Fréttablaðið - 26.11.2012, Side 62

Fréttablaðið - 26.11.2012, Side 62
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 30 „Það er búið að grafa stríðsöxina. Það þurfti fimm ár. Ég var greinilega ekki þrjóskari en það,“ segir trommarinn Egill Örn Rafnsson. Hann er snúinn aftur í rokksveitina Sign eftir að hafa yfirgefið hana í fússi árið 2008. Brott- hvarf hans kom í kjölfar þess að hljómsveitin hafnaði fimm platna samningi við þýsku útgáf- una JKP. Ragnar Sólberg, bróðir hans, vildi ekki skrifa undir samninginn af ótta við að frelsi hans sem tónlistarmanns myndi skerðast. „Við vorum alltaf vinir en að vinna saman var ekki alveg inni í myndinni,“ segir hann um ósættið við bróður sinn. Fyrstu tónleikarnir með Agli aftur við trommusettið verða á Gamla Gauknum 26. des- ember. „Við vorum í brúðkaupi hjá Ragnari í sumar. Ég, Arnar [Grétarsson, gítarleikari] og Ragnar spiluðum í brúðkaupinu og svo verðum við allir á Íslandi um jólin þannig við ákváðum að halda tónleika.“ Egill er búsettur í London þar sem hann spilar með hljómsveitinni Fears. Hún gefur út EP- plötu eftir áramót. Ragnar býr í Noregi en hefur verið að taka upp ný lög í Þýskalandi. Stefnan er sett á að gefa út nýtt Sign-lag fyrir tónleikana hér heima og plata er einnig í undirbúningi. Egill hlakkar mikið til að tromma aftur með uppáhaldshljómsveitinni sinni. „Nú er bara að draga fram naglalakkið og augnskuggann,“ segir hann og hlær. Forsala miða á tónleikana hefst á næstunni. - fb Bræðurnir grafa stríðsöxina eft ir fi mm ár Egill Örn Rafnsson hætti í Sign í kjölfar höfnunar á plötusamningi en hefur nú snúið aft ur í rokksveitina. STRÍÐSÖXIN GRAFIN Trommarinn Egill Örn Rafnsson, lengst til vinstri, er snúinn aftur í rokksveitina Sign eftir fimm ára fjarveru. „Ég veit lítið um þetta ferli enda allt mjög dularfullt. Einhver fyrirtæki í Los Angeles hafa haft samband við mig og boðist til að taka að sér kynningu á mynd- inni fyrir það sem þeir kalla „Oscar run“,“ segir leikstjórinn Ísold Uggadóttir. Stuttmynd hennar, Útrás Reykjavík, er kominn áfram í fyrsta forvali til Óskarsverðlauna 2013 en í desember verður svo tilkynnt hvaða tíu myndir kom- ast í gegnum næstu síu. Til að komast í þetta forval til Óskarsverðlaunanna þurfa myndir að vinna til aðalverðlauna á útvöldum kvikmyndahátíðum sem Óskarsakademían hefur viðurkennt. „Í mínu tilfelli voru það aðalverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Aþenu sem skiptu sköpum og komu Útrás Reykjavík inn á þennan góða lista.“ Stuttmyndin Útrás Reykjavík hefur hlotið mikla athygli síðan hún var frumsýnd, en í síðasta mánuði hlaut hún aðalverðlaun á Seminci-hátíðinni í Valla- dolid á Spáni. Stuttmyndin, sem skartar þeim Lilju Þórisdóttur og Maríu Hebu Þorkelsdóttir í aðalhlut- verkum, etur kappi við 60 aðrar stuttmyndir sem eiga kost á að verða tilnefndar til Óskarsverðlauna. Útrás Reykjavík hefur verið á ferð og flugi um heiminn og verið sýnd á hátíðum í Telluride, New York, Tyrklandi, Lettlandi, Úkraínu, Póllandi, Kosovo, Noregi, Grikklandi og á Spáni. -áp Útrás Reykjavík áfram í fyrsta forvali til Óskarsverðlauna Mynd Ísoldar Uggadóttur freistar þess að keppa um Óskarinn 2013. DULARFULLT FERLI Það voru aðalverðlaunin á kvikmynda- hátíðinni í Aþenu sem skiluðu Útrás Reykjavík plássi í forvali til Óskarsverðlauna 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Jón [Jónsson] hafði spurt kennara í FÍH hvort þeir vissu um tromm- ara til að spila með honum og ein- hver nefndi mig. Ég fór svo í viðtal til Jóns og eftir það var ég boðaður á æfingu með hljómsveitinni,“ segir Andri Bjartur Jakobsson, trommuleikari. Hann var valinn til liðs við hljómsveit Jóns Jóns- sonar úr hópi tíu trommuleikara. Fjórir komust áfram í prufur og að lokum var Andri Bjartur fenginn til liðs við sveitina. „Ég hef aldrei farið í gegn- um svona ferli áður til að fá að tromma með hljómsveit. Þetta var mjög prófessional hjá þeim,“ segir Andri, en hann er einnig trymbill hljómsveitanna Mammút og 1860. Fréttablaðið skýrði frá því í október að tónlistarmaðurinn Jón Jónsson hefði landað plötusamn- ingi við Sony eftir að hann heill- aði útgáfustjórann og X Factor- dómarann L.A. Reid. Svo gæti farið að Andri Bjartur fylgi Jóni út til Bandaríkjanna þegar þar að kemur. „Mér skilst að það gæti farið þannig. Samningurinn var þó gerður við Jón einan, en ég veit að hann vill hafa hljómsveitina með sér og ég er partur af henni. En þetta kemur betur í ljós síðar.“ Ný hljómplata með Mammút er væntanleg í vor, en útgáfa hennar hefur gengið nokkuð brösuglega og hafa sumir gengið svo langt að segja bölvun hvíla á plötunni. „Platan átti upphaflega að koma út fyrir Iceland Airwaves en svo komu upp erfiðleik- ar í kringum upptökur og við urðum að fresta útgáfunni. Í kjöl farið ákváðum við að endurvinna plötuna alveg upp á nýtt og við reiknum með að hún komi út í mars eða apríl á næsta ári,“ segir Andri Bjartur að lokum. -sara@frettabladid.is Sérvalinn af Jóni Jónssyni eft ir prufu Trommuleikarinn Andri Bjartur Jakobsson var valinn úr tíu manna hópi til að leika með Jóni Jónssyni. Aldrei farið í viðlíka prufur hjá hljómsveit áður. BAR SIGUR ÚR BÝTUM Svo gæti farið að Andri Bjartur fylgi Jóni Jónssyni til Bandaríkjanna þar sem sá síðarnefndi er á plötusamningi hjá Sony. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Ætli það sé ekki Spáðu í mig með Megasi. Það er bara eitt- hvað við þetta lag, það kemur mér alltaf í gott skap. Meira að segja á mánudögum.“ Bjarni Haukur Þórsson leikari. MÁNUDAGSLAGIÐ Rekstrarvörur - vinna með þér Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunudaga 8.00 -16.00 ÖLL BRAUÐ Á 25% AFSLÆTTI Á MÁNUDÖGUM • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 • Fálkagötu 18 • Lönguhlíð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.