Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 2

Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 2
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 BANGLADESH, AP Að minnsta kosti 112 manns fórust í eldsvoða sem varð í fataverksmiðju í Bangladess á laugardagskvöld. Eldurinn braust út í átta hæða byggingu sem fyrirtækið Tazreen Fashion starf rækir. Það er undirfyrirtæki Tuba Group sem útvegar Walmart og fleiri stórum fyrirtækjum föt í Bandaríkjunum og Evrópu. Enn er óvíst hvað olli eldsvoðanum. Um fjögur þúsund fataverk- smiðjur eru starfræktar í Bangladess. Í mörgum þeirra er öryggis- málum ábótavant. Þjóðin þénar á hverju ári hundruð milljarða króna vegna fataframleiðslu sinnar. - fb Öryggi víða ábótavant í fataverksmiðjum í Bangladess: Mikið manntjón í eldsvoða HÖRMULEGT SLYS Mikill harmur ríkti fyrir utan verksmiðjuna en þar biðu starfs- menn og aðstandendur tíðinda. MYND/AP NÁTTÚRA Að minnsta kosti þrír borgarísjakar eru nú við norð- vestan verðar Íslandsstrendur. Sá sem er næst landi var einungis um níu mílur frá Straumnesi á Vest- fjörðum í gærkvöld. „Þetta er hættulegt. Þeir eru á þannig svæði og svo skammt frá landi,“ segir Björgólfur Ingason, varðstjóri hjá Landhelgisgæslunni „Það má alveg búast við því að það sé meira en búið er að tilkynna okkur um undanfarna daga.“ Landhelgisgæslunni hafa borist reglulegar tilkynningar síðustu daga um borgarísjaka við norð- vestanvert landið. Gæslan hefur staðfest að ísjakarnir séu að minnsta kosti þrír, en að öllum líkindum séu þeir fjórir, að sögn Björgólfs. Alls bárust þrjár tilkynningar til Landhelgisgæslunnar í gærdag og hafa þær komið með ein hverjum hléum undanfarna daga. Björg- ólfur segir að miðað við vindátt og veðurfar sé ekki ólíklegt að hröngl og bitar brotni af jökunum og slíkt geti verið mjög erfitt að sjá og því orðið afar hættulegt skipum. Fram kemur á vef Veð- urstofu Íslands að nokkrar tilkynn- ingar hafi bor- ist um hafís á síðustu dögum. Þar stendur að fram hafi komið í einni til- kynningunni að um „heljarinnar hlunk“ hafi verið að ræða. - sv Varðstjóri hjá Landhelgisgæslunni segir borgarísjaka við landið geta skapað skipum hættu: Þrír til fjórir borgarísjakar við Vestfirði ÍSBIRNIR ÓLÍKLEGIR Veðurfræðingur segir ólíklegt að ísbirnir séu á jökunum. NEYTENDUR Málmhlutur í tómatdósum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur látið innkalla niðursoðna, hakkaða tómata í dós frá First Price. Málmhlutur fannst í einni dósinni í Danmörku og var því ákveðið að láta Kaupás hf. inn- kalla vöruna af markaði hér á landi. HEILBRIGÐISMÁL Samstarf við Karolinska Háskóli Íslands og Landspítalinn hafa gert samkomulag við Karolinsku stofnunina í Svíþjóð um hagnýtingu rannsóknarniðurstaðna og hug- verka. Karolinska hefur um árabil verið leiðandi í heilbrigðisvísindum á Norðurlöndunum. SAMGÖNGUR Vegagerðin varaði í gærkvöldi við áframhaldandi hálkumyndun á vegum um allt land. Mikil hálka var á Hellis- heiði og í Þrengslum í gærkvöldi. Um vestanvert landið var hálka á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Fróðárheiði og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum var hálka á öllum fjallvegum og víða utan þeirra. Þá var víða hálka á Suðurlandi, Austurlandi og á Norðurlandi vestra. Loks varaði Vegagerðin einnig við umferð hreindýra á Austur- landi og Suðausturlandi. - mþl Hreindýr á ferð fyrir austan: Hálka á vegum víða um land Íb úa r/k m ² KAÍRÓ, AP Mótmælendum lenti saman við lögregluþjóna á Tahrir- torginu í Kaíró í gær og þurfti lögreglan að beita táragasi gegn fjöldanum. Talið er að tugir hafa slasast í átökunum. Að sögn innanríkisráðuneytis Egyptalands hafa 267 mótmæl- endur verið handteknir og 164 lög- reglumenn slasast