Fréttablaðið - 26.11.2012, Side 22

Fréttablaðið - 26.11.2012, Side 22
KYNNING − AUGLÝSINGÖryggisþjónusta & kerfi MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s.512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. BLEIKAR OG GRÆNAR FLUGUR Á VEGG Reykskynjarar eru mörgum þyrnir í augum en útlit þeirra stangast gjarnan á við stíl heimilisins. En hver segir að reykskynjarar þurfi endilega að vera ljótir og lummó? Finnska hönnunarfyrirtækið Jalo Helsinki fékk tvo hönnuði til liðs við sig, Harri Koskinen og Paola Suhonen, og leysti það vandamál í eitt skipti fyrir öll. Úr varð Lento, bráðsniðugur reykskynjari sem lítur út eins og fluga á vegg. Reykskynjarinn er fram- leiddur í fimm litum og hefur slegið í gegn. Meðal annars hlaut hann Red Dot Design Award árið 2011. Lento-reykskynjarinn fæst í verslunum hér á landi, meðal annars Suomi PRKL! Design á Laugavegi og í Pottum og prikum á Akureyri. Foreldrarölt er mjög virkt í flestum skólahverfum Kópa-vogs. Um er að ræða samstarf foreldra, lögreglu, forvarnafull- trúa og Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs. Markmið foreldra- röltsins er margþætt. Þau snúa að hefðbundnu forvarnarstarfi, gefa foreldrum tækifæri til að kynnast betur og hverfinu sínu og ekki síst þjónar það hlutverki nágranna- vörslu. Marta Sigurjónsdóttir situr nú fjórða vetur sinn í stjórn SAM- KÓP (Samtök foreldrafélaga í Kópa- vogi). Hún segir að með því að vera á ferli eftir útivistartíma barna á kvöldin sýni foreldrar að þeim sé ekki sama. „Foreldraröltið á sinn þátt í að brjóta upp það mynstur sem annars kæmist á ef enginn full- orðinn væri á ferli. Auk þess á nær- vera foreldra líka þátt í að fæla frá ýmsa ólöglega starfssemi.“ Skólar misduglegir Fyrsta foreldraröltið í Kópavogi hófst árið 1994 þegar foreldrar barna í Hjallaskóla höfðu fengið nóg af látum og skemmdar verkum kringum verslunarmiðstöðina í Engihjalla. Fyrsta veturinn var fá- mennur hópur foreldra sem gekk um hverfið en næsta vetur bættust Digranesskóli, Snælandsskóli og Þinghólsskóli í hópinn. Á næstu árum bættust síðan fleiri skólar í hópinn að sögn Mörtu en foreldrar eru þó misduglegir milli skóla. „Skólarnir eru misduglegir hvað þetta varðar en yfirleitt þarf einhver að halda utan um röltið innan skól- ans. Ég á tvö börn í Hörðuvallaskóla og við röltum öll föstudagskvöld. Snælandsskóli er eini skólinn þar sem foreldrar rölta bæði á föstu- dags- og laugardagskvöldum. Auk þessara tveggja skóla eru það Álf- holtsskóli, Kársnesskóli og Linda- skóli sem standa sig best í foreldra- röltinu.“ Ferlið fer yfirleitt þannig fram að einn aðili í skólanum heldur utan um foreldraröltið en bekkir skólans skipta helgum á milli sín. Tölvupóstur er sendur á alla for- eldra í bekknum sem á viðkom- andi helgi og bekkjarfulltrúar taka síðan við og hvetja foreldra áfram. „Hópurinn hittist kl. 22, þegar úti- vistartíma lýkur, og röltir ákveðna leið. Þá er stoppað við þá staði þar sem börn og unglingar gætu helst verið, til dæmis við skóla, undir- göng, íþróttahús og fleiri staði. Ef allt gengur vel tekur gangan 1-1,5 klukkutíma.“ Öruggari hverfi Mörtu finnst foreldraröltið mikil- vægur vettvangur þrátt fyrir að margt hafi breyst frá því hún var ung. „Börn og unglingar héngu meira úti í sjoppu og niðri í bæ hér áður fyrr og hópamyndanir voru algengari. Í raun er hending að maður sjái barn úti eftir útivistar- tíma. Nú hefur þetta mikið breyst og foreldraröltið snýr meira að ná- grannagæslu og að vera vett vangur fyrir fólkið í hverfinu til að kynn- ast. Þannig gerum við líka hverfið okkar betra og öruggara.“ Í Hörðuvallaskóla eru bekkir skólans í keppni um það hvaða for- eldrar eru duglegastir að taka þátt. Í verðlaun er pitsuveisla fyrir þrjá duglegustu bekkina sem hefur leitt til þess að börn og foreldrar eru mjög áhugasamir um foreldra- röltið. Stundum ganga jafnvel 15-20 foreldrar saman. „Að vinna pitsu- veislu þýðir eitt bekkjarkvöld fyrir bekkinn og það munar nú um það.“ Foreldrar passa upp á hverfið Foreldrar eru farnir að taka aukinn þátt í nágrannavörslu. Algengt er að foreldrar grunnskólabarna skipuleggi foreldrarölt um hverfið sitt með góðum árangri. Röltið styrkir líka samband foreldra og gerir hverfið öruggara. „Foreldraröltið snýr meira að nágrannagæslu,“ segir Marta Sigurjónsdóttir hjá SAMKÓP. MYND/STEFÁN 25% afsláttur í Skemmtigarðinum Smáralind á sunnudögum. NÝTT OG ÖFLUGRA FRÍÐINDAKERFI sjálfvirkur afsláttur frá samstarfsaðilum beint í vasa áskrifenda 25% afsláttur Virkjaðu kreditkortið þitt og annarra fjölskyldumeðlima á mínar síður á www.stod2.is. Ört vaxandi hópur samstarfsaðila. Fylgstu með!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.