Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 13

Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 13
MÁNUDAGUR 26. nóvember 2012 | SKOÐUN | 13 – alvöru piparkökur Fást í verslunum Hagkaups og Bónus „Heimsins brestur hjálpar- lið,/ hugur skerst af ergi, / þegar mest ég þurfti við / þá voru flestir hvergi“ orti Frið- rik Jónsson á sínum tíma og þau orð gætu margir fram- bjóðendur gert að sínum eftir helgina. Kjósendur voru flestir hvergi – eða að minnsta kosti fjarri. Og hvað sem líður tali um „ákall um breytingar“ þá bylur hæst í þögninni, rétt eins og andstæðingar Sjálfstæðis- flokksins þreytast ekki á að núa þeim um nasir, eftir túlkanir þeirra á fjarverandi at kvæðum í stjórnarskrárkosningum á dögunum. Lítil þátttaka. Áhuga- leysi. Sinnuleysi. Leiði. Kannski bíður þjóðin átekta og ætlar svo að gera eitthvað óheyrilegt. Og kannski er þjóðin bara að geispa. Þau nýju Kannski er sú stund runnin upp að helst sé hægt að mjaka langþreyttri þjóð á kjörstað til að lýsa því yfir að Icesave- skuldin sé sér með öllu óvið- komandi eða kannski er þetta allt saman ávitull þess að beðið sé eftir nýju framboði. Þau sem nú þegar eru komin fram heita mjög skátalegum nöfnum sem þó er furðu erfitt að muna. Litlum sögum fer af fylginu, enn sem komið er. Björt Fram- tíð er reyndar fjarska geðslegur flokkur – góðvinur minn segir að þetta sé Samfylkingin með mannlega ásjónu – og ekki skal efast um góðan hug fólksins í Dögun og Samstöðu og vera kann að það sé rétt hjá Lilju Mósesdóttur að gengisleysi flokksins sé vegna þess að hún hafi sjálf ekki átt þess kost að koma nógu oft í Silfur Egils; og þótt maður með mitt lífsviður- væri hljóti að hafa ákveðnar efasemdir um það mikla hug- sjónamál píratanna að ekki skuli greiða listamönnum fyrir vinnu sína heldur skuli skjá- mennið einrátt um það hvað það greiðir fyrir og hvað ekki, þá fer ekki á milli mála að ferskir vindar blása um þann nýja flokk. Hægri grænir hafa vissu- lega komið auga á mikið skarð, sem er að vandaðir íhaldsmenn fari að sjá ljósið í umhverfis- málum og leiti markaðslausna á stærstu vandamálum mannkyns en afneiti þeim ekki; talsmenn þessa flokks tala á hinn bóginn aldrei um neitt nema peninga og skuldaniðurfellingar – eins og ekki séu nógir um það. Í Suðvesturkjördæmi höfðu heimamenn ekki erindi sem erfiði gegn Ögmundi Jónas- syni sem er undarlegt sambland af Vesturbæingi og þingmanni Jóns Bjarnasonar. Vinstri græn höfnuðu hins vegar Birni Vali, þessum skemmtilega sjóara að norðan; og hann er sendur aftur heim, roðlaus og beinlaus. Það er synd: þetta er dugnaðar- forkur sem kemur vel fyrir sig orði en talaði full ógætilega um Evrópumál fyrir hreinlífisfólk innanflokks; jafnvel þótt stór hluti kjósenda VG sé heldur Evrópusinnaður er eins og í heilabúi sérhvers flokksbundins VG-liða búi strangur Hjörleifur Guttormsson, þess albúinn að hasta á minnstu linkind gagn- vart auðvaldsríkjunum vondu í vestri. Sjálfur er Hjörleifur hins vegar farinn; genginn í heldur brúnaþungan en óskráðan flokk með Birni Bjarnasyni, Guðna Ágústssyni og Davíð Oddssyni. Ákall um kall? „Ákall um endurnýjun“ – „Sjálf- stæðismenn að kalla eftir breyt- ingum“: þannig voru fyrir- sagnirnar á netmiðlunum í fyrrakvöld þegar fregnir bárust af úrslitum úr prófkjöri sjálf- stæðismanna í Reykjavík. Ekki verður þó sagt að þau köll séu beinlínis ærandi. Nema maður heyrir náttúrlega kröf- una um þá einu breytingu sem sjálfstæðismönnum finnst ástæða til að gera: að hætta að tala um „þetta svokallaða „hrun““ en fara aftur að virkja, höndla, kaupa, selja, gíra sig, veðsetja, taka lán, borða gull og kaupa Eiffelturninn; fara aftur að stjórna eins og Guð ákvað að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að gera þegar hann skapaði heiminn. Sjálfstæðismenn eru svo lítið eins og grunsamlega fólkið í glæpaþáttunum í sjón varpinu sem segir þegar löggan er búin að tæta í sig fjarvistarsönnun þeirra: „I want to call my lay- wer.“ Sigurvegarinn í prófkjör- inu, Brynjar Níelsson, hefur sýnt okkur hvernig hann getur komið fram opinberlega og varið fimlega alls kyns mál- stað án þess að depla augunum. Hann hefur sýnilega hrifið marga sjálfstæðismenn með þeirri framgöngu sinni, og þeir hugsað með sér að slíkur tals- maður sé einmitt það sem sjálf- stæðisstefnan þurfi á að halda um þessar mundir: slyngur verjandi. Annars er óþarfi að vera með skens: Sigurvegari próf kjörsins er auðvitað Hanna Birna, sem sumir segja óskrifað blað. Hún hefur þó áður sýnt í störfum sínum að hún getur bæði verið hörð í horn að taka þegar því er að skipta, og brúarsmiður þegar svo ber undir; verið ýmist Harðsnúna Hanna, Hraðmælta Hanna eða Hlýlega Hanna. Um hríð hafa sjálfstæðis- menn reynt að finna sig: Þeir hafa farið að hamast á ný á móti Uppkastinu, sem síðast var þjarkað um árið 1908 en heitir nú ESB; þeir hafa safnað skeggi sumir karlarnir (Birgi Ármannssyni hefði áreiðanlega gengið betur nú með sítt skegg – en það er hins vegar óvíst með Guðlaug Þór), konurnar hafa ýmsar klæðst lopapeysu með hæfilega smart og þjóðlegum mynstrum. „Mín ástkæra þjóð, þú ert enn í peysu,“ orti séra Matthías á sínum tíma og átti við að sér fyndist þjóðin lúðaleg og afturhaldssöm; nú er þessi peysa (grænlenska mynstrið kom reyndar ekki fyrr en um miðja 20. öld) orðin að tákni nægjusemi og þjóðlegra dyggð. Kannski eigum við eftir að sjá kvenframbjóðendur Sjálf- stæðisflokksins ganga alla leið fyrir næstu kosningar og hrein- lega koma fram á peysufötum? Kannski ekki. Hitt stendur eftir, að stór hluti kjósenda nennir þessu ekki alveg; er eins og luntalegur unglingur sem neitar að koma fram og vera með en vill heldur hanga einn inni hjá sér á netinu, sem kannski er einmitt sá staður sem líkist því einna helst að vera hvergi. Þá voru flestir hvergi Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Annars er óþarfi að vera með skens: Sigurvegari prófkjörsins er auðvitað Hanna Birna sem sumir segja óskrifað blað. Hún hefur þó áður sýnt í störfum sínum að hún getur bæði verið hörð í horn að taka þegar því er að skipta, og brúarsmiður þegar svo ber undir; verið ýmist Harðsnúna Hanna, Hraðmælta Hanna eða Hlýlega Hanna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.