Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 48
5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Liðsmenn Malmö klúðr-
uðu víti í fyrri hálfleik og skutu í
slána í þeim síðari áður en Tyresö
náði forystunni á 81. mínútu með
laglegu skallamarki. Heimakonur
héldu í sókn, sendu boltann fyrir
markið þar sem markvörður gest-
anna virtist missa boltann yfir
marklínuna. Aðstoðardómarinn
gaf til kynna að mark hefði verið
skorað en þar með var sagan ekki
öll.
„Þetta er það furðulegasta sem
ég hef upplifað á ferlinum. Aðal-
dómarinn ákvað að hún hefði
verið í betri aðstöðu til þess að
sjá atvikið þó hún hafi í raun ekki
verið í neinni aðstöðu til þess,“
segir Þóra skiljanlega svekkt.
„Það er voðalega erfitt að jafna
sig á svona. Maður er í æfingu að
tapa fyrir betra liði, tapa með tign
og jafnvel ósanngjarnt en það er
ansi erfitt að kyngja þessu. Þetta
eina atvik kostaði okkur titilinn,“
segir Þóra.
Þurfa að vera afleiðingar
Þóra segist vonast til þess að
forráðamenn Malmö leggi inn
formlega kvörtun til sænska
knattspyrnusambandsins vegna
at viksins gegn Tyresö.
„Við fáum auðvitað aldrei gullið
en það þurfa að vera afleiðingar.
Það eru afleiðingar fyrir okkur
þegar við gerum eitthvað heimsku-
legt. Erum settar á bekkinn, fáum
ekki nýjan samning eða fáum rautt
spjald. Mér finnst eðlilegt að farið
verði yfir þetta mál svo þetta komi
ekki fyrir aftur,“ segir Þóra.
Malmö hafði fimm stiga forskot
á Tyresö þegar tvær umferðir
voru eftir en gerði aðeins jafntefli
í síðustu umferð gegn Umeå.
„Við áttum auðvitað að klára
þetta um síðustu helgi. Við fengum
eins mark á okkur gegn Umeå. Þá
fengum við sams konar mark á
okkur og það sem ekki stóð gegn
Tyresö. Það var mjög vafasamt
hvort boltinn hefði farið yfir lín-
una. Dómarinn ákvað að markið
skyldi standa og maður tekur því.
En þegar dómararnir eru ekki
sammála og aðaldómari, sem er
í engri aðstöðu, breytir ákvörðun
línuvarðarins verður maður að
setja spurningarmerki við það.“
Búnar að sofa mikið
Mikið álag hefur verið á Söru
og Þóru undanfarnar vikur. Þær
voru í eldlínunni með íslenska
landsliðinu gegn Úkraínu í
undan keppni Evrópumótsins á
dögunum auk þess sem liðið lék
fyrri leik sinn gegn Verona frá
Ítalíu í Meistaradeildinni í síð-
ustu viku.
„Ég var einmitt að ræða þetta
við Söru. Við erum búnar að
sofa rosalega mikið síðustu daga.
Það er það frábæra við að vinna
við það að spila fótbolta. Þá
er tími til þess að sofa. Ég
er alveg þreytt en ekkert
meira en það. Á meðan það
eru engin meiðsli er ég
sátt,“ segir Þóra en liðið
flýgur í dag til Ítalíu
þar sem liðið mætir
Verona í síðari leik
liðanna á miðvikudag.
„Ítalska liðið er gott
en við erum betri. Við
spiluðum ekkert sér-
staklega heima því
við vorum enn með
tárin í augunum eftir
leikinn gegn Umeå.
Við vorum ekki við
sjálfar en stefnum á
að klára tímabilið með
stæl með góðum leik.“
kolbeinntumi@365.is
ALFREÐ FINNBOGASON skoraði sitt níunda mark í jafnmörgum deildarleikjum fyrir Heeren-
veen þegar liðið lagði Zwolle að velli 2-1. Alfreð hefur farið á kostum hjá sínu nýja félagi undanfarna
tvo mánuði en Heerenveen situr í 10. sæti deildarinnar með 13 stig.
Maður er í æfingu
að tapa fyrir betra
liði, tapa með tign og jafnvel
ósanngjarnt en það er ansi
erfitt að kyngja þessu.
ÞÓRA BJÖRG HELGADÓTTIR
MARKVÖRÐUR MALMÖ
Opnunarhátíð
velkomin í
Steinhellu 17a
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Manchester United - Arsenal 2-1
1-0 Robin van Persie (3.), 2-0 Patrice Evra (67.),
2-1 Santi Cazorla (90.)
Swansea - Chelsea 1-1
0-1 Victor Moses (61.), 1-1 Pablo Hernandez (88.)
West Ham - Manchester City 0-0
Fulham - Everton 2-2
1-0 Sjálfsmark (7.), 1-1 Marouane Fellaini (55.),
1-2 M. Fellaini (72.), 2-2 Steve Sidwell (90.)
