Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 6
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR |
➜ Kjördæmin á höfuð-
borgarsvæðinu
STJÓRNMÁL Hanna Birna Kristjáns-
dóttir og Illugi Gunnarsson munu
leiða lista Sjálfstæðis flokksins í
Reykjavík í alþingiskosningunum
í vor. Katrín Jakobsdóttir og Svan-
dís Svavarsdóttir munu leiða lista
Vinstri grænna í höfuðborginni
og Ögmundur Jónasson verður í
fyrsta sæti á lista flokksins í Suð-
vesturkjördæmi. Þetta varð ljóst á
laugardag þegar Sjálfstæðisflokk-
urinn hélt prófkjör í Reykjavík og
Vinstri grænir héldu flokksval í
Kraganum og í Reykjavík.
Alls nítján gáfu kost á sér í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Flokkurinn hlaut fimm
þingsæti þar árið 2009 en sam-
kvæmt skoðanakönnunum fengi
hann átta þingsæti nú. Þau Hanna
Birna Kristjánsdóttir borgar-
fulltrúi og Illugi Gunnarsson
þingmaður gáfu kost á sér í for-
ystusæti listans og hlaut Hanna
Birna yfirburðakosningu; ríflega
72% atkvæði í fyrsta sæti. Illugi
hafnaði síðan í öðru sætinu.
„Tíðindi hjá Sjálfstæðisflokk-
num eru auðvitað stórsigur Hönnu
Birnu. Þetta eru skýr skilaboð um
það hvernig forystumenn sjálf-
stæðismenn sjá fyrir sér. Hvort
að þetta muni leiða til formanns-
skipta, eins og
sumir hafa ýjað
að, er þó óvíst
enda álitamál
hvort skynsam-
legt er fyrir
flokk að skipta
um formann
rétt fyrir kosn-
ingar,“ segir
Grétar Þór Ey-
þórs son, pró-
fessor í stjórnmálafræði, og bætir
við að Hanna Birna geti væntan-
lega gengið að varaformanns-
embætti flokksins vísu, sækist hún
eftir því, og sömuleiðis ráðherra-
embætti eftir kosningar fari flokk-
urinn í ríkisstjórn.
Brynjar náði góðum árangri
Allir sitjandi þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík gáfu
kost á sér í prófkjörinu, ef frá er
skilin Ólöf Nordal sem hyggst
hætta á þingi, og höfnuðu þeir allir
í líklegum þingsætum. Þá vakti
athygli árangur hæstaréttarlög-
mannsins Brynjars Níelssonar
sem kemur nýr inn og fékk góða
kosningu í fjórða sætið.
Í flokksvali Vinstri grænna í
Reykjavík höfnuðu ráðherrarnir
Katrín Jakobsdóttir og Svandís
Svavarsdóttir í fyrsta og öðru
sæti. Á eftir þeim komu þingmenn-
irnir Árni Þór Sigurðsson og Álf-
heiður Ingadóttir.
Björn Valur Gíslason, þing-
maður, hafnaði hins vegar í
sjöunda sæti en hann sóttist eftir
fyrsta eða öðru sæti. Björn Valur
var kjörinn á þing í Norðaustur-
kjördæmi árið 2009 en ákvað að
bjóða sig fram í Reykjavík nú.
Björn Val vantaði 18 atkvæði
Grétar Þór segir að þótt Birni Vali
hafi verið hafnað hafi árangur
hans í prófkjörinu að mörgu leyti
verið eftirtektarverður. „Hann
hafði mjög lítinn tíma til að vinna
framboði sínu fylgi en svo skorti
hann víst ekki nema 18 atkvæði í
þriðja sætið,“ segir Grétar.
Í flokksvali Vinstri grænna
í Suðvesturkjördæmi hafnaði
Ögmundur Jónasson, ráðherra,
í fyrsta sæti. Guðfríður Lilja
Grétars dóttir leiddi lista flokksins
í Kraganum í kosningunum árið
2009 en hún hyggst hætta á þingi.
Auk Ögmundar gaf Ólafur Þór
Gunnarsson, bæjarfulltrúi í Kópa-
vogi, kost á sér í fyrsta sætið og
munaði litlu að honum tækist að
fella Ögmund. Ólafur hafnaði
hins vegar í öðru sæti og verður að
öllum líkindum færður í það þriðja
vegna ákvæða flokksins um kynja-
sjónarmið við uppstillingu lista.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fjöl-
miðlafulltrúi í fjármálaráðuneyt-
inu sem hafnaði í þriðja sæti, mun
líklega taka sæti hans.
Kjörsókn í prófkjörum helgar-
innar var lítil og segir Grétar Þór
það í samræmi við fyrri prófkjör
haustsins. „Áhugi á pólitík, og ekki
síst fjórflokknum, í þjóðfélaginu
virðist vera þverrandi. Það sést í
könnunum að traust á Alþingi er
í kjallaranum og í ljósi þess þarf
þetta kannski ekki að koma mikið
á óvart.“ magnusl@frettabladid.is
Lykilatriði í fjármögnun
atvinnutækja
Lykill býður fyrirtækjum örugga fjármögnun atvinnutækja
Það er lykilatriði að tala við réttan aðila þegar kemur að fjármögnun atvinnutækja. Starfsfólk okkar
býr yfir yfirgripsmikilli reynslu og veitir skjóta og góða þjónustu ásamt ítarlegum upplýsingum um
bestu valkosti í fjármögnun hverju sinni.
