Fréttablaðið - 24.10.2012, Page 36
24. október 2012 MIÐVIKUDAGUR16
BAKÞANKAR
Svavar
Hávarðsson
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. flagg, 6. kúgun, 8. miskunn, 9.
skordýr, 11. í röð, 12. land í Asíu, 14.
tímamælir, 16. tveir eins, 17. hyggja,
18. eyrir, 20. umhverfis, 21. umkringi.
LÓÐRÉTT
1. gas, 3. utan, 4. eiginleika, 5.
svelg, 7. hveitilím, 10. hljóðfæri, 13.
hnoðað, 15. ná yfir, 16. verkur, 19.
kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fáni, 6. ok, 8. náð, 9. fló,
11. tu, 12. tíbet, 14. sólúr, 16. tt, 17.
trú, 18. aur, 20. um, 21. krói.
LÓÐRÉTT: 1. loft, 3. án, 4. náttúru,
5. iðu, 7. klístur, 10. óbó, 13. elt, 15.
rúma, 16. tak, 19. ró.
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þeir sögðu
hann
galinn!
En hann
lét ekki
segjast!
Þeir
sögðu
að þetta
væri of
snemmt!
Og að hann
hefði átt að læra
af mistökum
sínum! Jæja elsku
skeptísku vinir
mínir, ég hef fréttir
að færa...
Grilltímabilið
er hafið!!
Maggi! Viltu
hlaupa niður
og ná í pítsu í
frystinum?
Here
you
go!
Tvær skeiðar af próteini í
einu glasi af sojamjólk. Með dass af súkkulaðis-
írópi.
Hvernig er heil-
brigði lífsstíllinn
að ganga upp?
Hjálp óskast. Beit hönd-ina sem gaf mér að borða.
Mamma! Hvar
eru sokkarnir
mínir?
Gáðu á
gólfið í
herberginu
þínu!
Mamma! Ég
finn ekki bæk-
urnar mínar!
Gáðu á
gólfið í
herberginu
þínu!
Mamma! Hvar
er tannburstinn
minn?
Gáðu á
gólfið í
herberginu
þínu!
Vá!
Þú veist alltaf
hvar dótið mitt er.
Það er
hæfileiki.
Network Scenario Automation (NSA) is a part of Network Scenario Group.
Network Scenario Group represents a total annual turnover of about 20
million NOK. Network Scenario Automation AS is a young company with
a strong focus on the interface between IT and Automation. The company
was established in 2011. We are now strenghtening our staff to be able
to handle the increasing demands. The company HQ is located in Skien,
Telemark, Norway.
Visit us @ European Job Days Reykjavik Town hall,
26th – 27th October 2012
PLC Programmer/
Automation Engineer
Responsibilities
We look for people who are versatile, practical and have
up to date experience in PLC programming, industrial
automation and electrical engineering.
• Programming of PLC and screen-based control systems
• Design solutions and prepare technical specifications
• Planning and implementation of projects
• Prepare project documentation
• Follow-up on completed work
• Design for electrical and automation systems
Qualifications
• BSc. / MSc. within the field of Automation and or Electrical
• Knowledge of Omron, Allen-Bradley, Wonderware, Siemens
• Good communication skills, both Norwegian and English
• Independent but also able to work in teams.
• Proven References
• Working organized and systematic
• Industrial or Offshore background
We offer
• Interesting and challenging work in a growing company
• Pension and Insurance plans
• Pleasant working environment
• Competitive conditions
• Career Development
For questions about the position please contact:
Kjetil Bakken, General Manager, kb@netscenario.no, Mobile
Phone : +47 948 82 799
Please email resume and job application within
27th October 2012.
Save the Children á Íslandi
Fyrir ekki svo löngu rakst ég á gamlan félaga minn að austan. Leiðir höfðu
skilið fyrir margt löngu en ég kallaði til
hans í léttum tón eins og ég var vanur.
Það var á þeim nótunum að ef hann gerði
ekkert í sínum málum þá dræpi hann
sig á þessu helvítis fylleríi alltaf hreint.
„Sömuleiðis, helvítis Stöddarinn þinn,“ var
svarið. Hann hló við – en við vissum báðir
hvað klukkan sló. Við áttum síðan
gott spjall áður en við kvöddumst.
Auðvitað ætluðum við að hittast
aftur fljótlega, þó við vissum
báðir að það stæði í rauninni ekki
til. Einhverjum vikum seinna
varð hann úti. Hann lagðist til
svefns á víðavangi og dó úr kulda.
ÞEGAR ég fékk þessar fréttir
kom margt upp í hugann.
Maður var fyrst og síðast
dapur. Þvílík sóun! En ég
velti því líka fyrir mér
hversu margir væru í hans
sporum. Ég rifja þetta upp
núna af því að velferðarsvið
Reykjavíkurborgar birti á
mánudaginn skýrslu um
fjölda og aðstæður úti-
gangsfólks – og þar var
svarið við spurningunni
innan um alls konar
aðra tölfræði. Skýrslan er merkileg fyrir
margra hluta sakir, en niðurstöðutalan er
skelfileg. Þau eru 179, sem teljast til þessa
hóps samkvæmt skýrslunni, en eru senni-
lega nokkru fleiri. Það er erfitt að með-
taka þessar upplýsingar, eins og reyndar
alltaf þegar tölfræði um neyð fólks birtist
á prenti – en prófaðu samt að telja upp að
179. Það hjálpar.
NÚ er það svo að SÁÁ stendur þessa dag-
ana fyrir átaki undir yfirskriftinni Betra
líf. Í tillögum frá þeirra hendi er lagt til
að úrræði verði þróuð til að koma þessum
hópi til hjálpar. Í þessu felst einfaldlega að
þessu fárveika fólki sé sýnd sú mannúð og
það réttlæti sem það á heimtingu á. Þetta
snýst nefnilega um mannréttindi, sem
okkur hinum, eðlilega, er tamt að halda á
lofti þegar við teljum að á okkur hafi verið
brotið.
Í SKRIFUM forsvarsmanns SÁÁ vegna
átaksins kemur fram einfaldur en hroll-
kaldur sannleikur: Það eru ekki veikasta
fólkið af því að það er lakast; það er veik-
ast af því að við bjóðum því ekki upp á
úrræði í samhengi við stöðu þess. Og ef
ég skil þetta allt rétt þá snýst þetta fyrst
og síðast um einfalda hluti. Að þurfa ekki
að búa sér rúm úti á Granda og deyja úr
kulda, er bara eitt dæmi.
Að deyja úr kulda