Fréttablaðið - 26.11.2012, Síða 59
MÁNUDAGUR 26. nóvember 2012 | SPORT | 27
F
A
B
R
IK
A
N
OSTAVEISLA FRÁ MS
Gullostur
Hvítmygluostur. Hvítmyglan er einnig
inni í ostinum. Áhugaverður ostur
með mildu bragði sem gott er að
njóta í lok góðrar máltíðar. Þessi
ostur er einn af flaggskipunum í
ostafjölskylduni frá MS.
Heilbakaður Gullostur
með timjan og hvítlauk
Vefjið smjörpappír utan um ostinn, pikkið átta göt ofan í
ostinn og stingið ögn af timjan ásamt þunnum sneiðum
af hvítlauk ofan í götin. Dreypið örlítilli ólífuolíu yfir.
Pakkið ostinum aftur inn í bréfið sem var utan um hann
og bakið hann í 30 mínútur við 160°C. Berið ostinn
fram með grilluðu hvítlauksbrauði.
Osta er hægt að bera fram með ýmsum hætti, það
má t.d. borða Gullostinn með góðu ávaxtamauki, eða
með hnetum og hella síðan góðu hunangi yfir eða setja
í hann fyllingu úr þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum
og fíkjum og skreyta hann að ofan með þurrkuðum
trönuberjum og hlynsírópi. Búa til litlar og fallegar
ostasamlokur eða ostasnittur.
Kynntu þér fleiri góðar hugmyndir og
uppskriftir á heimasíðunni: www.ostur.is
Ostabakki
- antipasti
Grillaðar paprikur, sól- eða ofn-
þurrkaðir tómatar, grillað eggaldin,
hráskinka og þurrkaðar pylsur.
Gullostur, gráðaostur með ferskri
peru, blár Kastali.
Steyptur villisveppaostur skorinn
út í litla hringi. Maribóostur með
kúmeni. Kryddað apríkósumauk.
Baguette-brauð.
Uppskriftina að kryddaða apríkósu-
maukinu má finna á vefnum www.ostur.is
Eygló Ósk í þrettánda
sæti á EM
SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Sund félaginu
Ægi varð í 13. sæti í 200 metra baksundi á
Evrópumeistaramótinu í sundi í Chartres í
Frakklandi. Eygló Ósk synti á 2:09;88 mínútum
en Íslandsmetið hennar (2:07;10 mín.)
hefði dugað henni til að komast í úr-
slitasundið. Eygló varð í 15. sæti í 100
metra baksundi.
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr SH varð
í 15. sæti í 50 metra baksundi og
Inga Elín Cryer bætti eigið Íslands-
met í 400 metra skriðsundi þegar
hún synti á 4:14;24 mínútum.
Fyrirliðinn farinn
heim til Akureyrar
FÓTBOLTI Atli Sveinn Þórarinsson,
fyrirliði Valsmanna, hefur ákveðið
að spila næsta sumar með KA í 1.
deildinni en hann skrifaði undir
tveggja ára samning í gærmorgun.
Miðvörðurinn er komin aftur í KA
eftir átta ára fjarveru frá sínu upp-
eldisfélagi en Atli Sveinn hefur spilað
með Val frá 2004 og verið fyrirliði
þar í fimm sumur.
„Ég skynja núna að það er mikill
kraftur í félaginu og mér finnst virki-
lega vera lag til þess að taka skrefið
og koma liðinu upp í efstu deild, þar
sem ég tel að það eigi heima,“ sagði
Atli Sveinn á heimasíðu KA í gær.
Fimm bræður í
sama leiknum
BLAK Fimm bræður leika með
Stjörnunni og Þrótti úr Neskaupsstað
í Mikasadeild karla í blaki og það
vakti athygli að þeir voru allir með í
3-0 sigri Stjörnunnar í innbyrðis leik
liðanna um helgina.
Róbert Karl, Vignir Þröstur og Ástþór
Hlöðverssynir léku með Stjörnunni
en í liði Þróttar Nes voru þeir Geir
Sigurpáll og Hlöðver Hlöðverssynir.
Stjarnan vann hrinurnar í leiknum
25-20, 25-21 og 25-15 og komst með
þessum sigri í toppsæti deildarinnar
en Garðbæingar eru komnir með
fjórtán stig.
