Fréttablaðið - 26.11.2012, Síða 16

Fréttablaðið - 26.11.2012, Síða 16
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORBERGUR ÓLAFSSON Garðastræti 6, Reykjavík, sem lést á heimili sínu 17. nóvember, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 29. nóvember kl. 13.30. Ólafur Þorbergsson Valborg Gunnarsdóttir Rakel Þorbergsdóttir Ragnar Santos Thelma Þorbergsóttir Kristinn Jónasson Ísak, Þorbergur, Arnar, Sölvi, Elsa, Kristófer Karl og Hildur Emelía. Móðir okkar og amma, ÁSTHILDUR SIGURGÍSLADÓTTIR sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 19. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Júlíana Þórhildur Lárusdóttir Þóra Lárusdóttir Lárus Arnór Guðmundsson Þórhildur Björnsdóttir Sigríður Ásta Björnsdóttir Ásthildur Erlingsdóttir Ólöf Auður Erlingsdóttir Ragnheiður Erlingsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STEFÁNS VALDIMARS ÞORSTEINSSONAR fv. feldskera, Silfurteigi 6, Reykjavík. Anna Margrét Cortes Björg Cortes Stefánsdóttir Halldór I. Elíasson Steinunn Guðbjörg Stefánsdóttir Stefán Valdimar Halldórsson Anna Margrét Halldórsdóttir Haraldur Darri Þorvaldsson Steinar Ingimar Halldórsson Xue Li Halldór Alexander, Jökull Ari og Hugrún Eva Haraldsbörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og virðingu við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS KR. ÁRNASONAR skipasmiðs, Njörvasundi 30 í Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á L4 á Landakoti fyrir kærleiksríka umönnun. Sigríður Magnúsdóttir Laufey Jóhannsdóttir Skúli Gunnar Böðvarsson Árni Jóhannsson Theódóra Þórarinsdóttir Kristján Jóhannsson Jóhanna J. Bess Júlíusdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNNAR MAGNÚSDÓTTUR frá Flögu, Núpalind 6, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við Höllu Skúladóttur krabbameinslækni, hjúkrunarþjónustu Karitas og starfsfólki á hjúkrunarheimili Das við Boðaþing fyrir ómetanlega hjálp og alúðlega umönnun í veikindum hennar. Haukur Hlíðberg Aðalheiður Sævarsdóttir Alma Hlíðberg Jónas Gunnarsson Valur Hlíðberg Hildur Einarsdóttir Arndís B. Smáradóttir Gísli Georgsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, GUÐFINNA GUÐMUNDSDÓTTIR Baugholti 7, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þriðjudaginn 20. nóvember. Útför verður frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 27. nóvember kl. 13.00. Jón Ásmundsson og aðrir aðstandendur. Þegar mannfólk strandar skipi sínu við huldubyggð á eldfjallaeyju verður uppi fótur og fit. Huldufólkið hefur heyrt ýmislegt misjafnt um mannfólkið og leggur á ráðin um að stökkva þeim burt. Ráðabruggið fer þó öðruvísi en til stóð með afdrifaríkum afleiðingum. Svo hljóðar söguþráðurinn í Sögunni af huldufólkinu á eldfjallaeyjunni eftir mæðginin Sigrúnu Elsu Smáradóttur og Smára Rúnar Róbertsson. Sagan átti sér langan aðdraganda en Sigrún Elsa skrifaði fyrsta uppkastið að henni í barnaskóla. „Sagan kom aftur í leitirnar þegar ég var taka til uppi á háalofti árið 2010,“ segir hún. „Ég las hana og sá ýmislegt skemmtilegt í henni, til dæmis ástir eldfjalla og fleira. Þetta sat í mér og ári síðar ákvað ég að reyna að tengja þessar hugmyndir saman og í heild- stæða sögu. Vorið 2011 settist ég niður og byrjaði að skrifa.“ Sigrún Elsa segir það hafa legið nokkuð beint við að leita til Smára Rúnars sonar síns til að myndskreyta söguna, en hann var á leið í listnám til Amsterdam sama haust. „Hann vann því að teikningum fyrir bókina um sumarið.