Sunderland - Aston Villa 0-1
0-1 Gab Agbonlahor (57.)
QPR - Reading 1-1
0-1 Kaspar Gorkss (17.), 1-1 Djibril Cisse (66.)
Norwich - Stoke 1-0
1-0 Bradley Johnson (43.)
Tottenham - Wigan 0-1
0-1 Ben Watson (56.)
MARKAHÆSTIR
Robin van Persie 8 mörk
Luis Suarez 7 mörk
Demba Ba 7 mörk
STAÐAN
Man.Utd. 10 8 0 2 26-14 24
Chelsea 10 7 2 1 22-10 23
Man.City 10 6 4 0 18-9 22
Everton 10 4 5 1 19-13 17
Tottenham 10 5 2 3 17-14 17
Arsenal 10 4 3 3 15-8 15
Fulham 10 4 3 3 21-16 15
West Ham 10 4 3 3 13-11 15
W.B.A. 9 4 2 3 13-11 14
Newcastle 10 3 5 2 12-14 14
Swansea 10 3 3 4 15-14 12
Liverpool 10 2 5 3 13-15 11
Wigan 10 3 2 5 11-16 11
Norwich 10 2 4 4 8-18 10
Stoke 10 1 6 3 8-10 9
Sunderland 9 1 6 2 6-9 9
Aston Villa 10 2 3 5 8-14 9
Reading 9 0 5 4 12-18 5
QPR 10 0 4 6 8-19 4
Southampton 9 1 1 7 14-26 4
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Eitt atvik kostaði okkur titilinn
Sara Björk Gunnarsdóttir, Þóra Björg Helgadóttir og félagar í LdB Malmö máttu sjá á eftir sænska
meistara titlinum í knattspyrnu á laugardaginn eftir dramatískt 1-0 tap í lokaumferðinni gegn Tyresö.
FÓTBOLTI Manchester United er
komið á topp ensku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu en allt féll
liðinu í hag um helgina. Robin van
Persie skoraði eftir aðeins þrjár
mínútur gegn sínu gamla félagi,
Arsenal, en United hafði mikla
yfirburði í leiknum. 2-1 sigur gefur
kolranga mynd af gangi leiksins
sem United réð.
Bros stuðningsmanna United
varð enn breiðara þegar helstu
andstæðingar liðsins, Chelsea og
Manchester City, töpuðu stigum
gegn minni spámönnum. Allt
stefndi í góða innheimtu hjá Chel-
sea í jöfnum leik gegn Swan-
sea en Pablo Hernandez tryggði
Svönunum eitt stig með marki
skömmu fyrir leikslok. Uppskera
Chelsea er eitt stig úr síðustu
tveimur leikjum en þangað til
hafði liðið verið óstöðvandi.
Manchester City skrikaði fótur
í heimsókn hjá West Ham á Boy-
len Ground. Englands meistararnir
voru miklu sterkari aðilinn en
gekk illa að skapa sér færi. Þetta
var í fyrsta skipti á leiktíðinni sem
City tekst ekki að skora í leik en
liðið er sérstaklega vel skipað í
framherjastöðunni.
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á
sem varamaður í fyrri hálfleik í
tapi Tottenham á heimavelli gegn
Wigan. Gylfi Þór náði sér ekki á
strik frekar en aðrir leikmenn
Tottenham sem áttu ekkert skilið
gegn spræku liði gestanna. -ktd
Allt gekk Manchester United í haginn um helgina:
Draumur Fergusons
FAGNAÐ Wayne Rooney fagnaði
marki Robin van Persie öllu meira en
Hollendingurinn. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Skúli Jón Friðgeirsson
varð um helgina sænskur meist-
ari þegar Elfsborg gerði jafntefli
gegn Åtvidabergs. Skúli Jón var
ónotaður varamaður í leiknum.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
skoraði sigurmark Norrköping í
2-1 sigri á Mjällby en liðið hafn-
aði í fimmta sæti deildarinnar.
Gunnar Heiðar varð næstmarka-
hæsti leikmaður deildarinnar
með sautján mörk.
Matthías Vilhjálmsson skoraði
tvívegis í 3-0 sigri Start á Kongs-
vinger í norsku b-deildinni.
Með sigrinum tryggði Start sér
deildar meistaratitilinn en Guð-
mundur Kristjánsson lék einnig
með Start í leiknum. Haraldur
Björnsson varði mark Sarpsborg
08 en dramatískur 3-2 sigur á
Notodden tryggði liðinu annað
sæti deildarinnar og um leið sæti
í efstu deild. -ktd
Norræna knattspyrnan:
Góð uppskera
okkar manna
FAGNAÐ Elfsborg varð síðast sænskur
meistari árið 2006. NORDICPHOTOS/AFP