Fjórir sigrar í röð
hjá Jóni Arnóri
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
og félagar í CAI Zaragoza unnu
sinn fjórða sigur í röð í spænsku
úrvalsdeildinni í körfubolta í gær
þegar þeir skelltu Joventut 77-57 og
komust upp í fimmta sæti deildar-
innar. Jón Arnór skoraði átta stig á
21 mínútu í leiknum en hann hitti
úr tveimur af fjórum þriggja stiga
skotum sínum.
CAI Zaragoza hefur unnið þessa fjóra
leiki með samtals 84 stigum eða 21
að meðaltali og það er því ljóst að
Jón Arnór og félagar geta gert góða
hluti í vetur.
ÚRSLIT
LENGJUBIKAR KARLA ÚRSLITALEIKUR
SNÆFELL 81 (45)
TINDASTÓLL 96 (44)
Snæfell: Jay Threatt 22/8 fráköst/8 stoðsendingar,
Asim McQueen 17/14 fráköst, Jón Ólafur Jónsson
12/12 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9, Sveinn
Arnar Davíðsson 8, Hafþór Ingi Gunnarsson 7,
Ólafur Torfason 5, Sigurður Þorvaldsson 1.
Tindastóll: Þröstur Leó Jóhannsson 27, George
Valentine 26/14 fráköst/6 stoðsendingar, Helgi
Rafn Viggósson 16, Drew Gibson 16/5 frák./8
stoðs., Svavar Birgisson 6, Helgi Freyr Margeirsson
3, Ingvi Rafn Ingvarsson 2.
N1 deild karla
HAUKAR 27 (19)
ÍR 26 (13)
Mörk Hauka (skot): Stefán Rafn Sigurmannsson
9/3 (10/3), Gísli Kristjánsson 3 (3), Jón Þorbjörn
Jóhannsson 3 (3), Tjörvi Þorgeirsson 3 (7), Árni
Steinn Steinþórsson 3 (8), Gylfi Gylfason 2 (2),
Elías Már Halldórsson 2 (3), Gísli Jón Þórisson
1 (2), Sveinn Þorgeirsson 1 (3), Adam Haukur
Baumruk (1),
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 18/1 (43/5,
42%), Einar Ólafur Vilmundarson (1/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 6 (Árni 2, Stefán Rafn, Gísli,
Tjörvi, Gylfi)
Mörk ÍR (skot): Sturla Ásgeirsson 8/5 (10/6),
Björgvin Hólmgeirsson 7 (14), Guðni Már
Kristinsson 4 (8), Davíð Georgsson 2 (2), Jón
Heiðar Gunnarsson 2 (2), Ólafur Sigurgeirsson 1
(1), Ingimundur Ingimundarson 1 (4), Sigurjón
Friðbjörn Björnsson 1 (5), Máni Gestsson (1),
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 9
(30/3, 30%), Hermann Þór Marinósson (6, 0%),
Hraðaupphlaup: 6 (Björgvin 2, Guðni Már 2,
Ólafur, Ingimundur)
Staðan í deildinni
Haukar 9 8 1 0 245-201 17
Akureyri 9 5 1 3 224-216 11
ÍR 9 4 1 4 236-236 9
FH 9 4 1 4 217-229 9
HK 9 3 2 4 219-232 8
Fram 9 3 1 5 225-232 7
Valur 9 2 2 5 214-222 6
Afturelding 9 2 1 6 220-232 5
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason, Aron
Einar Gunnarsson, Björn Bergmann
Sigurðarson og Eyjólfur Héðinsson
voru allir á skotskónum með liðum
sínum um helgina. Alfreð tryggði
Heerenveen 1-1 jafntefli á útivelli
á móti VVV Venlo en hann er
annar markahæsti maður hollensku
deildarinnar með 10 mörk.
Aron Einar skoraði í 2-1 útisigri
Cardiff á Barnsley í ensku b-deildinni
en hann hefur nú skorað 4 mörk í
síðustu 7 deildarleikjum sínum og
það þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað
þrjá þeirra.
Björn Bergmann kom Úlfunum yfir
á 5. mínútu í sömu deild en liðið
tapaði engu að síður 1-2 á heimavelli
á móti Nottingham Forest.
Eyjólfur Héðinsson kom SönderjyskE
í 1-0 á móti FC Kaupmannahöfn í
dönsku úrvalsdeildinni en það dugði
ekki til því FCK tryggði sér öll þrjú
stigin með tveimur mörkum í seinni
hálfleik. - óój
Alfreð áfram
á skotskónum
ALFREÐ FINNBOGASON 10 mörk í 12
leikjum í hollensku deildinni.
NORDICPHOTOS/GETTY