Fréttablaðið - 12.12.2012, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.12.2012, Blaðsíða 16
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Síðastliðinn mánudag fjallaði Ríkissjón- varpið um skýrslu Norrænu ráðherra- nefndarinnar. Fréttin var um að verðlag hefði hækkað meira hér á landi árin 2005- 2011 en í hinum norrænu ríkjunum. Frétt- in gaf að mörgu leyti villandi mynd af inn- taki skýrslunnar þar sem ekki var fjallað um tvö lykilatriði hennar. Hið fyrra er sú staðreynd að lang- stærsti hluti hækkunarinnar varð vegna hrunsins og átti sér stað á árabilinu 2007- 2009. Þá hækkaði verð á þeirri vöru og þjónustu sem könnunin nær til um 26%. Meginskýringin er sú að á þessu tímabili hrundi gjaldmiðill okkar og allur inn- flutningur og aðföng urðu miklu dýrari. Skýrslan sýnir svart á hvítu hversu kostn- aðarsamt það er fyrir almenning í landinu að búa við krónuna eins og Samfylkingin hefur lengi bent á. Gengi gjaldmiðilsins hrundi ekki hjá hinum norrænu ríkjunum. Á valdatíma ríkisstjórnarinnar 2009 til 2011 sést að hækkunin er langtum minni eða um 9,6%. Aftur endurspegla þessar verðhækkanir að miklu leyti verðbólg- una sem krónan skapar með óstöðugleika sínum. En hið ánægjulega er að eftir að ríkisstjórn mín tók við hefur tekist að draga verulega úr verðhækkunum. Seinna atriðið sem ekki er fjallað um í fréttinni er veigameira og breytir í raun algerlega þeirri mynd sem dregin var upp. Í skýrslunni er ágætlega fjallað um það hvernig bera eigi saman verð í mis- munandi löndum. Sagt er skýrum stöfum að það eigi að bera verð saman á svoköll- uðu jafnvirðisgengi sem er iðulega gert þegar lönd eru borin saman. Þá er tekið tillit til mismunandi kaupmáttar gjald- miðilsins á hverjum stað. Í þessum samanburði er sérstaklega tekið fram í skýrslunni að Ísland sé „ódýr- ast Norðurlandanna ásamt Finnum þegar kemur að matarkörfunni“. Og sé litið til allrar vöru og þjónustu sem könnunin náði til er „Ísland ódýrast Norðurlandanna“. Á þessar staðreyndir var ekki minnst einu orði í fréttinni. Að lokum vil ég minnast á enn aðra áhugaverða staðreynd sem kemur fram í þessari ágætu skýrslu Norrænu ráðherra- nefndarinnar. Hún er sú að á Norðurlönd- unum eru skattar sem hlutfall af lands- framleiðslu lægstir á Íslandi. Ísland er ódýrast Norðurlanda FJÁRMÁL Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ➜ Aftur endurspegla þessar verðhækkanir að miklu leyti verðbólguna sem krónan skapar með óstöðugleika sínum. F lestir sérfræðingar virðast telja það blasa við að krónan muni veikjast umtalsvert við afléttingu gjaldeyrishaft- anna, sem samkvæmt lögum eiga að lyftast í lok næsta árs. Slík veiking myndi hafa áhrif á getu þeirra sem eru með tekjur í íslenskum krónum að ráða við erlendar skuldir sínar. Þar á meðal eru opinber íslensk fyrirtæki, sveitar- félög og auðvitað ríkissjóður. Verð á innfluttum vörum myndi auk þess hækka sem myndi valda aukinni verðbólgu og þar af leiðandi hækkun á öllum verðtryggðum skuldum. Ef fall krónunnar yrði mikið þá er ljóst að margar þær sértæku skuldaaðgerðir sem ráðist hefur verið í eftir bankahrunið, gagnvart ein- staklingum og fyrirtækjum, væru fyrir bí. Skuldirnar yrðu aftur orðnar það miklu hærri en eignirnar að hvati til að borga áfram af þeim myndi hverfa. Til viðbótar eru lífeyrisgreiðslur verðtryggðar með lögum og skuldbindingar vegna þeirra myndu hækka umtalsvert. Auk þess myndi byggingakostnaður hækka sem myndi hamla því að framboð íbúðarhúsnæðis héldi í við fyrirsjáanlega eftirspurn. Auðvitað eru síðan gríðarlega margir milljarðar í eigu útlend- inga og Íslendinga sem myndu láta sig hverfa út úr hagkerfinu við fyrsta mögulega tækifæri, ryksuga upp gjaldeyrisvaraforða þjóðarinnar í leiðinni og setja hana í stöðu sem léti síðustu fjögur ár líta út eins og góðæri. Höftin eru því ekki á förum um fyrirsjáanlega framtíð. Það er staðreynd sem við verðum að sætta okkur við. Jafn ljóst er að nýta þarf þann tíma sem þau hanga uppi til að taka almennilega til í efnahagsmálum þjóðarinnar. Lars Christensen, greinandi hjá Danske