Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.11.2012, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 26.11.2012, Qupperneq 12
26. nóvember 2012 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid. is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Misgengi á þróun íbúðaverðs og lána sem varð á árunum 2008 og 2009 hefur vakið upp kröfur um lækkun verðtryggðu lánanna um allt að 20% til þess að bæta eigna rýrnunina. Þykir eignarýrnunin ósanngjörn og eðlilegt talið að skattgreið- endur eða lífeyrisþegar beri kostnaðinn. En þessi lýsing á hreint ekki við nema stundum og veruleg vandkvæði eru á því að framkvæma skuldaniðurfellinguna þannig að sanngjarnt verði. Húsnæðis- lán eru veitt til 25-40 ára. Ekki er hægt að líta til misgengis á einu afmörkuðu tímabili heldur verður að gera leiðrétt- ingar yfir allan lánstímann. Þá verður að leiðrétta misgengi á báða vegu, bæði þegar íbúðareigandi tapar og líka þegar hann hagnast vegna þess að íbúðarverð hækkar meira en lánin. Það er engan veginn sanngjarnt að hagnaður sé einka- væddur en tapið sent til skattgreiðenda eða ömmu og afa. Loks verður að bæta misgengi sem verður vegna annarra orsaka en bankahruns eins og til dæmis vegna breytinga í atvinnulífi einstakra byggðarlaga. Mörg dæmi eru um mikið verðfall fasteigna á undanförnum ára- tugum víða um landið, jafnvel mun meira en nú varð á höfuðborgarsvæðinu, og jafnræðisregla stjórnarskrárinnar gerir það að verkum að ekki verður hægt að mismuna íbúðareigendum eftir staðsetn- ingu fasteignar, orsökum hruns eða hvenær það varð. Lítum á dæmi um fasteign á höfuð- borgarsvæðinu sem keypt var í árs byrjun 2000. Gert er ráð fyrir að hún hafi kostað 15 m.kr. og viðskiptabankinn hafi lánað fyrir öllu kaupverðinu til 25-40 ára verð- tryggt. Til einföldunar er gert ráð fyrir að ekkert hafi verið greitt af láninu nema vextir. Miðað við markaðsverð í dag myndi íbúðin seljast á 39 m.kr. en lánið stæði í 31 m.kr. Kaupandinn sem ekkert átti í upphafi hefur eignast fyrirhafnar- laust 8 m.kr. og á 20% skuldlausan eignar- hlut. Krafan um 20% lækkun lánsins þýðir að viðkomandi yrðu færðar á silfur- fati 6 m.kr. til viðbótar. Hvaða ranglæti er verið að lagfæra? Með vaxandi kaupmætti á næstu árum mun íbúðarverð hækka umfram hækkun lánsins. Þá á íbúðareig- andinn eignaaukninguna einn og lífeyris- þeginn sem greiddi lækkun lánsins fær ekkert. Hvar er sanngirnin í þessu? Gefi ð þeim sem græddu FJÁRMÁL Kristinn H. Gunnarsson fv. alþingismaður ➜ Það er engan veginn sanngjarnt að hagnaður sé einkavæddur en tapið sent til skattgreiðenda eða ömmu og afa. „Fremstur norrænna sakamálahöfunda.“ THE TIMES N ú þegar tekist hefur að koma böndum á farsóttir, sem áður voru helsta heilbrigðisógnin, stafar heilsu Vestur- landabúa helst ógn af lifnaðarháttum sínum; lifnaðar- háttum sem flestir eru kenndir við velmegun. Nýr heimsfaraldur er þannig í uppsiglingu að mati læknanna Vilmundar Guðnasonar, forstöðulæknis Hjartaverndar, og Karls Andersen, prófessors í hjartalækningum, sem nýverið birtu grein í Læknablaðinu þar sem fjallað var um langvinna sjúk- dóma sem heimsfaraldur 21. aldarinnar. Að þeirra mati er vandinn sem hlýst af svokölluðum lífsstílssjúkdómum að sliga heilbrigðis- kerfið og stendur hagvexti í heiminum fyrir þrifum. Langvinnir sjúkdómar valda nú 65 prósentum dauðsfalla í heiminum en 85 prósentum ef eingöngu er litið til Evrópu. Þetta eru hjarta- og æðasjúkdómar, langvinnir lungnasjúkdómar, krabbamein og sykursýki. Vissu- lega hefur veruleg framþróun orðið í lækningum við þessum sjúkdómum. Hitt liggur fyrir að mun árangursríkara er að reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir sjúkdómana. Ávinningurinn af því er hvort tveggja minni kostnaður í heilbrigðiskerfinu