Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 55

Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 55
Öruggt skjól fyrir verðmæti Spennandi húsnæði til sölu eða leigu Húsnæðið er 292 m2 og hýsti áður banka. Húsið er steinsteypt á tveimur hæðum og var byggt árið 1956. Gengið er inn á fyrstu hæð í afgreiðslu með afgreiðsluborðum. Á fyrstu hæð eru einnig tvær skrifstofur, baðherbergi og peningaskápur. Á efri hæð eru sjö skrifstofur af ýmsum stærðum ásamt baðherbergi. Húsnæðið hentar vel undir skrifstofur, verslun eða aðra þjónustu. Banki Húsnæðið hýsti áður samskiptamiðstöð Bandaríkjahers. Það var byggt árið 1997 og er tæplega 1.700 m2. Húsið er ákaflega rammbyggt, hefur eins metra þykka steypuveggi og stálhurðir sem hannaðar eru til að standast loftárásir. Lóðin er afgirt og slökkvistöð í næsta nágrenni. Húsið hentar því vel sem geymsla fyrir mikilvæg verðmæti, hvort sem þau eru stafræn eða áþreifanleg. Skotheld bygging Atlantic Studios er 4.730 m2 kvikmyndaver í flug skýli sem þjónaði áður Bandaríkjaher. Kvikmyndaverið er hið stærsta á Íslandi, með 2.700 m2 aðalsviði (e. soundstage) þar sem lofthæð er 9 metrar. Einnig er þjónustuaðstaða með búningsherbergjum, skrifstofum og kaffistofu. Kvikmyndin Reykjavík Whale Watching Massacre var meðal annars tekin upp í verinu. Atlantic Studios Hið sögufræga Andrews-leikhús er til sölu eða leigu. Húsið var áður kvikmyndasýningar- salur Nató, en byggingin var endurnýjuð árið 2010. Salurinn tekur 499 í sæti og sviðið er 100 m2. Myndvarpi, tjald og gott hljóðkerfi er til staðar fyrir fyrirlestra. Húsnæðið hentar undir leik- eða kvikmyndasýningar, tónleika eða ráðstefnur. Andrews-leikhúsið Sími 425 2100 | fyrirspurnir@kadeco.is Þetta er einungis sýnishorn af þeim eignum sem eru til sölu eða leigu á svæðinu. Nánari upplýsingar um eignir á www.asbru.is/fasteignir. Ásbrú er spennandi svæði þar sem fyrrum herstöð er um breytt í samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs. Á Ásbrú er stór háskólagarður, spenn andi nám í boði hjá Keili, kvik myndaver, heilsuþorp í fararbroddi heilsu ferða mennsku, tækniþorp þar sem alþjóðlegt gagnaver er að rísa og fjöldi áhugaverðra sprota fyrirtækja. Mikil upp bygg ing er á svæðinu og má þar nú meðal annars finna leikskóla, grunnskóla, verslun og veitingastað. P IP A R \T B W A -S ÍA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.