Fréttablaðið - 24.10.2012, Síða 34
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Jón Steinar Gunnlaugsson,
fyrrum hæstaréttardómari.
ERLENT MYNDBAND
Buffet horfi r í
grunnreksturinn.
Ég er frumkvöðull og byrjaði fyrst
á minni vegferð fyrir tíu árum eða
svo. Ég hef flutt inn skartgripi frá
Kína, selt fasteignatækifæri í Dubai
og stofnað auglýsingavörufyrir-
tæki. Á sama tíma hef ég stofnað
til fjölskyldu, verið í fjarbúð, lokið
háskólanámi og alið upp barn. Sum
þessara verkefna hafa gengið vel,
önnur verr. Mitt nýjasta verkefni er
FAFU, þar sem við sköpum fjölnota
leikefni fyrir leikskólabörn. Allt er
þegar fernt er, ekki satt?!
„Alvöru vinna“
Vinir mínir spyrja mig stundum
hvernig ég nenni þessu. Hvers vegna
ég fái mér ekki bara 9-5 vinnu, (það
sem amma kallar „alvöru vinnu“)
með reglulegum útborgunum og
helgarfríum. Vissulega væri nyt-
samlegt að fá aðeins hærri laun
og það í hverjum mánuði. En ég
lifi eftir þeirri lífspeki að gera aldrei
neitt eingöngu fyrir peningana. Það
verður að liggja eitthvað dýpra að
baki því hvernig ég nýti meirihlutann
af mínum vökustundum.
Því fylgja óneitanlega margir
gallar að vera frumkvöðull. Langir
vinnudagar, mikil óvissa og slatti af
streitu stendur upp úr. Ég hef þurft
að verja löngum stundum frá fjöl-
skyldunni þar sem ég hef oft þurft
að vinna fram eftir og ég hef ferðast
mikið vegna starfsins. Á móti kemur
að ég hef meðal annars fengið að
ferðast til Nepal, Kína og Dubai,
hitt fullt af áhugaverðu fólki, kynnst
nýjum menningarheimum, lært,
þroskast og vaxið. Ég hlakka til að
mæta í vinnuna á hverjum degi því
ég hef ástríðu fyrir starfinu mínu.
Minn drifkraftur er að stjórna mínum
örlögum sjálf, skapa eitthvað sjálf og
gera eitthvað sem skiptir máli. Þetta
gerir löngu dagana betri og óvissuna
bærilegri.
Ómetanleg vinna
Hvað er svona merkilegt við að vera
frumkvöðull? Heill hellingur. Ég
hef öðlast ómetanlega reynslu af
því að þurfa sjálf að finna út úr því
hvernig við fjármögnum reksturinn
yfir erfiðustu mánuðina, hvernig við
byggjum upp vörumerki með afar
takmarkað fjármagn til markaðs-
setningar og tekist á við erfið
samningamál. Þessa dagana er ég
að læra að byggja upp gæðakerfi
og að stýra stjórnarfundum svo eitt-
hvað sé nefnt. Í hnotskurn hef ég
lært meira um viðskipti og rekstur
en ég lærði í nokkrum kúrsi í mínu
þriggja ára háskólanámi í viðskipta-
fræði. Svo þegar þú spyrð mig hvers
vegna ég sé frumkvöðull, þá spyr ég
þig: Hvers vegna ert þú ekki frum-
kvöðull?
Hvað er svona
merkilegt við að
vera frumkvöðull?
Hin
hliðin
ÞÓRUNN
JÓNSDÓTTIR
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tilnefnt til
Grímunar 2012
sem besta
barnasýningin
Fréttatíminn Morgunblaðið
Baunagrasið
og
Sun 21/10 kl. 13:00
Sun 28/10 kl. 13:00
„Ég gat hlegið
endalaust á
þessari sýningu“
M.K. Djöflaeyjan, RÚV.
„Þeir Gói og Þröstur segja
söguna eins og þeim einum
er lagið með leiftrandi húmor
og hnyttnum orðatiltækjum“
I.Þ. Hugrás, HÍ.
Gói
„Þetta gamla ævintýri segja þeir
Gói og Þröstur nú á Litla sviði
Borgarleikhússins við mikla
ánægju ungra leikhúsgesta“
S.A. TMM.
Einn Gói, þrjár baunir og margfaldur Þröstur verða að heilu ævintýri
Bráðskemmtileg og fyndin leiksýning fyrir alla fjölskylduna
SÍÐUSTU
SÝNINGAR!
Save the Children á Íslandi