Fréttablaðið - 24.10.2012, Síða 32
24. OKTÓBER 2012 MIÐVIKUDAGUR10
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða!
Miðasala í
fullum gangi!
Sýnt í Borgarleikhúsinu
í október, nóvember og desember.
Sýningar í Hofi á Akureyri í nóvember.
Skipting eftir eignaflokkum
FJARSKIPTI
Þorgils Jónsson | thorgils@frettabladid.is
Áhugasamir Íslendingar geta átt
þess kost eftir næstu áramót að
nýta snjallsíma til að greiða fyrir
vörur og þjónustu. Íslenska korta-
fyrirtækið Valitor stendur fyrir
þessu verkefni ásamt Visa Eu-
rope og hugbúnaðarfyrirtækinu
Oberthur Technologies. Mark-
miðið er að innleiða nýja tækni
sem býður upp á snertilausar
kreditkortagreiðslur með snjall-
síma við posabúnað.
„Þetta eykur hagræði fyrir
neytendur og kemur sér líka vel
fyrir kaupmenn þar sem kaup
ganga fljótar fyrir sig,“ segir
Henrik Bromée frá Visa Europe,
en hann var staddur hér á landi
til að kynna tæknina á ráðstefnu
um kortaviðskipti á alþjóðlegum
vettvangi sem Valitor stóð fyrir.
Visa prófaði tæknina með góðum
árangri á Ólympíuleikunum í
London, að sögn Henriks, en
hann segir Ísland vera kjörinn
vettvang fyrir næsta tilrauna-
verkefni.
„Bæði eru Íslendingar sér á
báti hvað varðar kortaeign og
notkun, en hér eru 2,5 Visakort
á hvern mann, samanborið við
innan við eitt á mann í Evrópu,
og svo er snjallsímanotkun líka
mjög útbreidd.“
Kristján Harðarson, sviðsstjóri
markaðs- og þjónustusviðs Val-
itor, tekur undir það og bendir
á að samkvæmt nýlegri könnun
MMR sé yfir helmingur lands-
manna með snjallsíma.
Kerfið gengur þannig fyrir sig
að notandi fær útgefið sérstakt
símkort með innbyggðri flögu
frá kortafyrirtækinu, og setur
svo upp forrit í símanum sínum,
en fyrsta kastið verður hægt að
setja það upp í tveimur tegundum
af Samsung-símum.
Við kaup fyrir lægri upphæð
en 3.500 krónur nægir að bera
símann upp að posanum, en
fyrir hærri upphæðir þarf að
slá inn pin-númer á símann. Vilji
notendur hins vegar auka öryggið
enn frekar er hægt að búa svo um
að pin-númer sé alltaf notað.
Hvað varðar öryggi segir Krist-
ján að þetta nýja fyrirkomulag sé
í engu óöruggara.
„Síminn er í raun greiðslukort,
en í þessu nýja kerfi er hægt að
loka fyrir kortið með tilkynn-
ingu til okkar enn hraðar en nú er
mögulegt. Þannig er nýja kerfið
enn öruggara að mörgu leyti.“
Hvað varðar kostnað segir
Kristján að ljóst sé að kaupmenn
munu ekki bera aukinn kostnað af
þessu fyrirkomulagi, en hvað not-
endur áhrærir segir Kristján að
ekkert hafi enn verið ákveðið en
það muni skýrast með reynslunni.
Henrik segir aðspurður að Visa
Europe líti þannig á að framtíðin
liggi á þessu sviði. „For stjórinn
okkar hefur að minnsta kosti
látið hafa það eftir sér að árið
2020 verði allar færslur með Visa
gerðar með síma eða álíka tæki.“
Sé þó litið til nánustu framtíðar
hér á landi hefur tilraunaverk-
efnið verið í undirbúningi frá því
í febrúar og á næstu vikum verð-
ur komið upp posum á sölu stöðum
á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir ára-
mót munu fimmtíu korthafar fá
tilboð um að prófa kerfið til að
ganga úr skugga um að allt verði
til reiðu í upphafi næsta árs þegar
þúsund símkort og þrjú þúsund
snertilaus greiðslukort verða
gefin út og allt fer á fulla ferð.
„Þannig verður það út næsta
ár,“ segir Kristján, „en ef að allt
gengur að óskum, eins og ég býst
við, verður jafnvel hægt að stíga
skrefið til fulls fyrr.“
Snjallsíminn greiðslu-
máti framtíðarinnar
Valitor hleypir af stokkunum tilraunaverkefni þar sem hægt verð-
ur að borga með snjallsímum í posa án snertingar. Þúsund símar
verða með eftir áramót. Talið að fyrir 2020 verði kortafærslur
komnar yfir í snjallsíma eða álíka tæki.
Í SÍMANUM Kristján Harðarson hjá Valitor og Henrik Bromée frá Visa Europe eru
sannfærðir um að framtíðin liggi í snjallsímunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skuldabréf 6,27%
Keldukrónur 39,42%
Hlutabréf 23,73%
Sjóðir 20,56%
Gjaldmiðlar 10,01%
EFSTU SPILARAR
Bjarni Kolbeinsson ▲ 8,78
Rakel Ásgeirsdóttir ▲ 8,36
Benedikt Benediktsson ▲ 6,28
Tómas Árni Jónsson ▲ 6,15
Jónína Olsen ▲ 6,08
Óli Þór Ásgeirsson ▲ 5,69
Kjartan Ásþórsson ▲ 4,63
Gísli Halldórsson ▲ 3,73
Stefán Jónsson ▲ 3,44
Ingólfur Árni Gunnarsson ▲ 3,42
Eina sjónvarpsstöðin í heiminum sem helguð er sönnum sakamálum
ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS