Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 50
5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR26
www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
m
ar
kh
on
nu
n.
is
Kræsingar & kostakjör
LÍFRÆNAR VÖR
UR Á AFAR HAG
STÆÐU VERÐI!
HANDBOLTI Íslenska landsliðið er
þegar komið með eins stigs for-
skot á Slóveníu á toppi síns riðils
í undankeppni EM í Danmörku
eftir flottan 37-30 sigur í Rúmen-
íu í gær. Langt og erfitt ferðalag
og allt annað en óskabyrjun en
þegar á reyndi þá sýndu íslensku
strákarnir styrk sinn í seinni
hálfleik og kláruðu leikinn með
sannfærandi hætti. Liðið er því
komið í bílstjórasætið í riðlinum.
„Það eru eins og við viljum
hafa þetta,“ sagði Aron Krist-
jánsson, þjálfari íslenska lands-
liðsins. „Þetta var erfiður úti-
völlur, langt ferðalag og ég er
gríðarlega ánægður með að við
skyldum ná svona öruggum sigri
í lokin.“
Rúmenar voru skrefinu á undan
nær allan fyrri hálfleikinn og
íslenska liðið var í vandræðum
með stórar og sterkar skyttur
liðsins. „Við byrjuðum leikinn
mjög illa, lendum þremur mörk-
um undir og virkum eins og við
séum svolítið á hælunum í vörn-
inni,“ segir Aron um byrjun leiks-
ins þar sem Rúmenar skoruðu
alltof auðveldlega og náðu mest
þriggja marka forskoti.
„Þegar við fórum að þétta
vörnina og spila hver með öðrum
þá kom vörnin og við fórum að
vinna okkur hægt og rólega inn
í leikinn. Við náðum eins marks
forystu fyrir hálfleik og í seinni
hálfleik fannst mér við spila
nokkuð vel,“ sagði Aron.
Aron Rafn Eðvarðsson stóð sig
vel í íslenska markinu og fékk líka
hrós frá þjálfaranum. „Aron Rafn
var í fyrsta skipti að standa sem
fyrsti markvörður í landsleik. Það
var pressa á honum á erfiðum úti-
velli og það eru góðar skyttur í
þessu rúmenska liði. Hann er að
verja allan tímann og taka nokkuð
góð færi,“ sagði Aron og Ásgeir
Örn Hallgrímsson, Guðjón Valur
Sigurðsson og Kári Kristjánsson
fengu líka hrós.
Einn besti landsleikur Ásgeirs
„Ásgeir var mjög góður og var að
spila einn af sínum betri lands-
leikjum. Guðjón Valur klúðraði
reyndar tveimur hraðaupp-
hlaupum en skoraði 11 mörk og
var að spila mjög „massíft“ allan
leikinn. Kári kemur inn síðustu
tólf mínúturnar og var strax mjög
hættulegur,“ segir Aron.
Aron Pálmarson var eins og
svart og hvítt í leiknum. Hann
gerði mörg mistök í fyrri hálf-
leiknum og komst ekki á blað fyrr
en eftir hlé. Hann spilaði hins
vegar vel í seinni hálfleik.
„Aron var svolítið þungur á sér
í fyrri hálfleik og kom of hægt
á vörnina. Aron var að reyna of
mikið sjálfur í fyrri hálfleik en í
þeim seinni var hann bara að spila
með liðinu. Hann kom þá af krafti
í vörnina og var með helling af
góðum stoðsendingum og nokkur
mjög góð mörk. Hann var að spila
mjög vel í seinni hálfleik.“
Íslenska liðið vann síðustu sjö
mínúturnar á móti Hvít-Rússum
6-1 og síðustu tólf mínúturnar í
gær 10-4. Samtals hefur íslenska
liðið unnið lokamínúturnar í
fyrstu tveimur leikjunum undir
stjórn Arons með 11 marka mun.
„Strákarnir stóðu sig mjög vel,
voru á tánum, sýndu mikla sam-
stöðu og baráttuvilja sem var
mjög ánægjulegt. Það er gott að
vinna tvo örugga sigra í tveimur
fyrstu leikjunum,“ sagði Aron að
lokum. ooj@frettabladid.is
Í bílstjórasætinu í riðlinum
Íslenska handboltalandsliðið er eitt á toppnum í sínum riðli í undankeppni EM
eftir sjö marka sigur í Rúmeníu í gær. Strákarnir eru búnir að vinna lokamínút-
urnar í fyrstu leikjunum undir stjórn Arons með 11 marka mun.
ÁSGEIR ÖRN HALLGRÍMSSON Lék mjög vel í Rúmeníu í gær og skoraði 8 mörk úr
aðeins 9 skotum. NORDICPHOTOS/AFP
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son, fyrirliði íslenska lands liðsins,
er markahæsti leikmaðurinn í
undankeppni EM eftir tvo ell-
efu marka leiki. Hann var sáttur
með sigurinn þegar Fréttablaðið
heyrði í honum í gær.
