Fréttablaðið - 24.10.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 24.10.2012, Blaðsíða 34
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrum hæstaréttardómari. ERLENT MYNDBAND Buffet horfi r í grunnreksturinn. Ég er frumkvöðull og byrjaði fyrst á minni vegferð fyrir tíu árum eða svo. Ég hef flutt inn skartgripi frá Kína, selt fasteignatækifæri í Dubai og stofnað auglýsingavörufyrir- tæki. Á sama tíma hef ég stofnað til fjölskyldu, verið í fjarbúð, lokið háskólanámi og alið upp barn. Sum þessara verkefna hafa gengið vel, önnur verr. Mitt nýjasta verkefni er FAFU, þar sem við sköpum fjölnota leikefni fyrir leikskólabörn. Allt er þegar fernt er, ekki satt?! „Alvöru vinna“ Vinir mínir spyrja mig stundum hvernig ég nenni þessu. Hvers vegna ég fái mér ekki bara 9-5 vinnu, (það sem amma kallar „alvöru vinnu“) með reglulegum útborgunum og helgarfríum. Vissulega væri nyt- samlegt að fá aðeins hærri laun og það í hverjum mánuði. En ég lifi eftir þeirri lífspeki að gera aldrei neitt eingöngu fyrir peningana. Það verður að liggja eitthvað dýpra að baki því hvernig ég nýti meirihlutann af mínum vökustundum. Því fylgja óneitanlega margir gallar að vera frumkvöðull. Langir vinnudagar, mikil óvissa og slatti af streitu stendur upp úr. Ég hef þurft að verja löngum stundum frá fjöl- skyldunni þar sem ég hef oft þurft að vinna fram eftir og ég hef ferðast mikið vegna starfsins. Á móti kemur að ég hef meðal annars fengið að ferðast til Nepal, Kína og Dubai, hitt fullt af áhugaverðu fólki, kynnst nýjum menningarheimum, lært, þroskast og vaxið. Ég hlakka til að mæta í vinnuna á hverjum degi því ég hef ástríðu fyrir starfinu mínu. Minn drifkraftur er að stjórna mínum örlögum sjálf, skapa eitthvað sjálf og gera eitthvað sem skiptir máli. Þetta gerir löngu dagana betri og óvissuna bærilegri. Ómetanleg vinna Hvað er svona merkilegt við að vera frumkvöðull? Heill hellingur. Ég hef öðlast ómetanlega reynslu af því að þurfa sjálf að finna út úr því hvernig við fjármögnum reksturinn yfir erfiðustu mánuðina, hvernig við byggjum upp vörumerki með afar takmarkað fjármagn til markaðs- setningar og tekist á við erfið samningamál. Þessa dagana er ég að læra að byggja upp gæðakerfi og að stýra stjórnarfundum svo eitt- hvað sé nefnt. Í hnotskurn hef ég lært meira um viðskipti og rekstur en ég lærði í nokkrum kúrsi í mínu þriggja ára háskólanámi í viðskipta- fræði. Svo þegar þú spyrð mig hvers vegna ég sé frumkvöðull, þá spyr ég þig: Hvers vegna ert þú ekki frum- kvöðull? Hvað er svona merkilegt við að vera frumkvöðull? Hin hliðin ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Tilnefnt til Grímunar 2012 sem besta barnasýningin Fréttatíminn Morgunblaðið Baunagrasið og Sun 21/10 kl. 13:00 Sun 28/10 kl. 13:00 „Ég gat hlegið endalaust á þessari sýningu“ M.K. Djöflaeyjan, RÚV. „Þeir Gói og Þröstur segja söguna eins og þeim einum er lagið með leiftrandi húmor og hnyttnum orðatiltækjum“ I.Þ. Hugrás, HÍ. Gói „Þetta gamla ævintýri segja þeir Gói og Þröstur nú á Litla sviði Borgarleikhússins við mikla ánægju ungra leikhúsgesta“ S.A. TMM. Einn Gói, þrjár baunir og margfaldur Þröstur verða að heilu ævintýri Bráðskemmtileg og fyndin leiksýning fyrir alla fjölskylduna SÍÐUSTU SÝNINGAR! Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.