Fréttablaðið - 26.11.2012, Side 56
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| SPORT | 24
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Nú eru þeir
kaldir hjá Eirvík
Bjóðum takmarkað magn af kæli- og frystiskápum frá Liebherr.
Þeir eru búnir nýjustu tækni, hannaðir af alúð og framleiddir af
þýskri nákvæmni. Einstök framtíðareign.
SÉRVERÐ
Nr. litur Hæð Stærð í ltr. Orkufl. Sérverð
CUsl 3503 grár 181,7 cm K 232 F 91 A+ 174.700,-
CPesf 3523 stál 181,7 cm K 230 F 91 A++ 199.995,-
CP 3523 hvítur 181,7 cm K 230 F 91 A++ 180.995,-
Ces 4023 stál 201,1 cm K 281 F 91 A+ 194.995,-
C 4023 hvítur 201,1 cm K 281 F 91 A+ 156.995,-
ÚRSLIT
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
SUNDERLAND - WEST BROM 2-4
0-1 Zoltán Gera (30.), 0-2 Shane Long (44.), 1-2
Craig Gardner (74.), 1-3 Romelu Lukaku (81.),
2-3 Stéphane Sessegnon (87.), 2-4 Marc-Antoine
Fortuné (90.+5).
EVERTON - NORWICH 1-1
1-0 Steven Naismith (12.), 1-1 Sébastien Bas-
song (90.)
MANCHESTER UNITED - QPR 3-1
0-1 Jamie Mackie (52.), 1-1 Jonny Evans (64.),
2-1 Darren Fletcher (68.), 3-1 Hernández (71.)
STOKE - FULHAM 1-0
1-0 Charlie Adam (26.)
WIGAN - READING 3-2
0-1 Sean Morrison (35.), 1-1 Jordi Gomez (58.),
2-1 Gomez (68.), 2-2 Sj.m. (79.), 3-2 Gomez (90.).
ASTON VILLA - ARSENAL 0-0
SWANSEA - LIVERPOOL 0-0
SOUTHAMPTON - NEWCASTLE 2-0
1-0 Adam Lallana (34.), 2-0 Gastón Ramírez (60.)
CHELSEA - MANCHESTER CITY 0-0
TOTTENHAM - WEST HAM 3-1
1-0 Jermain Defoe (44.), 2-0 Gareth Bale (58.),
3-0 Defoe (64.), 3-1 Andy Carroll (82.)
STAÐA EFSTU LIÐA
Man. United 13 10 0 3 32-18 30
Man. City 13 8 5 0 25-10 29
West Brom 13 8 2 3 23-15 26
Chelsea 13 7 4 2 24-13 25
Everton 13 5 6 2 23-17 21
Arsenal 13 5 5 3 23-13 20
Tottenham 13 6 2 5 23-22 20
West Ham 13 5 4 4 16-15 19
Swansea 13 4 5 4 18-16 17
Fulham 13 4 4 5 25-23 16
Liverpool 13 3 7 3 17-16 16
Stoke 13 3 7 3 11-11 16
MARKAHÆSTU MENN
Luis Suárez, Liverpool 10
Demba Ba, Newcastle 8
Robin van Persie, Manchester United 8
Michu, Swansea City 7
Jermain Defoe, Tottenham 7
Steven Fletcher, Sunderland 6
Marouane Fellaini, Everton 6
Carlos Tévez, Manchester City 6
Edin Džeko, Manchester City 6
STEFÁN RAFN FJÓRÐI 7 OG 70 LEIKURINN
Haukamaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði
níu mörk úr tíu skotum þegar Haukar unnu
27-26 sigur á ÍR í N1 deild karla í hand-
bolta á laugardaginn. Haukaliðið hefur
náð í 17 af 18 mögulegum stigum í
deildinni í vetur og er með sex stiga
forskot á toppnum. Stefán Rafn hefur
farið á kostum á tímabilinu og þetta
var fjórði 7 og 70 leikur hans í vetur en
það er þegar hann skorar 7 mörk eða meira
jafnframt því að nýta yfir 70 prósent skota
sinna. Stefán Rafn er búinn að skora 7,2
mörk í leik og nýta 66 prósent skota sinna í
deildinni í vetur.
Alfreð Gíslason stýrði Kiel til tólf marka sigurs á Lemgo, 36-24, í þýsku
úrvalsdeildinni í handbolta í gær en liðið hefur þar með leikið 50 deildar-
leiki í röð án þess að tapa. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk og
Aron Pálmarsson var með 1 mark. Guðmundur Guðmundsson varð fyrir
áfalli í 20 marka sigri Rhein-Neckar Löwen á gríska liðinu Diomidis Argous,
37-17, í EHF-bikarnum því aðalmarkaskorari liðsins, hornamaðurinn Uwe
Gensheimer, sleit hásin í leiknum. Dagur Sigurðsson stýrði Füchse Berlin
til 25-24 sigurs í Zagreb en þetta var fjórði sigur liðsins í röð í Meistara-
deildinni.
FORMÚLA EITT VETTEL HEIMSMEISTARI
ÞRIÐJA ÁRIÐ Í RÖÐ EFTIR MIKLA DRAMATÍK
Sebastian Vettel hjá Red Bull komst í gær í hóp með
þeim Michael Schumacher (2000-04) og Juan-
Manuel Fangio (1954-57) þegar hann vann sinn
þriðja heimsmeistaratitil í röð í Formúlu eitt.
