Fréttablaðið - 05.11.2012, Qupperneq 8
5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR8
ÚTGREIÐSLUR SÉREIGNAR
2009-2013
2009 22,0 milljarðar
2010 16,9 milljarðar
2011 24,4 milljarðar
2012 14,8 milljarðar
2013 1,9 milljarðar
Alls: 79,5 milljarðar
ÚTSVAR AF SÉREIGN
2009 2,9 milljarðar
2010 2,2 milljarðar
2011 3,5 milljarðar
2012 2,1 milljarðar
2013 0,3 milljarðar
Alls: 11 milljarðar
FJÁRMÁL Tekjuskattur ríkisins af
útgreiðslu séreignar sparnaðar
nemur tæplega 20 milljörðum
króna. Útsvarstekjur sveitarfélag-
anna eru aðrir ellefu milljarðar
króna.
Umsóknarfrestur til að sækja
um útgreiðslu á séreignarsparnaði
rann út 30. september síðastliðinn.
Frá því að heimilað var að taka út
séreignarsparnaðinn í mars árið
2009 hafa tæplega 80 milljarðar
króna verið teknir út. Heimild til
útgreiðslu á séreignarsparnaði
var tímabundin hrunsaðgerð sem
Alþingi samþykkti. Það hefur haft
í för með sér tímabundna hækkun
á útsvarstekjum sveitarfélaga og
tekjuskatti ríkisins.
Hag- og upplýsingasvið Sam-
bands sveitarfélaga hefur tekið
saman útgreiðslu sparnaðarins hjá
hverju sveitarfélagi fyrir sig og þær
útsvarstekjur sem úttektirnar skil-
uðu. Heildarupphæðirnar eru veru-
legar; lægst 2,1 milljarður á þessu
ári en útsvarstekjur sveitarfélag-
anna urðu mestar 3,5 milljarðar
árið 2011. Umfang aðgerðarinnar
sést glögglega í tölfræði Sam-
bandsins.
Þegar einstök sveitarfélög eru
skoðuð sést að Reykvíkingar tóku
út 27,5 milljarða króna á tímabilinu,
af því var greitt útsvar að upphæð
3,5 milljarðar króna. Kópavogs-
búar tóku út 8,7 milljarða króna
og greiddu 1,1 milljarð til sveitar-
félagsins, svo annað dæmi sé tekið.
Heildarútgreiðslur séreignar
voru hæstar árið 2011, eða 24,4
milljarðar króna, en eru tæpir 15
milljarðar í ár. Samkvæmt gögnum
Ellefu milljarða aukaútsvar
Eigendur séreignarsparnaðar taka út 80 milljarða króna frá mars 2009. Af þeirri upphæð fær ríkið og
sveitarfélögin 31 milljarð í tekjuskatt og útsvar. Útgreiðsla séreignar var mest fyrri hluta árs 2011.
sem tekju- og skattaskrifstofa fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins tók
saman fyrir Fréttablaðið kemur
fram að ríkissjóður hefur í hverj-
um mánuði allt tímabilið fengið á
bilinu 300 til 600 milljónir króna í
skatttekjur. Þessar tekjur fóru hæst
í rúman milljarð í júlí 2011 þegar
útgreiðslur voru hæstar.
Langflestir hafa haldið áfram að
greiða í séreignarsjóði þrátt fyrir að
hafa nýtt sér heimild til sérstakrar
útgreiðslu sparnaðar eftir hrunið.
Aðeins 1.224 færri greiddu í slíka
sjóði árið 2010 en árið á undan, og
voru þá 62.251, samkvæmt upplýs-
ingum Landssamtaka lífeyrissjóða.
Heildareignir landsmanna í sér-
eignarsparnaði hafa aukist um tugi
milljarða frá því í mars 2009, þrátt
fyrir útgreiðslu 80 milljarða króna.
Það er hægt að lesa í gögnum Seðla-
banka Íslands frá því í fyrra. Eign
landsmanna í séreignarsparnaði var
327 milljarðar króna hinn 30. júní
2011. Heildarinnistæður séreignar-
sparnaðar frá hruni höfðu þá vaxið
um 75 milljarða en þær voru 255
milljarðar í árslok 2008; 288 millj-
arðar í árslok 2009 og 314 milljarðar
um áramótin 2010. Vöxturinn hefur
því verið níu til þrettán prósent
árlega, og því óhætt að áætla að
heildareignir í séreignarsjóðum séu
nú um 380 milljarðar króna.
svavar@frettabladid.is
Úttektir og útsvar tíu sveitarfélaga 2009-2012
FJARÐABYGGÐ
Útsvar: 162
Úttekt: 1.200
FLJÓTSDALSHÉRAÐ
Útsvar: 80
Úttekt: 640
Heimildin til útgreiðslu
var fyrst ein milljón. Síðan
var sú fjárhæð hækkuð
í 2,5 milljónir, þá í fimm
milljónir og síðast í 6.250
þúsund með lagabreyt-
ingu í september 2011.
