Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 62
4. október 2012 FIMMTUDAGUR50 BESTI BITINN Í BÆNUM Grínatriði með uppistandshópnum Mið- Íslandi hafa að undanförnu verið sýnd í þættinum FunnyHaHa TV á dönsku sjón- varpsstöðinni Zulu og á milli dagskrárliða á stöðinni. „Við tókum upp helling af dóti og við eigum meira inni. Síðan ráðum við sjálfir hvort við notum eitthvað af því heima á Íslandi,“ segir Halldór Halldórsson úr Mið-Íslandi. Einnig hafa verið sýnd atriði á vefsíðunni Funnyhaha.dk og í einu slíku sem gerist í flugvél metast Halldór og tveir aðrir Mið- Íslands-menn um hvað þeir ætla að gera þegar þeir lenda í Kaupmannahöfn. Orð- bragðið er nokkuð gróft í atriðinu þar sem eiturlyf, kynlíf og Hells Angels í Danmörku koma við sögu en Halldór kippir sér lítið upp við það. „Við erum líka grófir. Við eigum okkur margar hliðar,“ segir hann og veit ekki til þess að aldurstakmörk séu á gríninu. „Danir eru svo opnir og „ligeglad“. Það sem er rosalega klúrt í uppistandi er heldur ekk- ert svo dónalegt í „sketsum“.“ Eins og Fréttablaðið hefur greint frá var framleiðslufyrirtækið Douglas Entertain- ment, sem er stýrt af grínistanum Casper Christensen, á bak við upptökur Mið-Íslands fyrir FunnyHaHa TV í sumar. „Þegar við vorum þarna úti hittum við hann oft. Hann var hress og hefur gaman af Íslendingum,“ segir Halldór, spurður út í Christensen. - fb Eiturlyf, kynlíf og Hells Angels MIÐ-ÍSLAND Atriði með uppistandshópnum hafa verið sýnd í þættinum FunnyHaHa TV í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Nýja serían leggst frábærlega vel í mig enda er mjög gefandi að fá tækifæri til að styrkja sjálfstraustið hjá fólki,“ segir Karl Berndsen. Skráning er nú hafin í væntanlega sjónvarpsþætti hans sem heita Í nýju ljósi. Í nýju ljósi birtist á skjánum eftir ára- mót en tökur hefjast síðar í þessum mán- uði. Útlits- og lífsstílsráðgjöf Karls er fyr- irferðarmest í þáttunum, en að þessu sinni leitar hann að þátttakendum af báðum kynjum og líka pörum, systkinum og vinum. Karl er vongóður um að karlpeningurinn skrái sig til leiks. „Ég er bjartsýnn, þótt auðvitað sé ómögulegt að vita hvernig þátttakan verður. Ég held samt að íslenskir karl- menn séu mun opnari og óþvingaðri en margir kynbræður þeirra erlendis,“ segir Karl. Hann hvetur alla sem eru reiðubúnir að fara í sjálfskoðun og vilja gera jákvæðar breytingar að taka þátt. Karl hefur getið sér gott orð sem hárgreiðslu- maður og veitt útlitsráðgjöf árum saman. Í þáttunum ætlar Karl að leggja áherslu á að fræða áhorfandann. „Allir eiga að geta nýtt sér þær upplýsingar sem ég veiti. Ég stefni á að kynna ýmislegt fróðlegt og tvinna það svo saman við útlitsráðgjöfina í hverjum þætti fyrir sig.“ Allir yfir átján ára geta skráð sig á vefsíðunni Stod2.is. - áp Íslenskir karlmenn opnir HEFUR TÖKUR Á NÝRRI SERÍU Karl Berndsen ætlar að veita körlum og konum útlitsráðgjöf í nýrri þáttaröð. FRÁ BOLVÍKINGAFÉLAGINU BOLVÍKINGAMESSA OG KAFFI 2012 Árleg Bolvíkingamessa verður haldin í Bústaðakirkju í Reykjavík sunnudaginn 7. október. Messan hefst kl. 14:00. Að messu lokinni verður kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjón kaffinefndar Bolvíkingafélagsins. Bolvíkingar eru hvattir til að mæta og eiga notalega stund í góðra vina hópi. Þeir sem sjá sér fært að koma með meðlæti með kaffinu fá alúðarþakkir. Stjórn Bolvíkingafélagsins Dublin 87.900 kr.