Lykill – opnar á möguleika.
Lykill er hluti af MP banka Ármúli 13a Sími 540 1700 Lykill.is
B
ran
den
bu
rg
B
ran
de
B
ran
de
B
ran
den
bu
rg
n
bu
rg
n
bu
rg
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
5.438 atkvæði í
1. sæti
Illugi
Gunnarsson
2.695 atkvæði í
1. - 2. sæti
Pétur H.
Blöndal
3.004 atkvæði í
1. - 3. sæti
Brynjar
Níelsson
3.722 atkvæði í
1. - 4. sæti
Guðlaugur Þór
Þórðarson
3.503 atkvæði í
1. - 5. sæti
Birgir
Ármannsson
3.196 atkvæði í
1. - 6. sæti
Sigríður Á.
Andersen
3.894 atkvæði í
1. - 7. sæti
Áslaug María
Friðriksdóttir
4.413 atkvæði í
1. - 8. sæti
Ingibjörg
Óðinsdóttir
2.950 atkvæði í
1. - 8. sæti
Elínbjörg
Magnúsdóttir
2.848 atkvæði í
1. - 8. sæti
Katrín
Jakobsdóttir
547 atkvæði í
1. sæti
Svandís
Svavarsdóttir
432 atkvæði í
1. - 2. sæti
Álfheiður
Ingadóttir
322 atkvæði í
1. - 4. sæti
Árni Þór
Sigurðsson
324 atkvæði í
1. - 3. sæti
Steinunn Þóra
Árnadóttir
373 atkvæði í
1. - 5. sæti
Ingimar Karl
Helgason
363 atkvæði í
1. - 6. sæti
Ögmundur
Jónasson
261 atkvæði í
1. sæti
Ólafur Þór
Gunnarsson
234 atkvæði í
1. - 2. sæti
Rósa Björk
Brynjólfsdóttir
249 atkvæði í
1. - 3. sæti
Arndís Soffía
Sigurðardóttir
lögfræðingur
mun leiða lista
Vinstri grænna í
Suðurkjördæmi í
Alþingiskosning-
unum í vor. Upp-
stillingarnefnd
flokksins í kjördæminu kynnti
tillögu sína að framboðslista á
laugardag og var hún samþykkt
samhljóða á kjördæmisfundi.
Í öðru sæti verður Inga Sigrún
Atladóttir, guðfræðingur og
bæjarfulltrúi í Vogum, og í þriðja
sæti verður Þórbergur Torfason
fiskeldisfræðingur.
➜ VG í Suðurkjördæmi:
Arndís Soffía í
fyrsta sætinu
PRÓFKJÖR Í
REYKJAVÍK
FLOKKSVAL Í
REYKJAVÍK FLOKKSVAL Í SUÐVESTURKJÖRDÆMI
1
1 1
2
2 2
3
3 3
4
4
5
5
6
6
7 8 9 10
7.546
greiddu
atkvæði
639
greiddu
atkvæði
487 greiddu
atkvæði
41,6%
kjörsókn
2
þingmenn
2009
1
þingmaður
Þjóðarpúls
Gallup
5
þingmenn
2009
8
þingmenn
Þjóðarpúls Gallup
5
þingmenn
2009
Einar K. Guð-
finnsson þing-
maður mun leiða
lista Sjálfstæðis-
flokksins í Norð-
vesturkjördæmi í
Alþingiskosning-
unum í vor. Valið
var í efstu sæti
listans á kjördæmisþingi í Borgar-
nesi á laugardag.
Einar gaf einn kost á sér í
fyrsta sætið og var því sjálf-
kjörinn. Í annað sæti var kjörinn
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtakanna, sem hlaut
229 atkvæði í sætið. Eyrún Ingi-
björg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri á
Tálknafirði, hafnaði í þriðja sæti
og hlaut 228 atkvæði í það sæti.
Þá varð Sigurður Örn Ágústsson,
forstjóri Ilsanta, í fjórða sæti
með 229 atkvæði í sætið.
➜ Haraldur líklega á þing:
Einar K. Guðfinns-
son í forystusæti
Gunnar Bragi
Sveinsson
þingmaður mun
leiða lista Fram-
sóknarflokksins í
Norðvesturkjör-
dæmi í Alþingis-
kosningunum í
vor. Þetta varð
ljóst á laugardag þegar tillaga
kjörnefndar flokksins í kjördæm-
inu var samþykkt á kjördæmis-
þingi að Reykjum í Hrútafirði.
Í öðru sæti verður Ásmundur
Einar Daðason þingmaður, sem
gekk til liðs við flokkinn á kjör-
tímabilinu. Þá verður Elsa Lára
Arnardóttir, kennari og vara-
bæjarfulltrúi á Akranesi, í þriðja
sæti.
➜ Framsóknarflokkurinn:
Gunnar Bragi í
fyrsta sæti
3
þingmenn
Þjóðarpúls Gallup
Hanna Birna vann stórsigur
Ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir og Ögmundur Jónasson munu leiða lista Vinstri grænna
á höfuðborgarsvæðinu í þingkosningunum í vor. Birni Vali Gíslasyni þingmanni var hins vegar hafnað.
Reykjavík
Suðvestur-
kjördæmi
GRÉTAR ÞÓR
EYÞÓRSSON
6
VALIÐ Á FRAMBOÐSLISTA STJÓRNMÁLAFLOKKANNA