og hitt sem ekki er minna um vert; meiri lífsgæði. Forvarnirnar eru tvenns konar. Annars vegar er um að ræða fræðslu og aðrar aðgerðir sem hafa það markmið að breyta því neyslumynstri sem faraldrinum veldur. Hins vegar er um að ræða svokallaða skimun sem beint er að tilteknum hópum sem vegna aldurs, erfða eða lífsstíls eru líklegri en aðrir til að fá tiltekna sjúkdóma. Þá er leitað að byrjunareinkennum sjúkdóma í því skyni að snúa við þróun eða lækna þá á byrjunarstigi. Skimunin skilar sannarlega árangri. Til þess að hún gagnist þarf þó bæði að bera sig eftir henni og greiða fyrir hana úr eigin vasa. Flest stéttarfélög taka raunar þátt í þessum kostnaði eða greiða hann til fulls en einnig þarf að bera sig eftir því, auk þess sem styrkurinn ber skatt. Ljóst er að auka mætti skilvirkni skimunar með því að greiða aðgengi að henni. Forvarnir sem stuðla að því að breyta lífsháttum fólks til að draga úr hættunni á langvinnum sjúkdómum skipta þó ekki síður máli. Fyrir tilstilli slíkra forvarna hefur stórlega dregið úr reykingum undanfarna áratugi og árangurinn birtist í stórfækkun dauðsfalla af völdum kransæðasjúkdóma. Fyrirbyggjandi forvarnir felast þó ekki bara í því að auka þekk- ingu fólks á skaðsemi óhollra lifnaðarhátta. Stjórnvöld geta með margvíslegum hætti stuðlað að auknu heilbrigði með óbeinum hætti, aðgerðum sem alls ekki flokkast undir heilbrigðismál. Nefna má skipulags- og samgöngumál. Uppbygging hjólastíga og skilvirkara almenningssamgangnakerfi er til dæmis meðal annars lýðheilsumál. Skólamatur er annað dæmi. Stjórnvöld eiga þess ekki kost, sem betur fer, að fara inn á heimili fólks og fylgjast með því hvað þar er í matinn. Það er hins vegar lágmarkskrafa að það mataruppeldi sem fram fer í ranni skólakerfisins sé til þess fallið að ala upp fólk sem líklegra er til að velja mat sem nærir og byggir upp fremur en mat sem ekki bara er rýr að næringu heldur stuðlar beinlínis að verri heilsu. Baráttan gegn heimsfaraldri 21. aldarinnar felst þannig ekki síst í því að byggja upp samfélag þar sem hvatt er til heilbrigðs lífernis með margvíslegum hætti. Forvarnir eru ekki bara skimun og fræðsla: Samgöngur eru líka forvarnir Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Nýr leiðtogi Hanna Birna Kristjánsdóttir er sigurvegari helgarinnar í prófkjörum stjórnmálaflokkanna. Hún laut í lægra haldi fyrir Bjarna Benedikts- syni í formannsslagnum í fyrra, en stendur nú með pálmann í hönd- unum. Bjarni hlaut 55 prósent atkvæða í efsta sætið í Kraganum, en Hanna Birna kom, sá og sigraði með 74 prósent atkvæða í fyrsta sætið. Þar atti hún kappi við einn helsta sam- starfsmann Bjarna, Illuga Gunnarsson. Hanna Birna hlýtur að stefna á for- mennsku í flokknum eftir þennan glæsilega sigur. Tveir leiðtogar Gangi spár eftir mun Sjálfstæðis- flokkurinn bæta við sig töluverðu fylgi frá síðustu kosningum, en þá hlaut hann mikinn skell. Fari svo aukast líkurnar á ríkisstjórnarþátt- töku flokksins og Hanna Birna er sjálfvalin á ráðherrastól. Þá reynir á samstarf þeirra Bjarna, sagan sýnir að ekki er gott að hafa tvo leiðtoga í sama flokknum sem situr við stjórnvölinn. Enginn áhugi Sammerkt hefur verið prófkjörum að kjósendur hafa lítinn áhuga á því hverjir veljast í forystusveit flokk- anna. Það hlýtur að vera leiðtogum flokkanna áhyggjuefni. Tæpur fjórðungur félaga í Vinstrihreyfing- unni– grænu framboði hafði til að mynda skoðun á því hver þeirra fimm þingmanna sem sóttust eftir efstu sætunum í Reykjavík bæri sigur út býtum. Þátttakan var minnst í því forvali, en ekki hefur hún verið mikil í öðrum. Ný framboð hljóta að hugsa sér gott til glóðarinnar fyrst áhuginn á flokkunum sem eru á þingi er svona lítill. kolbeinn@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.