Fréttablaðið - 12.12.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.12.2012, Blaðsíða 6
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 MENNTUN Nemendur og kenn- arar í Álftanesskóla taka nú þátt í skólaþróunarverkefni þar sem notaðar eru spjaldtölvur sem eru sérhannaðar til kennslu og náms. Sveinbjörn Markús Njálsson skóla- stjóri segir tækið bjóða upp á marg- víslega möguleika. Námsgagnastofnun, Menntavís- indasvið Háskóla Íslands og A4, sem er dreifingaraðili tölvanna, standa að verkefninu, auk Álftanes- skóla. Í því felst að skólinn kaupir 30 Learnpad 2-spjaldtölvur fyrst um sinn, allt að 60 í heildina, sem notaðar verða í stærðfræðikennslu í 4. og 6. bekk. Alls fylgja 22 forrit hverri vél, sem og tólf rafbækur. Verkefnið hefst strax á nýju ári og verður tekið út af sérfræðingum Menntavísindasviðs HÍ sem munu skila lokaskýrslu um það sumarið 2014. Learnpad 2 er framleidd af breska fyrirtækinu Avantis Syst- ems og notar Android-stýrikerfi. Á tölvunni geta nemendur nýtt sér kennsluforrit, meðal annars á Flash-formi eins og notað er á síðu Námsgagnastofnunar, Skólavefn- um og Stoðkennaranum, og vafrað á öruggar síður sem kennari hefur skilgreint fyrir fram. Þá geta kenn- arar hagað efninu sem fer inn á hverja tölvu eftir þörfum viðkom- andi nemanda. Forritin sem fylgja tölvum Álfta- nesskóla fjalla meðal annars um bókstafi, byrjendastærðfræði, margföldun, brotareikning, liti og form og tónlist. Þar að auki er mögulegt að sækja enn fleiri náms- og kennsluforrit á netinu. „Þessi tækni er einmitt það sem við leituðum að,“ segir Sveinbjörn. „Í Álftanesskóla er að hefjast átak í stærðfræði og við ákváðum að nýta þessa leið sem eflandi og áhuga- hvetjandi farveg til að efla kunn- áttu og læsi nemenda í stærðfræði.“ Sveinbjörn segir vefstjórnar- gáttina vera einn stærsta kostinn við þessa tækni, en hún gerir kenn- urum kleift að stýra því efni sem er inni á vél hvers nemendahóps, eða einstaks nemanda. Ingibjörg Ásgeirsdóttir, forstjóri Námsgagnastofnunar, segir verk- efnið afar spennandi. Notkun á stafrænu námsefni á spjaldtölvum geti ýtt undir sjálfstæði nemenda og skapandi nám og kennslu. „Reynslan verður þó að leiða í ljós hvaða áhrif ný tækni hefur á skólastarf og því er afar mikilvægt að markvisst sé fylgst með tilraun- um af þessu tagi svo hægt verði að meta raunveruleg áhrif spjald- tölvunotkunar á skólastarf,“ segir hún. thorgils@frettabladid.is Við ákváðum að nýta þessa leið sem eflandi og áhugahvetjandi farveg til að efla kunnáttu og læsi nemenda í stærðfræði. Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri Spjaldtölvuvæðing hefst í Álftanesskóla Álftanesskóli hefur fest kaup á spjaldtölvum til kennslu í 4. og 6. bekk. Um er að ræða tilraunaverkefni sem er í samstarfi við Námsgagnastofnun og Menntavís- indasvið Háskóla Íslands. Hægt að stýra efni eftir þörfum hvers nemanda. Learnpad 2 hefur hlotið ýmiss konar viðurkenningar á sínu sviði. Meðal annars er tölvan til- nefnd til verðlauna á hinni árlegu Bett-tæknisýningu í Bretlandi sem er með þeim fjölsóttustu í heimi. Verðlaunatækni NÝJASTA TÆKNI Krakkarnir í Álftanesskóla taka nýrri tækni fagnandi, en tilrauna- verkefni með notkun spjaldtölva hefst á nýju ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ALÞINGI Kristján L. Möller, for- maður atvinnuveganefndar og þingmaður Samfylkingarinnar, telur að ferli rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða, hafi mistekist. Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra, sem unnu þingsályktunartillögu, hafi ekki haft það að leiðarljósi að ná sátt um málið. Það sé orðið pólitískt en ekki faglegt. Önnur umræða um rammaáætl- un hófst í gær, en þó ekki fyrr en þingmenn höfðu tekist á um það um hríð hvort leyfa ætti umræðu fram á kvöld. Sú varð niðurstaðan. Kristján sagði meðal annars að rök vantaði fyrir því að Hvamms- virkjun og Holtavirkjun í Þjórsá væru færðar úr nýtingar- í bið- flokk og hvers vegna í staðinn hefðu virkjanir á Reykjanesskaga verið settar í nýtingarflokk. „Við þessa vinnu ráðherranna tveggja, þar sem ákveðið var að horfa frá tillögu verkefnastjórn- arinnar og búa til nýja tillögu, þar sé gengið of langt í nýtingarflokki á Reykjanesskaga.“ Kristján kvartaði yfir því að ekki væri að finna fagleg rök fyrir þessari ákvörðun og hún væri því pólitísk. „Það er þess vegna, virðulegi forseti, sem ég tel að okkur sé að mistakast. Það hefur komið fram hjá nokkrum gestum, í umræðum um þetta mál, sem hafa sagt að því miður sé með þessum aðgerð- um verið að gera þetta að ramma- áætlun virðulegrar ríkisstjórnar. Og ég óttast það, virðulegi forseti, að væntanlegar ríkisstjórnir muni vitna í þetta inngrip þegar þær fara að breyta rammaáætlun.“ Umræða um málið stóð enn þegar blaðið fór í prentun. - kóp Seinni umræða um rammaáætlun hófst í gær og stóð fram á nótt á Alþingi: Telur rammaáætlun hafa mistekist Það er þess vegna, virðulegi forseti, sem ég tel að okkur sé að mistakast. Kristján Möller, formaður atvinnuveganefndar KÖNNUN Rúmlega helmingur lands- manna yfir 18 ára aldri, um 54 prósent, á snjallsíma samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Það er veru- leg aukning frá því árið 2010 þegar 43 prósent áttu slík tæki. Markaðshlutdeild Nokia á snjallsíma- markaðinum hefur hrunið á síðustu tveimur árum, samkvæmt könnuninni. Hún var gerð dagana 9. til 12. októ- ber, en niðurstöðurnar voru gerðar opinberar í gær. Árið 2010 átti rúmur helmingur snjallsímaeigenda síma frá Nokia, en í dag aðeins um 17 prósent. Að sama skapi eykst hlutdeild Sam- sungs verulega, úr 3,8 prósentum 2010 í tæplega 34 prósent nú. Um 22 prósent snjallsíma íslenskra símnotenda eru frá Apple, sem er veruleg aukning frá árinu 2010 þegar 5,6 prósent áttu síma frá fyrirtækinu. Nokia er hins vegar með algera yfir- burði meðal þeirra símnotenda sem ekki nota snjallsíma. Nærri þrír af hverjum fjórum landsmönnum sem eru með venjulega farsíma nota Nokia, og hefur hlutfallið aukist lítillega frá árinu 2010. - bj VEISTU SVARIÐ? ■ Samsung 33,5% ■ Apple 22,2%■ Nokia 17,1% ■ LG 9,0% ■ HTC 8,1% ■ Blackberry 4,6% ■ Aðrar tegundir 5,5% 1. Hversu mörg félög hafa ekki skilað inn ársreikningi vegna ársins 2011? 2. Hvað heitir bandaríska fyrirtækið sem keypti Íslenska erfðagreiningu? 3. Hversu margar mandarínur borða Íslendingar í kring um hátíðarnar? SVÖR 1. Um 5000 félög 2. Amgen 3. Um 9 milljónir Samsung-snjallsímar eru vinsælli en iPhone og Nokia samkvæmt nýrri könnun MMR: Rúmur helmingur fullorðinna á snjallsíma BRETTAPAKKAR 20% AFSLÁTTUR ÞEGAR KEYPT ERU BRETTI, BINDINGAR OG BRETTASKÓR. Á R N A S Y N IR util if. is Guðlaugur A Magnússon Skólavörðustíg 10 101 Reykjavík www.gam.is Jólaskeiðin 2012 Hvernig snjallsíma velja Íslendingar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.