ALLAR TÖLUR ERU Í
MILLJÓNUM KRÓNA
AKUREYRARBÆR
Útsvar: 520
Úttekt: 4.100
ÍSAFJARÐARBÆR
Útsvar: 99,5
Úttekt: 787
VESTMANNAEYJAR
Útsvar: 143
Úttekt: 1.100
ÁRBORG
Útsvar: 208
Úttekt: 1.600
REYKJAVÍK
Útsvar: 3.500
Úttekt: 27.500
KÓPAVOGUR
Útsvar: 1.100
Úttekt: 8.700
HAFNARFJÖRÐUR
Útsvar: 943
Úttekt: 7.400
REYKJANESBÆR
Útsvar: 448
Úttekt: 3.500
LONDON, AP Breska ríkisstjórnin
gæti fyrirskipað opinbera rann-
sókn á meðhöndlun breska rík-
isútvarpsins, BBC, á kynferðis-
brotum Jimmys Savile. Það sagði
Maria Miller, menningarmálaráð-
herra Breta sem einnig hefur með
fjölmiðlamál að gera, í samtali við
The Sunday Telegraph í gær.
Miller sagði að búast mætti við
opinberri rannsókn ef innra eftir-
lit BBC fyndi ekki fullnægjandi
skýringar á því hvernig á því stóð
að kynferðisbrot Saviles hefðu
verið látin viðgangast áratugum
saman.
Savile, einn
frægasti sjón-
varpsmaður
BBC , hefu r
verið sakaður
um að hafa beitt
hundruð ung-
linga kynferð-
islegu ofbeldi
á meðan hann
vann við sjón-
varpsstöðina.
Innan BBC stendur nú yfir
rannsókn á því hvort Savile hafi
nýtt sér frægð sína og stöðu
innan sjónvarpsins til að lokka
unglingana og hvort félagar hans
hafi vitað af framferði hans án
þess að tilkynna það. Auk þess er
kannað hvort forsvarsmenn eins
af vinsælustu skemmtiþáttum
stöðvarinnar hafi haft vitneskju
um misnotkunina í desember
síðast liðnum en ákveðið að stinga
þeim upplýsingum undir stól til
að varpa ekki skugga á hyllingar-
þætti um Savile sem stöðin sýndi
í upphafi þessa árs. Ásakanir um
kynferðislega misnotkun Saviles
á unglingum komu fyrst fram hjá
samkeppnisstöðinni ITV.
- fsb
Ráðherra fjölmiðlamála í Bretlandi hótar opinberri rannsókn á Savile-málinu:
Krefst fullnægjandi skýringa frá BBC
JIMMY SAVILEVAR BRENNDUR UM HELGINA
Líkneski af hjólreiðakappanum Lance
Armstrong var um helgina brennt
í bænum Edenbridge í Bretlandi á
brennunótt, sem haldin er árlega til
minningar um sprengjumanninn Guy
Fawkes. NORDICPHOTOS/AFP
SVÍÞJÓÐ Skemmdarverk voru
unnin á tveimur skrifstofum
útlendingastofnunar í Svíþjóð
fyrir helgi. Rúður voru brotnar,
málningu hellt um skrifstofur
og slagorð á borð við „hafnanir
ykkar drepa“ spreyjuð á veggi.
Lögregla telur að árásirnar hafi
verið skipulagðar en þær voru
gerðar á svipuðum tíma í Malmö í
suðri og Umeå í norðri.
Hópur sem kallar sig „aðgerðir
fyrir heim án landamæra“ hefur
sent bréf til margra sænskra dag-
blaða og lýst yfir ábyrgð. - þeb
Ráðist á útlendingastofnun:
Samhæfð
skemmdarverk
DANMÖRK Upplýsingastjóri veit-
ingastaðarins Noma í Kaup-
mannahöfn telur að frá hafi þurft
að vísa yfir milljón manns sem
reynt höfðu að panta borð á staðn-
um á liðnu ári. Staðurinn getur
tekið á móti 20 þúsundum gesta.
Haft er eftir upplýsingastjóra
Noma, Peter Kreiner, á fréttavef
Politiken að ekki séu til ná kvæmar
tölur þar sem fyrirspurnir komi í
gegnum bókunarkerfi, tölvupóst
og síma. Hver fyrirspurn getur
varðað tvo til 15 gesti. Að sögn
Kreiner mætti áætla að fjöldinn
fari yfir eina milljón á ári.
Samkvæmt listanum World‘s 50
Best Restaurants er Noma besti
veitingastaður heims. -ibs
Veitingastaðurinn Noma:
Vísa árlega frá
milljón gestum
VIÐ INNGANGINN Noma er sagður besti
veitingastaður í heimi. NORDICPHOTOS/AFP
Gefur kost á sér í 3. sæti
Fréttamaðurinn Ingimar Karl Helga-
son gefur kost á sér í þriðja sæti í
öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna
fyrir Vinstrihreyfinguna grænt fram-
boð fyrir komandi Alþingiskosningar.
Sækist eftir 2. sæti
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi fjármálaráðuneytisins, sækist
eftir 2. sæti á lista VG í Suðvesturkjör-
dæmi fyrir kosningarnar næsta vor.
STJÓRNMÁL