Fréttablaðið - 12.12.2012, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 12.12.2012, Blaðsíða 30
12. DESEMBER 2012 MIÐVIKUDAGUR2 ● vímulaus æska Kristján Guðmundsson, formaður stjórnar Vímulausrar æsku Jólin, hátíð ljóss og friðar, ganga brátt í garð og leitar þá margt á hugann. Undirbúningur jólanna, þessarar hátíðar allra barna, er orðinn umfangsmikill hjá flestum og miðar oftar en ekki að því að fjölskyldu og vinum líði sem allra best. Við leiðum líka hugann á þessum árstíma að því sem okkur er kærast. Börnin eru þar framar öllu og það eiga þau að vera á öllum tímum. Við megum aldrei slaka á þegar velferð þeirra er annars vegar. „Æskan sem erfa skal land- ið,“ er gjarnan sagt á tyllidögum. Velferð barnanna á að vera for- gangsmál okkar allra, árið um kring. Afleiðingar efnahagshruns- ins haustið 2008 eru enn að koma í ljós. Erfiðleikar, bæði fjárhags- legir og af öðrum toga, með til- heyrandi óöryggi hafa mikil áhrif á börnin. Það finnum við glöggt í okkar starfi hjá Vímulausri æsku – Foreldrahúsi. Þörfin er mikil og því miður er neyðin víða sár. Höfum í huga kærleikann og leiðum hugann að því hvernig við getum lagt lið, látið gott af okkur leiða. Það er ýmislegt sem skipt- ir máli og það þarf ekki alltaf að vera stórt. Það er til að mynda dýrmætara að gefa sér tíma til að sinna sínum nánustu, láta þá finna að okkur þyki vænt um þá, en að gefa stórar gjafir. Gjafir geta verið stórar í margvíslegum skilningi. Fjölmarg- ir hafa í gegnum árin stutt starfsemi samtakanna með einum eða öðrum hætti og erum við afskaplega þakklát fyrir þá velvild sem samtökin njóta. Þess vegna hefur samtökunum tekist að lifa og halda úti þróttmiklu starfi sínu frá upphafi eða í rúman aldarfjórðung. Mig langar, fyrir hönd Vímulausrar æsku, að þakka af hlýhug öllum þeim sem komið hafa að starfinu og stutt svo myndarlega við það. Líkt og fram kemur í blaðinu, í svörum talsmanna stjórnmála- flokka sem eiga fulltrúa á Alþingi, eru forvarnarmál og það sem að velferð barnanna okkar snýr með mikilvægari málaflokkum dags- ins. Undir það taka samtökin heilshugar. Við verðum að halda ótrauð áfram að styðja við börnin og foreldra þeirra. Slíkur stuðningur getur skipt sköpum fyrir framtíð barnanna. Höfum í huga að vímu- varnir hefjast heima. Við erum öll samábyrg þegar heill barnanna er annars vegar. Fyrir hönd Vímulausrar æsku – Foreldrahúss óska ég landsmönn- um öllum gleðiríkrar jólahátíðar og gæfu á komandi ári. Hátíð ljóss og friðar – hátíð barnanna Alltaf dýrt að spara þegar kemur að forvörnum Margrét Tryggvadóttir, þing- flokksformaður Hreyfingar- innar: 1Forvarnarstarf er mikilvæg-ast því með því getum við komið í veg fyrir vandamál. Það er alltaf betra og ódýrara að fyr- irbyggja en að takast á við vand- ann þegar hann er orðinn raun- verulegur og illviðráðanlegur. Forvarnir felast í mínum huga ekki bara í fræðslu heldur ekki síður í vönduðu æskulýðsstarfi – og ekki bara á vegum íþrótta- félaganna, því margir fleiri eru að vinna gott starf. Við þurfum líka að vera óhrædd við að rýna það starf sem unnið er og skoða hvað virkar og hvað síður. 2Ég hef áhyggjur af því nú í kreppunni að niðurskurður í fjárframlögum til forvarna, í víð- asta skilningi þess orðs, muni koma í bakið á okkur síðar meir. Sem betur fer virðist ástandið í þjóðfélaginu frá 2008 hafa þjapp- að fólki og fjölskyldum meira saman og við sjáum að ungling- arnir okkar eru flottir og enn fleiri vímu- og tóbakslausir en áður. En í þessum málum má aldrei slaka á, það er alltaf dýrt að spara þegar kemur að forvörn- um. Framlögin örugglega ekki viðunandi Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar: 1 Ég tel það starf vera mjög mikilvægt. Mér finnst líka ánægjulegt að árangur hefur náðst í þessum málum á undan- förnum árum. Unglingar stunda heilsusamlegra líferni og færri þeirra reykja og drekka en áður. Heimur fer því ekki versnandi hvað þetta varðar. En forvarnar- starf þarf ætíð að vera öflugt, því það getur alltaf komið bakslag. 2Nei, framlögin eru örugglega ekki viðunandi. Mér virðast ákaflega fá – ef nokkur – fram- lög til mikilvægra mála á Íslandi vera viðunandi. Í því felst ógnar- stórt pólitískt úrlausnarefni. Mikilvægt að ungmenni hafi val um leiðir Gunnar Bragi Sveinsson, þing- flokksformaður Framsóknar- flokksins: 1Ég tel forvarnarstarf afar mikilvægt og sem betur fer eru fjölmargir aðilar sem eru að sinna forvörnum. Hvort sem það eru opinberir aðilar eða einkaað- ilar, þá skiptir miklu að börn og ungmenni fái fræðslu um skað- semi vímuefna og hafi val um leiðir til að forðast þau eins lengi og hægt er, svo sem með þátttöku í íþróttum og tómstundum. 2Ég get ekki svarað því hvort fjármununum sé vel eða illa varið en væntanlega eru flest- ir sammála um að fjármunirnir mættu vera meiri. Jólablað Vímulausrar æsku – Foreldrahúss 1. tbl. – 26. árgangur – desember 2012 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þröstur Emilsson Umbrot og hönnun: Fréttablaðið Prentun: Ísafoldarprentsmiðja Dreifing: Pósthúsið Upplag: 90.000 Borgartúni 6 | 105 Reykjavík | s. 511 6160 | vimulaus@vimulaus.is | www.vimulaus.is Öll samskipti við krakkana í skólanum hafa stórbatnað. Hún hefur eignast nýja vini og hún er mikð sjálfsöruggari heldur en hún var í haust. Núna veit hún að hún getur valið með hverjum hún er. Hún ætlar aftur á námskeið í Foreldra- húsi eftir áramót. Vel skipu- lagt, faglegt og metnaðarfullt starf sem skilaði heilmiklum árangri með minn ungling. Við erum hæstánægðar mæðgurnar. Foreldrahús er stórkostlegur staður. Dóttir mín hefur sótt þrjú námskeið þar og árangurinn er ótrúlegur. Hún hlakkar til í hverri viku að mæta og hitta stelpurnar. Þessi námskeið hafa kennt henni svo ótrúlega margt og fengið hana til að opna sig og vera meðvituð um sjálfa sig. Starfsfólkið er líka svo yndislegt og tekur öllum opnum örmum. Hún getur ekki beðið eftir næsta námskeiði. 1. Hversu mikilvægt telur þú forvarnar- starf í þágu barna og ungmenna vera? 2. Telur þú að framlög til málaflokksins séu viðunandi og er þeim fjármunum sem fara til málaflokksins rétt varið? UMSAGNIR ● MÆÐUR UNGLINGSSTÚLKNA SEM SÓTTU SJÁLFSSTYRKINGARNÁMSKEIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.