Bird, Úlfur Úlfur, MC Gauti, Blaz Roca, Steindi jr., Bent, Gísli Pálmi og Friðrik Dór. YOLO fyrir unglingana HOPSIN Bandaríski rapparinn Hopsin tekur þátt í hátíðinni YOLO. Trommuhátíðin Trommarinn verður haldin í fjórða sinn á laug- ardaginn í sal FÍH í Rauðagerði í Reykjavík. Sem fyrr verða hljóð- færaverslanirnar Hljóðfæra- húsið/Tónabúðin, Rín og Tóna- stöðin með allt það nýjasta til sýnis úr slagverks- og trommu- heimum og einnig stíga margir af bestu trommuleikurum lands- ins á svið. Heiðursverðlaun verða veitt fyrir ævistarf og falla þau að þessu sinni í hlut Péturs Östl- und, fyrrum trommara Hljóma, sem kemur til landsins af þessu tilefni. 120 fyrstu gestirnir fá happdrættismiða og aðgangur er ókeypis. Trommarinn í fjórða sinn PÉTUR ÖSTLUND Fyrrum tromm- ari Hljóma fær heiðursverðlaun á trommuhátíðinni. Uppáhaldslykt Alexanders Skars- gård er lyktin af pylsum. Hann segist tengja lyktina við fallegar bernskuminn- ingar. Skarsgård ólst upp í suður- hluta Stokk- hólms og skammt frá heimili hans var verksmiðja er framleiddi pylsur. „Lykt- in sem barst frá verksmiðjunni var ekki góð, hún var frekar ógeðfelld. En þessi lykt minnir mig alltaf á æskuárin því þegar ég gekk í skólann á morgnana fann ég þessa lykt. Núna finnst mér lyktin góð því hún minn- ir mig á bernsku mína,“ sagði Skarsgård sem er þó meinilla við lyktina af ilmspjöldum. Þykir pylsu- lykt best ALEXANDER SKARSGÅRD

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.