„Ég held að við getum verið
sáttir með þessa byrjun í
riðlinum. Það var kannski óör-
yggi í byrjun í báðum leikjunum
en tveir sannfærandi sigrar eru
frábær byrjun,“ sagði Guðjón
Valur Sigurðsson.
„Við höfum oft þurft tíma til að
koma okkur í gang. Strákarnir
í liðinu eiga hrós skilið fyrir
hvernig við kláruðum þetta því
þetta voru ekki auðveldar að-
stæður,“ sagði Guðjón Valur.
„Við vorum að spila við lið
sem við þekkjum mjög lítið. Það
var lítið til af efni um þá og
í rauninni bara einn leik-
ur því þeir eru með nýtt
lið. Þeir eru mjög stórir,
sterkir og þungir og það er
því frábært að hafa klár-
að þetta,“ sagði Guðjón
Valur sem hafði ekki
áhyggjur eftir erf-
iða byrjun.
„Ég var nokk-
uð viss um að
við kæmumst í gírinn. Þetta var
aldrei mikil hætta og þeir voru
bara yfir í byrjun leiks og því
engin ástæða til að hafa áhyggj-
ur,“ sagði Guðjón sem hrósaði
nokkrum mönnum.
„Kári kom flottur inn og
Geiri var alveg frábær í
fyrri hálfleik. Mér fannst
strák arnir í vörninni standa
sig mjög vel og þá sérstak-
lega ef við tökum seinni
hálfleikinn,“ sagði Guðjón Valur.
Hann var ekki eins sáttur við
rúmenska sambandið.
„Eins og ég sagði við strákana
fyrir leik þá eru engar afsak-
anir þegar menn eru komnir
í treyjuna, hvort sem það eru
dómarar, ferðalög eða eitthvað.
Það var reynt að gera þetta eins
erfitt fyrir okkur og hægt var.
Við erum að ferðast fáránlega
lengi og það er með ólíkindum
að það sé leyfilegt að spila leik
svona langt frá alþjóðaflugvelli.
Við ákváðum bara að taka þessu
sem ögrun,“ sagði Guðjón Valur.
- óój
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 22 mörk í fyrstu tveimur leikjum Ísland í undankeppni EM í Danmörku:
Tveir sannfærandi sigrar eru frábær byrjun
GUÐJÓN
VALUR
SIGURÐSSON
1. RIÐILL
Sviss-Spánn 22-33
Portúgal-Makedónía 32-25
Stigin: Spánn 4, Makedónía 2, Portúgal 2, Sviss 0.
2. RIÐILL
Svartfjallaland-Tékkland 23-22
Ísrael-Þýskaland 27-30
Stigin: Svartfjallaland 4, Tékkland 2, Þýskaland
2, Ísrael 0.
3. RIÐILL
Litháen-Noregur 21-28
Tyrkland-Frakkland 30-33
Stigin: Noregur 4, Frakkland 4, Litháen 0, Tyrk-
land 0.
4. RIÐILL
Lettland-Króatía 23-30
Slóvakía-Ungverjaland 24-28
Stigin: Ungverjaland 4, Króatía 4, Slóvakía 0,
Lettland 0.
5. RIÐILL
Holland-Svíþjóð 31-33
Úkraína-Pólland 20-29
Stigin: Pólland 4, Svíþjóð 4, Holland 0, Úkraína 0.
6. RIÐILL
Hvíta-Rússland-Slóvenía 32-32
Rúmenía - Ísland 30-37 (18-19)
Mörk Rúmeníu (skot): Valentin Ghionea 6 (9),
Bogdan Criciotoiu 5 (9), Ionut Ramba 4 (7), And-
rei Grasu 3 (6), Cristian Stelian Fenici 3 (6), Radu
Cristian Ghita 3 (6), Marius Novanc 2 (4), Marius
Sadoveac 1 (1), Alexandru Gheorghe Sabou 1 (1),
Dragos Iancu 1 (2), Florin Dospinescu 1 (2), Ionut
Rotaru (1), Mihai Andrei Paius (1),
Varin skot: Ionut Ciobanu 10 (42/2, 24%),
Emilian Marocico 1 (6/1, 17%),
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson
11/3 (14/3), Ásgeir Örn Hallgrímsson 8 (9), Snorri
Steinn Guðjónsson 4 (7), Aron Pálmarsson 4 (9),
Kári Kristján Kristjánsson 3 (3), Þórir Ólafsson
3 (4), Alexander Petersson 3 (4), Ingimundur
Ingimundarson 1 (1),
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 19 (49, 39%),
Hraðaupphlaup: 11 (Guðjón Valur 5, Ásgeir 3,
Snorri Steinn, Þórir, Ingimundur)
Fiskuð víti: 3 ( Kári, Alexander, Róbert)
STAÐAN Í RIÐLI ÍSLANDS
Ísland 2 2 0 0 73-58 4
Slóvenía 2 1 1 0 66-58 3
Hvíta-Rússland 2 0 1 1 60-68 1
Rúmenía 2 0 0 2 56-71 0
7. RIÐILL
Bosnía-Serbía 21-24
Rússland-Austurríki 38-31
Stigin: Serbía 4, Rússland 2, Austurríki 2, Bosnía
0.