Bank, fjallaði um það í viðtali við Fréttablaðið í síðustu viku. Þar sagði hann að skilja þyrfti á milli peningamála og efnahagsmála. Að mati Christensens á „það ekki að vera viðfangsefni peningamála að taka á gjald- færnisvandamálum heimila, fyrirtækja eða opinberra aðila. Það á að vera viðfangsefni efnahagsmála. Það þarf að taka ákvörðun um hvort viðkomandi aðili sé lífvænlegur og hvort það eigi að leggja honum til meira fé. Það á ekki að halda honum lifandi með peningamálastefnu. Þá yrði uppi svipað ástand og var í Japan í um áratug þar sem uppvakningsbönkum var haldið á lífi í stað þess að tekið væri á undirliggjandi vandamálum þeirra. Ef heim- ilum, fyrirtækjum og opinberum aðilum er haldið lifandi með gjaldeyrishöftum þá er verið að fela vandann í stað þess að taka á honum. Það græðir enginn á því“. Þetta er hárrétt hjá Christensen. Það má ekki fela efnahagsleg vandamál með peningamálastefnu. Það verður að vinna í of mikilli skuldsetningu íslenskra fyrirtækja og of mikilli skuld- setningu sumra íslenskra heimila hið fyrsta með sértækum aðgerðum. Kalt hagsmunamat verður að fara fram um hvort það borgi sig að skrifa niður skuldir þeirra frekar eða ganga á veðin sem eru til staðar fyrir skuldunum. Samhliða verður hið opinbera að ganga frá mörgum sinna mála. Það á ekki að nota höftin til að fela þessi vandamál. Þá er alltaf hætta á því að þegar snjóhengjan er loks bráðnuð muni alls kyns heimatilbúin vandræði standa í vegi fyrir því að við getum tekið haftalaust aftur þátt í alþjóðlegum veruleika. Höft fresta því að tekið sé á vandamálum: Feluleikur Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is Velkomin í núið – frá streitu til sáttar Byggt á Mindfulness-based Cognitive Therapy sem tvinnar saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku. Námskeiðið er í 8 vikur á Hilton Reykjavík Nordica kl.17:30 til 19:00. Innifalið er geisladiskur með árvekniæfingum og handbók Skráning er hjá Nordica Spa í síma 444 5090 og á http://nordicaspa.is Verð: 49.000 kr. Meðlimir Nordica Spa fá 10% afslátt Næstu námskeið verða: 9. janúar. Leiðbeinendur verða Anna Dóra Frostadóttir og Guðbjörg Daníelsdóttir sálfræðingar. 27. febrúar. Leiðbeinendur verða Herdís Finnbogadóttir og Margrét Bárðardóttir sálfræðingar. N Á M S K E I Ð Innifalið 1 vika ók eypis aðgangur í alla opn a tíma Nord ica Spa, gufu og h eita potta Ógnarstjórn ætíð möguleiki Þær eru margar hætturnar sem ber að varast. Ekki er langt síðan yfir- maður í lögreglunni sagði að meiri líkur en minni væru á hryðjuverka- árás í líkingu árásar Breiviks hér á landi á næstu fimm árum. Nú hefur Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, bent á enn stærri ógn. Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í gær þýfgaði hún þjóðrétt- arfræðing um svar við því hvort ekki þyrfti að setja því skorður hvernig framselt vald ríkisins yrði aftur- kallað. Sá, Guðmundur Alfreðsson, hafði ekki hugsað málið til enda. „En er það ekki eðlilegt í ljósi þess að við getum alltaf reiknað með því að það komi ógnarstjórn í hverju ríki eftir kreppu …?“ spurði Vigdís. Íslendingar sluppu sem sagt með skrekkinn eftir hrun. Til bjargar bankanum Málsvörnin í Vafningsmálinu gengur, meðal annars, út á það að Glitnir hefði mögulega getað hrunið ef hann hefði ekki hjálpað Milestone út úr sínum fjárhagsvandræðum. Um tíu milljarða króna lánið hafi því verið samið, ekki síst til að bjarga bank- anum. Bjarnargreiði Nú er rétt að taka það fram að ákærandi í málinu gefur lítið fyrir þessa málsvörn, segir það getgátur einar hvað komið hefði fyrir Glitni ef Milestone hefði ekki verið bjargað. En ef hún er nú rétt, þýðir það þá ekki að bankinn hefði hrunið í febrúar 2008 en ekki í október? Hinir bankarnir hefðu væntanlega ekki staðið eftir það og bólan sprungið átta mánuðum fyrr en ella. Og allt það sem gerðist á þeim átta mánuðum hefði aldrei gerst; uppsöfnun á Icesave- reikninga, Al Thani-fléttan og fjöldi annarra mála sem nú eru hjá sérstökum saksóknara. kolbeinn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.