Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.11.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 26.11.2012, Qupperneq 4
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 VIÐSKIPTI Útlit er fyrir að Orku- veita Reykjavíkur (OR) nái mark- miðum sínum um hagræðingu í rekstri og gott betur á þessu ári. Í lok þriðja ársfjórðungs hafði fyrir tækið náð fram tæplega 10 prósentum meiri sparnaði en stefnt var að. Á tímabilinu hagnaðist OR um 2,6 milljarða króna en rekstrar- hagnaður fyrir skatta, af skriftir og fjármagnsliði var tæpir 11 milljarðar og jókst talsvert frá sama tímabili í fyrra. „Rekstur Orkuveitunnar er kominn í mjög gott horf og við erum ekki lengur að reyna að breyta rekstrinum,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, og bætir við að reksturinn muni á næstu árum standa undir afborgunum skulda. Sem fyrr ber að skoða rekstur OR með hliðsjón af þungri skulda- stöðu fyrirtækisins en í mars á síðasta ári var kynnt aðgerða- áætlun sem miðar að því að tryggja rekstrargrundvöll fyrir- tækisins. Þar á meðal samþykktu sveitarfélögin sem eiga fyrir tækið að veita því 12 milljarða króna víkjandi lán. Áætlun OR nefnist „Planið“ og nær til ársins 2016. Í henni hefur fyrirtækið sett sér markmið um hag- ræðingu í rekstri á hverju ári til og með 2016. Alls stefnir fyrirtækið að því að ná fram rétt ríflega 50 millj- arða sparnaði. Til að ná því mark- miði verða eignir seldar, fjárfesting- ar minnkaðar og hagrætt í rekstri. Nú þegar hefur ríflega 21 millj- arðs sparnaður náðst fram og þá hefur rekstur fyrirtækisins tekið stakkaskiptum. Þannig hefur rekstrarhagnaður ríflega þrefald- ast frá árinu 2008 og er nú tæplega 11 milljarðar eins og áður sagði. - mþl Rekstur Orkuveitunnar er kominn í mjög gott horf og við erum ekki lengur að reyna að breyta rekstrinum. Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur „Plan“ Orkuveitu Reykjavíkur hefur staðist og gott betur frá því að það var kynnt snemma árs 2011: Rekstur OR mun standa undir skuldum BANDARÍKIN Möguleiki á 54 milljörðum Rétt tæplega 425 milljónir dollara, eða um 54 milljarðar íslenskra króna, gætu fallið heppnum lottóspilara í Iowa-ríki í Bandaríkjunum í skaut. Það mun vera hæsta upphæð í sögu þessa happ- drættis. KOSNINGAR Íslendingar sem hafa búið erlendis frá árinu 2004 þurfa að sækja um að vera á kjörskrá fyrir Alþingiskosningar fyrir 1. desember. Innanríkisráðuneytið vekur athygli á þessu á vef sínum. Þeir sem eru íslenskir ríkisborgarar en hafa sest að erlendis hafa sjálf- krafa kosningarétt í átta ár. Að þeim tíma liðnum þurfa þeir að sækja sérstaklega um að halda kosningarétti og gildir rétturinn í fjögur ár. Þjóðskrá tekur við um- sóknum um kosningarétt. - þeb Íslendingar í útlöndum: Þurfa að sækja um kosningarétt FÉLAGSMÁL Árni Finnsson, for- maður Náttúruverndarsamtaka Íslands, hefur verið útnefndur Evrópumaður ársins af Evr- ópusamtökunum á Íslandi. „Árni hefur í fjölda ára fjallað um mál- efni sem tengj- ast náttúru og umhverfismálum, sem og Evrópu- málum. Hann er því vel að nafn- bótinni kominn,“ segir í frétt um útnefninguna á vef Evrópusam- takanna. Þar segir enn fremur að umhverfismál séu einn af mikil- vægustu málaflokkunum sem ESB og öll heimsbyggðin takast á við. - gar Evrópumaður ársins valinn: Árni útnefndur ÁRNI FINNSSON SAMFÉLAGSMÁL Sextán daga átak samtakanna UN Women gegn kyn- bundnu ofbeldi í heiminum hófst í gær. UN Women vinnur að því að vekja athygli á ofbeldi gegn konum í fátækustu ríkjum heims og á stríðshrjáðum svæðum. „Samt sem áður er ekki til eitt einasta samfé- lag í heiminum þar sem kyn bundið ofbeldi þrífst ekki,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmda- stýra UN Women. „Okkur finnst ansi hart að sex hundruð milljónir kvenna og stúlkna í heiminum búi í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert. Hér á Íslandi er heimilisofbeldi saknæmt en samt sem áður er bara eitt kvennaat- hvarf fyrir allt landið og þar dvelja fjórar konur og þrjú börn að meðal- tali á dag. Þótt það sé búið að setja lög er það ekki nóg. Við viljum vekja umræðu í samfélaginu því það er hugarfarið sem þarf að breytast.