EM Í HANDBOLTA
Dominosdeild kvk í körfu
KR - Snæfell 93-67 (46-25)
Stig KR: Patechia Hartman 28, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir 25, Helga Einarsdóttir 11, Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir 9, Hafrún Hálfdánardóttir
8, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 4, Anna María
Ævarsdóttir 3, Björg Guðrún Einarsdóttir 3, Helga
Hrund Friðriksdóttir 2.
Stig Snæfells: Kieraah Marlow 24, Hildur Björg
Kjartansdóttir 17, Hildur Sigurðardóttir 7, Berglind
Gunnarsdóttir 7, Alda Leif Jónsdóttir 7, Aníta
Sæþórsdóttir 2.
Lengjubikar karla í körfu
A-RIÐILL
Keflavík-Skallagrímur 110-64 (56-36)
Stigahæstir: Magnús Þór Gunnarsson 21, Darrel
Keith Lewis 16, Kevin Giltner 15, Valur Orri Valsson
12, Michael Graion 12 - Carlos Medlock 19,
Haminn Quaintance 17, Davíð Guðmundsson 13.
B-RIÐILL
Hamar-KFÍ 106-109 (80-80, 95-95)
Stigahæstir: Jerry Lewis Hollis 31/11 fráköst,
Örn Sigurðarson 28/12 fráköst, Þorsteinn Már
Ragnarsson 11 - Momcilo Latinovic 26/9 fráköst,
Jón Kristinn Sævarsson 22, Mirko Stefán Virijevic
20/10 fráköst, Bradford Harry Spencer 19.
C-RIÐILL
Fjölnir-Tindastóll 79-102 (34-51)
Stigahæstir: Sylverster Cheston Spicer 26/12
fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 14, Tómas
Heiðar Tómasson 14- George Valentine 27, Isaac
Deshon Miles 13, Þröstur Leó Jóhannsson 13/9
fráköst/6 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 11.
D-RIÐILL
Þór Þ.-Valur 86-69 (50-45)
Stigahæstir: Benjamin Curtis Smith 27, Grétar Ingi
Erlendsson 18/11 fráköst, Robert Diggs 17 - Chris
Woods 31/12 fráköst, Ragnar Gylfason 13.
N1 deild kvenna í handb.
Selfoss - Valur 12-28 (6-13)
Markahæstar: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir
5, Þuríður Guðjónsdóttir 3 - Hrafnhildur Ósk
Skúladóttir 10, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 5,
Rebekka Rut Skúladóttir 3, Dagný Skúladóttir 3,
íris Ásta Pétursdóttir 3.
Haukar - Fram 22-30 (10-19)
Markahæstar: Marija Gedroit 11, Karen Helga
Sigurjónsdóttir 4 - Ásta Birna Gunnarsdóttir
7, Stella Sigurðardóttir 5, Guðrún Þóra
Hálfdánardóttir 4, Birna Berg Haraldsdóttir 4,
Hekla Rún Ámundadóttir 3.
Afturelding - Stjarnan 18-37 (9-22)
Markahæstar: Sara Kristjánsdóttir 7, Hekla
Daðadóttir 5, Rósa Jónsdóttir 3 - Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 10, Ágústa Edda Björnsdóttir 8, Jóna
Margrét Ragnarsdóttir 6, Kristín Clausen 4.
HK - ÍBV 30-35 (15-18)
Markahæstar: Guðrún Erla Bjarnadóttir 7,
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 4, Arna Björk
Almarsdóttir 4 - Grigore Ggogota 7, Guðbjörg
Guðmannsdóttir 7, Ivana Mladenovic 7, Simona
Vintale 5, Drífa Þorvaldsdóttir 4.
FH - Fylkir 33-25 (17-14)
Markahæstar: Steinunn Snorradóttir 6, Ásdís
Sigurðardóttir 5, Aníta Mjöll Ægisdóttir 4 - Hildur
Björnsdóttir 7, Vera Pálsdóttir 5.
ÚRSLITIN Í GÆR
UPP Í 2. SÆTIÐ KR-konur unnu góðan
sigur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN