Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 44

Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 44
5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR20 Föstudagur 2. nóvember og laugardagur 3. nóvember ★★★★★ For a Minor Reflection Norðurljós í Hörpu ★★★★ ★ The Vintage Caravan Gamli Gaukurinn Blæðandi bassafingur Rokktríóið The Vintage Caravan gaf nýverið út sína aðra plötu, Voyage, sem hefur fengið góðar viðtökur. Hljómsveitin spilar hresst rokk af gamla skólanum sem minnir stundum á sveitir á borð við Wolfmother. Keyrslan var sett á fullt strax í byrjun og svo mikil var hún að fljótt fór að blæða úr fingrum bassaleikarans Alex- anders Arnar Númasonar. For sprakkinn síðhærði, Óskar Logi Ágústsson, stal annars senunni með frábærum söng- og gítarleik og flottri sviðsframkomu. Stemningin í salnum var fantagóð, enda ekki annað hægt þegar um svo skemmtilega hljómsveit er að ræða. -fb ★★★★★ Dirty Projectors Listasafnið Æðislega skrítið Dirty Projectors frá New York vakti athygli tónlistarunnenda árið 2009 með plötu sinni Bitte Orca, sem komst ofarlega á árslista margra gagnrýn- enda. Hljómsveitinni stóð til boða að spila á Airwaves árið 2008 en ekkert varð af því og því var hún fljót að stökkva á tækifærið að taka þátt í ár. Dirty Projectors spilar tilraunakennt popp/rokk þar sem leikandi gítar fær að njóta sín. Þrjár hljómfagrar kvenraddir setja svo sterkan svip á lögin. Þessi sex manna hljómsveit spilaði alls tólf lög á tónleikunum og mörg þeirra voru einmitt af Bitte Orca. Einnig spiluðu þau lög af nýju plötunni, Swing to Magellan, þar á meðal hið prýðilega About to Die. Stundum virkaði sem lítið væri í gangi í lögunum en allt í einu tóku þau mikinn kipp og allt small saman í háværri en mjög svo heillandi hljóð- bendu. Lokalagið var einmitt gott dæmi um þetta. Magnaður loka- hnykkur á frábærum tónleikum. -fb ★★★★★ Shiko Shiko Kaldalón í Hörpu Ofvirkir fransmenn Skemmtilegustu tónleikarnir á Airwaves eru oft með hljómsveitum sem maður þekkir lítið sem ekkert. Maður mætir með opinn huga en engar sérstakar væntingar og svo gerist galdurinn og maður kolfellur. Þannig voru tónleikar frönsku hljóm- sveitarinnar Shiko Shiko í Kaldalóns- sal Hörpu á föstudagskvöldið. Shiko Shiko spilar einhvers konar furðupönk, hratt og hrátt, en líka fullt af óvæntum hljóðum, taktbreytingum og sprelli. Auk hefðbundinna rokk- hljóðfæra nota þeir synta og tölvu. Á sviði var þetta mjög leikrænt hjá þeim, bassaleikarinn spilaði alla tón- leikana með grímu og söngvarinn og gítarleikarinn ærsluðust um allt svið, óðu út í sal, upp á hátalara og hömuðust sem vitstola væru. Þetta hljómar kannski eins og einhver til- gerð, en tónlistin var líka mjög flott og vel spiluð. Sætin í Kaldalóni eru mjög þægileg (stundum of þægileg, ef maður er vansvefta), en Shiko Shiko rifu alla tónleikagesti á fætur. Magnaður andskoti! -tj ★★★★ ★ Siinai Kaldalón í Hörpu Orkuver í Kaldalóni Finnska hljómsveitin Siinai er þekkt fyrir kraftmikla nýproggtónlist, en fyrsta platan þeirra, Olympic Games, var til- nefnd til Nordic Music Prize í fyrra. Þeir spiluðu efni af henni á tónleikunum í Kaldalóni á laugardagskvöldið. Þetta