síðan mótmæli hófust fyrir viku gegn forsetanum Mohammed Morsi. Á þessu sama torgi hófust mótmælin gegn fyrr- verandi forsetanum Hosni Mub- arak sem urðu til þess að hann hrökklaðist frá völdum fyrir um fimm mánuðum síðan. Morsi hefur veitt sjálfum sér hálfgert einræðisvald, sem hann gerði að eigin sögn til að stöðva „það illgresi sem er að skjóta rótum sínum úti um allt Egypta- land“. Þessi ákvörðun hefur orðið til þess að flokkur hans, Bræðra- lag múslíma, hefur átt í miklum deilum við frjálshyggjusinna sem óttast að nýr einræðisherra sé kominn til valda. Tæpir fimm mánuðir eru liðnir síðan Morsi varð fyrsti forseti landsins sem nær kjöri í frjálsum kosningum. Virtur egypskur lýðræðisráð- gjafi, Mohammed ElBaradei, hefur varað við því að aukin ólga í landinu geti valdið því að herinn grípi í taumana. Hægt verður að koma í veg fyrir þetta ef forsetinn endurskoðar alræðishugmyndir sínar. - fb SPURNING DAGSINS MEÐALÆVI FRJÓSEMI ÞÉTTLEIKI BYGGÐAR OG MANNFJÖLDI Norðurlönd Evrusvæðið Bandaríkin Japan Íbúafjöldi (milljónir) 26 333 314 128 Íbúar/km² 1,9 1,6 2,1 1,3 CO₂ útblástur (tonn/íbúa 2010) 6,6 13,2 18,3 9,3 VLF á íbúa (2010) 32.361€ 27.100€ 37.100€ 27.000€ Norðurlönd á heimsvísu 80 60 40 20 ár ■ Meðalævi kvenna ■ Meðalævi karla 130 120 110 100 90 80 70 60 50 40 30 20 10 0 ■ Þéttleiki byggðar (vinstri ás) ■ Mannfj öldi (hægri ás) 10 millj. 9 millj. 8 millj. 7 millj. 6 millj. 5 millj. 4 millj. 3 millj. 2 millj. 1 millj. íbúar 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 ■ Fæðingar á 1.000 konur HAGTÖLUR Ísland stendur höllum fæti efnahagslega miðað við hin Norðurlöndin og verðlag hefur hækkað gríðarlega frá hruni. Þetta kemur fáum á óvart en staðfestist í Norrænum hagtölum 2012 sem komu út í vikunni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Þar eru teknar saman hagtölur frá Norður- löndunum, en þetta er í fimmtugasta skiptið sem ritið kemur út. Meðal þess sem þar kemur fram er að skuldir íslenska ríkisins eru hlutfallslega þær hæstu meðal Norðurlandanna og verðbólga er meiri. Á móti kemur hins vegar að Íslendingar eru frjósamari en flestir, á Íslandi er skattur lægstur í hlutfalli við verga landsfram- leiðslu, íslenskir karlar eru lang- lífastir, Íslendingar eru öðrum Norðurlandabúum duglegri við að sækja leikhús og söfn og eru öllum netvæddari. Ef horft er fram til næstu ára- tuga er útlitið svo ekki slæmt þar sem búast má við því að Íslend- ingum fjölgi um þriðjung til ársins 2050, en aðeins hinir stöndugu Norð- menn búast við meiri fjölgun. Þá er öll sú orka sem Íslendingar fram- leiða fengin með endurnýtanlegum hætti og þrír fjórðu af þeirri orku sem notuð er hér á landi eru fengn- ir með endurnýtanlegum orkugjöf- um. Ekkert af hinum Norðurlöndun- um kemst nærri því marki þar sem hlutfallið er yfirleitt fjórðungur til þriðjungur. thorgils@frettabladid.is Lík en samt svo ólík Í ritinu Norrænar hagtölur 2012 er sægur af upplýsingum um Norðurlönd. Þar sést meðal annars að lífskjör þar eru almennt betri en víðast hvar annars staðar. Ísland fór út af sporinu í efnahagslegu tilliti en stendur vel á ýmsum sviðum. Jón Daði, ætlarðu að leggjast í víking? „Já, það er bara ansi líklegt.“ Jón Daði Böðvarsson knattspyrnumaður hefur fengið samningstilboð frá norska l iðinu Viking. Jón Daði lék með Selfoss í Pepsi-deildinni í sumar og var valinn efnilegasti leikmaður mótsins að því loknu. Andstæðingum forseta Egyptalands lenti saman við lögregluna í gær: Táragas gegn mótmælendum MÓTMÆLI Táragasi var beitt gegn mótmælendum á Tahrir-torginu í Egyptalandi í gær. MYND/AP 267 mót- mælendur hafa verið hand- teknir vegna mótmæl- anna. Alls hafa 164 lögreglu- menn slasast.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.