Hann er yngstur þeirra sem hafa unnið heims-
meistaratitilinn þrisvar sinnum.
Vettel tryggði sér titilinn í frábærum og
dramatískum lokakappakstri í Brasilíu þar
sem hann náði sjötta sætinu þrátt fyrir
martraðarbyrjun. Fernando Alonso náði
öðru sætinu í gær en hefði þurft að vinna
Brasilíu-kappaksturinn til að tryggja sér
titilinn. Vettel endaði bara þremur stigum
á undan Alonso en Kimi Raikkonen varð
þriðji.
Vettel byrjaði illa og féll síðan
niður í neðsta sæti eftir árekstur við
Bruno Senna. Vettel þurfti því að
berjast fyrir lífi sínu þegar Alonso
var skyndilega kominn í þriðja
sætið en þýska seiglan skilaði
honum upp í sjötta sætið sem
dugði á endanum. Red Bull
vann keppni bílasmiða en
Ferrari var þar í öðru sæti.
ALFREÐ OG KIEL 50 LEIKIR Í RÖÐ ÁN TAPS
FÓTBOLTI Manchester United
hrifsaði aftur til sín toppsæti
ensku úrvalsdeildarinnar um
helgina þökk sé sigri liðsins á
QPR á laugardag og markalausu
jafntefli Chelsea og Manchester
City á Brúnni í gær. United hefur
eins stigs forskot á nágrannana í
City og West Brom er komið upp
fyrir Chelsea og í 3. sætið eftir
fjórða sigurinn í röð.
Rafael Benitez fékk ekki góðar
móttökur frá stuðningsmönnum
Chelsea þegar hann stýrði lið-
inu í fyrsta sinn. Stuðningsmenn
Chelsea-liðsins bauluðu á nýja
stjórann á milli þess að syngja
lofsöngva um Roberto Di Matteo
sem var rekinn frá liðinu í síðustu
viku.
Benitez var ekki að hlusta
Leikurinn var lítil skemmtun en
Benitez gat þakkað fyrir að gest-
irnir í Manchester City nýttu ekki
eitt af fáum færum leiksins en það
gerist ekki oft að nýr stjóri þurfi
að mæta bauli og níð söngvum
áður en hann stjórnar sínum
fyrsta leik.
„Ég var ekkert að hlusta á þetta
heldur einbeitti mér bara að leikn-
um. Ég var ekki að fylgjast með
neinu öðru en frammistöðu leik-
mannanna,“ sagði Rafael Benitez
eftir leikinn en stigið dugði ekki
til að endurheimta þriðja sætið
sem spútniklið West Borm tók af
þeim með 4-2 sigri á Sunderland.
„Ég get skilið óánægjuna vegna
þess sem gerðist áður, en meiri-
hluti stuðningsmannanna veit
betur. Ég er fagmaður og ætla að
sinna mínu starfi. Ég vil vinna
með Chelsea og ég vil vinna með
þeim,“ sagði Benitez.
„Það var erfitt fyrir þá að spila
í þessu andrúmslofti en við spil-
uðum vel. Við töpuðum í góðum
leik í fyrra en nú náðum við í stig.
Ég er ekki ánægður en þetta var
betra en í fyrra,“ sagði Roberto
Mancini, stjóri Manchester City.
Spiluðum bara í tíu mínútur
Manchester United lenti enn á
ný 0-1 undir, nú á móti Queens
Park Rangers, en vara mennirnir
kveiktu í liðinu og United-liðið
tryggði sér 3-1 sigur með þremur
mörkum á sjö mínútna kafla.
„Við spiluðum bara í tíu mín útur
í þessum leik og þær tíu mínútur
voru frábærar. Anderson breytti
leiknum fyrir okkur. Það er
áhyggjuefni að vera að lenda allt-
af undir en í þetta skipti vakti það
okkur. Svona sigrar þegar þú ert
ekki að spila þinn besta leik eru
alltaf mikilvægir,“ sagði Sir Alex
Ferguson, stjóri Man. United.
Heil umferð í vikunni
Það er stutt á milli leikja í ensku
úrvalsdeildinni því heil umferð
fer fram í vikunni og þar á meðal
er leikur Tottenham og Liverpool
á White Hart Lane. Rafael Beni-
tez fær þá annan heimaleik þegar
liðið tekur á móti Fulham. Það má
búast við enn frekara bauli þar.
ooj@frettabladid.is
Baulað á Benitez á Brúnni
Manchester United komst aft ur í toppsætið í ensku úrvalsdeildinni en ekkert mark var skorað í leikjum
Chelsea, Manchester City, Arsenal og Liverpool um helgina. Ævintýri West Brom er í fullum gangi.
ERFIÐAR AÐSTÆÐUR Rafael Benitez fékk að heyra það frá stuðn-
ingsmönnum Chelsea sem sakna Roberto Di Matteo. MYND/AFP
Gylfi Þór Sigurðsson kom við sögu í 3-1 sigri
Tottenham á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í
gær en hann var búinn að dúsa á bekknum í síðustu
tveimur deildarleikjum liðsins og hafði ekki spilað í
úrvalsdeildinni síðan í leik á móti Wigan 3. nóvember.
Gylfi kom reyndar ekki inn á fyrr en á 94. mínútu í gær
eða þegar tveggja marka maðurinn Jermain Defoe fékk
heiðursskiptingu í lok leiksins.
Gylfi kom inn á 94. mínútu
SPORT