* *m.v. 2 fullorðna í tvíbýli á Hotel Camden Court með morgunmat. „Það er aldrei nóg af söng og gleði,“ segir Sigurgeir Ingi Þor- kelsson, varaforseti nemenda- félags Menntaskólans við Hamra- hlíð og einn forsprakka nýstofnaðs Glee-klúbbs í skólanum. Klúbburinn er að fyrirmynd bandarísku sjónvarpsþáttanna Glee sem fjalla um hóp ungs fólk í menntaskóla sem sameinast í söng og dansi. Í kjölfar vinsælda þátt- anna hafa Glee-klúbbar sprottið upp út um allan heim, en Sigur- geir er þess fullviss að þessi sé sá fyrsti hér á landi. Hugmyndin að klúbbnum kviknaði í tengslum við kosn- ingabaráttu núverandi forseta nemendafélagsins, Hjalta Vig- fússonar, í vor. Sigurgeir gengur svo langt að fullyrða að kosninga- loforð Hjalta um stofnun Glee- klúbbs innan veggja MH hafi tryggt honum sigurinn. „Fyrst var hugmyndin sett fram meira í gríni en alvöru, en vegna fjölda áskorana var ákveðið að hrinda henni í framkvæmd. Yfir hundr- að manns hafa boðað komu sína á fyrsta fundinn,“ segir Sigur- geir, en téður stofnfundur verður haldinn í dag klukkan hálf fjögur. „Ég auglýsi eftir íslensku nafni á klúbbinn. Hugsanlega gæti hann heitið Gleðiklúbburinn,“ veltir Sigurgeir fyrir sér. Hann hvetur nemendur annarra menntaskóla til að fara að þessu fordæmi og stofna Glee-klúbb. Þá sér hann fyrir sé svokallaða Glee- keppni milli skólanna í framtíð- inni. „Við erum svo heppin að hafa góðan aðgang að listafólki hér í MH. Hér er listdansbraut og mikið af hæfileikaríku tónlistarfólki. Við höfum í það minnsta efnivið- inn í þetta og það væri gaman að skora aðra skóla á hólm.“ Í sjónvarpsþáttunum bresta meðlimir klúbbsins í söng í tíma og ótíma en Sigurgeir er ekki viss um að sú verði raunin hjá MH-ing- unum. „Nei, ég held að við einbeit- um okkar að því að æfa atriði og sýna svo skólafélögunum afrakst- urinn. Sjálfur ætla ég að beita mér fyrir því að við byrjum á laginu Don‘t Stop Believing með Journey, sem er svona klassískt Glee-lag.“ alfrun@frettabladid.is SIGURGEIR INGI ÞORKELSSON: ALDREI NÓG AF GLEÐI OG SÖNG Í MH Mikil aðsókn í Glee-klúbb NÓG AF SÖNG OG GLEÐI Sigurgeir Ingi Þorkelsson sést hér ásamt öðrum stofnendum Glee-klúbbs Menntaskólans við Hamrahlíð en yfir hundrað manns hafa boðað komu sína á stofnfundinn sem haldinn verður í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ■ Hóf göngu sína árið 2009. ■ Fjórða serían er núna í sýningu í Bandaríkjunum. ■ Í aðalhlutverkum eru meðal annars leikararnir Dianne Agron, Lea Michele og Cory Monteith sem öll hafa orðið fræg í kjölfarið. ■ Fyrsta sería Glee var tilnefnd til nítján Emmy-verðlauna og fjögurra Golden Globe-verðlaun. ■ Aðdáendur þáttanna kalla sig Gleeks á samskiptamiðlum á borð við Twitter og Facebook, en það er samsetning á ensku orðunum glee og geeks. ■ Þættirnir fjalla um hóp krakka í menntaskóla sem dansa og syngja saman. Eitt af lykilatriðum á bak við vinsældir Glee er að leikararnir taka fyrir vinsæl lög samtímans og útfæra með sínum eigin hætti. Íslenska söngkonan Björk hafnaði beiðni aðstandenda Glee um að nota lag hennar í síðustu seríu. STAÐREYNDIR UM SJÓNVARPSÞÁTTINN GLEE „Ætli ég verði ekki að segja að besti bitinn í bænum séu pönnukökurnar sem Arnar, maðurinn minn, bakar fyrir mig á sunnudagsmorgnum.“ Unnur Malín Sigurðardóttir, meðlimur hljómsveitarinnar Ojba Rasta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.