“ Samstarfið gekk vel að sögn Sig- rúnar. „Við fórum yfir það í sameiningu hvernig anda við vildum hafa í bókinni, köstuðum á milli okkar hugmyndum og ræddum þær fram og til baka. Þetta hefur eflaust styrkt sambandið enn frekar á milli okkar ef eitthvað er.“ Söguefnið stendur þeim mæðginum nærri því bæði fæddust þau í Vest- mannaeyjum; Sigrún var nýfædd þegar gaus í Heimaey og flúði yfir á megin- landið með foreldrum sínum á meðan það gekk yfir en eftir gos flutti fjöl- skyldan aftur til eyja. „Askan var manni stöðug áminning um gosið. Ég hef líka alltaf haft áhuga á óútskýrðum hlutum; ég ólst upp í gömlu húsi þar sem hlutir voru alltaf að hverfa og dúkka síðan upp á stöðum þar sem var búið að þaulleita. Við gengum út frá því að við værum með húsálfa heima! Það var því sjálfsagt engin tilviljun að ég ákvað að skrifa sögu um huldufólk á eldfjallaeyju.“ Auk þess að myndskreyta bókina braut Smári Rúnar hana um og til að myndirnar fái að njóta sín sem best eru sumar síðurnar með innbrotnum flipa fyrir textann. „Mér finnst þetta í aðra röndina vera listaverkabók,“ segir Sigrún Elsa. „Það er öðruvísi upplifun að lesa barnabók með svona myndum. Enda hug myndin að gera skemmtilega bók sem full orðnir og börn geta notið að lesa saman.“ Sigrún Elsa segir það koma vel til greina að skrifa fleiri bækur. „Við ætlum að sjá hvernig viðtökur þessi fær áður en við ákveðum nokkuð en ég er búinn að gera drög að annarri sögu. Þetta var að minnsta kosti það skemmtilegt að við erum til í meira.“ bergsteinn@frettabladid.is Mamman skrifar og sonurinn teiknar Mæðginin Sigrún Elsa Smáradóttir og Smári Rúnar Róbertsson gáfu út sína fyrstu bók á dögunum, barnabókina Söguna af huldufólkinu á eldfj allaeyjunni. Sigrún Elsa samdi söguna en Smári Rúnar myndskreytti. Þennan dag árið 1981 sameinuðust síð degisblöðin tvö sem gefin voru út í Reykjavík og barist höfðu illvígri baráttu um markaðinn frá 8. september 1975. Óbreyttir starfsmenn þeirra, sem höfðu litið á keppinautana sem algera fjandmenn, voru nú allt í einu orðnir vinnufélagar því þegar þeir komu til starfa þennan morgun var búið að brjóta niður skilvegginn á milli ritstjórnanna í Síðumúla 12 og 14. Þeir héldu sig líka sjá ofsjónir þegar þeir sáu ritstjóra beggja blaðanna sitja í mak- indum hlið við hlið, menn sem höfðu ekki yrt hvor á annan svo vitað væri heldur skipst á hörðum skeytum í leiðurunum. Verkfall Félags bókagerðarmanna hafði staðið frá 14. til 24. nóvember og þá hafði hugmyndin að sameiningu komið upp og gott ráðrúm fékkst til að undirbúa hana. Nýja blaðið hét Dagblaðið & Vísir en var síðar stytt í Dagblaðið Vísi og síðar DV. Ritstjórar voru Jónas Kristjánsson, sem áður ritstýrði Dagblaðinu, og Ellert B. Schram, áður ritstjóri Vísis. Reynt var að samhæfa efnisþætti blaðanna en smám saman dró það meira dám af Dagblaðinu. Fyrir sameiningu var upp- lag beggja blaðanna samanlagt 44-48 þúsund eintök en ári eftir sameiningu var það 37-39 þúsund eintök. ÞETTA GERÐIST: 26. NÓVEMBER 1981 Dagblaðið og Vísir í eina sæng BURT MEÐ MENNINA Huldufólkið er ekki par hrifið af því þegar mannfólk kemur sér fyrir á eldfjallaeyjunni. Ráðabrugg til að hrekja þá burt fer hins vegar öðruvísi en þeir ætluðu sér. SIGRÚN ELSA OG SMÁRI RÚNAR Þegar Sigrún Elsa fann drög að sögu sem hún hafði skrifað í barnaskóla ákvað hún að ljúka við hana. Þá lá beint við að biðja soninn, verðandi myndlis- tarnemann, um að myndskreyta.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.