“ Að sögn Ingu Dóru munu um tuttugu íslensk samtök standa fyrir mismunandi viðburðum á þessum sextán dögum. „Þetta er mjög mikil vægt átak. Okkur finnst svolítið súrt að þrátt fyrir að það sé búið að standa fyrir þessu átaki í tuttugu ár er samt svo langt í land,“ segir hún. freyr@frettabladid.is Kynbundið ofbeldi í öllum samfélögum Sex hundruð milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki saknæmt. Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi í heiminum hófst í gær. Í ár ætla samtökin UN Women að vekja sérstaka athygli á kvennamorðum sem eiga sér stað úti um allan heim. Barist gegn kvennamorðum í heiminum 2 konur eru drepnar að meðaltali á hverjum degi í Gvatemala, eingöngu vegna kyns síns. 10 konur deyja daglega í Brasilíu, eingöngu vegna heim- ilisofbeldis. 107 konur hafa verið myrtar af körlum á Ítalíu eingöngu á þessu ári. 37 konum er nauðgað á meðal- tali á dag í lýðveldinu Kongó. 4 konur og þrjú börn dveljast að meðaltali í Kvennaat- hvarfinu á Íslandi vegna heimilisof- beldis. Valborg Sigurðardóttir, fyrr- verandi skólastjóri Fóstur- skóla Íslands, lést í gær. Val- borg fæddist árið 1922 í Ráðagerði á Seltjarnar- nesi en ólst upp í Reykjavík. Valborg varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1941 og lauk cand. phil. prófi frá Háskóla Íslands 1942. Hún lauk B.A. prófi í uppeldis- og sálarfræði frá Smith College í Massachussets árið 1944 og M.A. prófi frá sama skóla 1946. Valborg skrifaði fjölda greina og bóka um uppeldis- og kennslumál. Árið 1950 giftist Valborg Ármanni Snævarr, fyrrum háskólarektor og hæstaréttar- dómara (1919-2010). Valborg og Ármann eignuðust fimm börn. Valborg Sigurð- ardóttir látin 107 MYRTAR Kona gengur fram hjá vegg þar sem málaðar hafa verið 107 myndir ásamt nöfnum þeirra kvenna sem hafa verið myrtar af karlmönnum á Ítalíu á þessu ári. MYND/AFP BARSELÓNA, AP Flokkur þjóð- ernis sinna, CiU, í spænska sjálfsstjórnarhéraðinu Kata- lóníu átti sigurinn vísan í hér- aðs kosningum sem fram fóru í gær. Eftir að um 66% atkvæða höfðu verið talin hafði CiU náð 48 þingsætum. Aðskilnaðarsinnar á vinstri vængnum, ERC, sem eru líka þjóðernissinnar, höfðu náð tuttugu sætum. Báðir flokkarnir hafa áhuga á að halda þjóðarat- kvæðagreiðslu þar sem kosið yrði um hvort Katalóníubúar vilji vera áfram hluti af Spáni. - fb Kosningar í Katalóníu í gær: Þjóðernissinnar sigurvegarar 224,2714 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,87 126,47 200,6 201,58 162,25 163,15 21,752 21,880 22,141 22,271 18,893 19,003 1,5286 1,5376 192,40 193,54 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 23.11.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is BRJÓSTDROPARNIR NORSKU KOMNIR AFTUR KRÖFTUG HÓSTAMIXTÚRA SEM RÓAR HÓSTA, DREGUR ÚR SÁRSAUKA Í HÁLSI OG LOSAR UM Í ENNIS- OG KINNHOLUM. FÆST Í NÆSTA APÓTEKI Veðurspá Miðvikudagur Strekkingur sunnan- og vestanlands annars hægari. HÆGVIÐRI og nokkuð bjart víða í dag. Á morgun þykknar upp vestanlands og fer að rigna þar aðfaranótt miðvikudags en áfram verður bjart austanlands á morgun. -2° 2 m/s 0° 4 m/s 1° 4 m/s 3° 6 m/s Á morgun Strekkingur allra vestast annars fremur hægur vindur. Gildistími korta er um hádegi 6° 4° 3° 1° 3° Alicante Basel Berlín 19° 12° 8° Billund Frankfurt Friedrichshafen 9° 10° 11° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 8° 8° 24° London Mallorca New York 11° 20° 7° Orlando Ósló París 23° 2° 12° San Francisco Stokkhólmur 17° 6° 0° 4 m/s 1° 3 m/s -1° 3 m/s -2° 3 m/s -2° 2 m/s -1° 2 m/s -4° 2 m/s 2° 1° 1° -2° 1° Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.