er instrúmental tónlist. Þeir fóru rólega af stað, en svo juku þeir kraftinn og byggðu upp mikinn hljóðvegg. Flutningurinn var aflmikill, þeir hömruðu á hljóðfærin. Flestir tónleikagestir kunnu vel að meta þéttofinn og dýnamískan hávaðavegg- inn, en þó voru nokkrir sem þoldu ekki við og forðuðu sér. Flottir Finnar! -tj „Þetta var besta upplifun lífs míns,“ heyrði undirrituð einn áhorfenda segja að loknum tónleikum Ásgeirs Trausta á laugardagskvöldið. Sá hinn sami var örugglega ekki einn um þá skoðun, enda var Norður- ljósasalur stappfullur og vel það þegar einn vinsælasti söngvari landsins steig á svið við gríðarleg fagnaðarlæti. Mikil stemming var í salnum og áhorfendur sungu með og dilluðu sér við ljúfa tóna. Hann Ásgeir Trausti þarf enga utanaðkomandi aðstoð til að búa til frábæra tónleika. Enga litríka bún- inga, brjálaða sviðsframkomu eða fyndna brandara milli laga. Umvaf- inn góðum hljóðfæraleikurum er töfrandi rödd Ásgeirs leyndamálið á bak við velgengnina, enda tók allur salurinn undir er Ásgeir lék lagið Leyndarmál og lauk þar með ein- stökum tónleikum á Airwaves. -áp RAFMAGNAÐUR ★★★★★ Ásgeir Trausti Norðurljós í Hörpu Flugeldasýning Það var hreinn unaður að fylgjast með strákunum á sviði, allir sprengfullir af hæfileikum og krafti. Eðaltón listin sem þeir buðu upp á kom blóðinu heldur betur á hreyfingu og sam- spilið á milli gítarleikaranna tveggja, Kjartans og Guðsteins, var þvílíkt að á köflum var eins og þeim væri stjórnað af sama heilanum. Báðir voru þeir með myndbandsupptökuvélar fastar á gíturunum sínum og eflaust áhugavert að skoða myndböndin úr þeim þar sem gítararnir voru á fleygiferð alla tón- leikana. Hrikalega góðir og enn eitt dæmi um þá gríðarlegu hæfileika sem við eigum hér á litlu eyjunni okkar lengst í norðri. Flugeldasýning út í gegn sem uppskar heiðarlega tilraun til uppklapps. -trs FRÁBÆRIR Guðfinnur Sveinsson og Kjartan Dagur Hólm, liðsmenn For a Minor Reflection, slógu ásamt öðrum í bandinu í gegn í Norðurljósasal Hörpu. FRÉTTABLAÐIÐ/KLARA LÁTLAUS OG POTTÞÉTTUR Stemmningin á tónleikum Ásgeirs Trausta var ótrúleg, í einu orði sagt. Gestir sungu með og dönsuðu og sumir höfðu á orði að tónleikarnir væru það besta sem þeir hefðu upplifað á ævi sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ★★★★ ★ Diiv Iðnó Ekta rokkarar Það var erfitt að vera á tónleikum ungu rokkaranna án þess að detta inn í tón- listina, enda varla manneskja í salnum sem ekki tók undir með fótastappi, hnébeygjum eða höfuðrykkingum. Fjórmenningarnir taka rokkaraímyndina alla leið og voru gítarleikararnir til að mynda duglegir að sveifla til síðu hárinu á meðan þeir spiluðu. Það voru litlu hlutirnir sem gerðu það að verkum að ekki aðeins buðu þeir upp á stórgóða tónlist heldur líka ekta upplifun. Þeir voru suddasvalir frá upphafi til enda og áttu greinilega fjölda aðdáenda í salnum, sem urðu án efa enn fleiri eftir að tónleikunum lauk. Að minnsta kosti má telja undirritaða sem nýjan meðlim í aðdáendahópnum. -trs ROKKAÐIR Aðdáendum Diiv fjölgaði til muna á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/KLARA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.