Fréttablaðið - 12.12.2012, Page 10
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
Álagið á hálendisvakt Landsbjargar var mun meira í sumar en í fyrra. Suma daga skiptu útköll tugum. Slysahætta hefur aukist með stórauknum
fjölda ferðamanna. Sjálfboðaliðar
sinna sífellt fleiri verkefnum sem
eru í verkahring lögreglu, án þess
að hafa til þess heimild.
Að vera til staðar
Hálendisvakt björgunarsveitanna
var starfrækt í sjöunda sinn í
sumar. Jónas Guðmundsson, verk-
efnastjóri forvarna ferðamanna
hjá Landsbjörg, segir hugsunina
að baki vaktinni vera að björgunar-
lið sé til staðar þegar mestar líkur
eru á að fólk lendi í vanda á hálend-
inu, en að öðrum kosti er langt að
sækja aðstoð. Þörfin fyrir hálend-
isgæsluna hefur aukist mjög á síð-
ustu árum.
Tæplega 200 manns á vakt
Í nýlegri skýrslu Landsbjargar
kemur fram að sjálfboðaliðar sem
stóðu hálendisvaktina á tveggja
mánaða tímabili í sumar voru 191
talsins frá 28 björgunarsveitum.
Hóparnir staðsettu sig á fjórum
svæðum: norðan Vatnajökuls, á
Sprengisandi, á Kili og tveir hópar
að Fjallabaki. Fjöldi atvika jókst
mikið á milli ára, úr 1.204 í 1.917,
sem er 59% aukning.
Gróft má skilgreina verkefnin
í tvennt; almenna aðstoð, svo sem
leiðbeiningar til ferðamanna varð-
andi leiðaval og útbúnað svo og
minniháttar bilanir og slíkt. Hins
vegar eru það útköll þar sem alla
jafna hefði þurft aðstoð björgunar-
sveita úr byggð. Almennar aðstoð-
arbeiðnir voru 1.495 sem er aukn-
ing um 56% frá því í fyrra. Útköllin
voru 524 í sumar, samanborið við
244 sumarið 2011, sem er 115%
aukning. Stundum skiptu útköllin
tugum sama daginn.
Kláruðu ekki máltíð í viku
Útköll vegna slysa og veikinda voru
um hundrað eða 20% af heildar-
fjölda, sem er mikil aukning frá
fyrri árum. Flest voru þau vegna
göngufólks en einnig ferðamanna
á jeppum og minni bílum. Í fyrsta
sinn þurfti að aðstoða ferðamenn á
langferðabifreiðum.
Jónas segir að hálendisvakt-
in hafi tekist vel þegar á heild-
ina er litið, þrátt fyrir mikið ann-
ríki. „Verkefnin komu upp á öllum
tímum sólarhrings og til dæmis
náði hópur sem stóð vaktina að
Fjallabaki ekki að klára máltíð í
heila viku vegna anna.“ Hann segir
að með stuðningi góðra manna hafi
hálendisvaktin verið efld undanfar-
in ár með betri búnaði, húsakosti og
fjarskiptatækjum. „Afar brýnt er
þó að sækja aukið fjármagn í þetta
verkefni til að hægt sé að mæta
fleiri óhöppum og slysum, sem
fylgja fjölgun ferðamanna.“
Taka að sér störf lögreglu
Umhugsunarverð staða er komin
upp í björgunarmálum hér á landi
og öryggi landsmanna hefur færst
æ meira í hendur sjálfboðaliða.
Hörður Már Harðarson, formað-
ur Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, segir að björgunarsveit-
ir hafi á vissan hátt tekið að sér
störf lögreglu á landsbyggðinni og
þá aðallega í tengslum við lokanir
á vegum vegna ófærðar. Má þar
nefna Reykjanesbraut, Hellisheiði,
Fagradal, Höfðaháls og Holtavörðu-
heiði. Með fjölgun ferðamanna um
landið og átakinu Ísland allt árið
hafi verkefnum fjölgað. Margir
ferðamanna festi bílaleigubílana
á fáförnum vegum og oft sé langt
í aðstoð. Sérstaklega í byrjun árs.
„Stórkostleg upplifun á náttúru
Íslands getur breyst í martröð á
skammri stundu ef ekki er farið
með gát. Það á að vera sameigin-
legt verkefni samfélagsins að vinna
að lausnum til þess að geta tekið á
móti fleiri ferðamönnum,“ segir
Hörður sem segist óviss um stöðu
mála í dag án hálendisvaktarinnar.
Það stefnir í vandræði
Jónas segir að stefnt geti í vand-
ræði. „Stanslaust hefur verið skorið
niður hjá opinberum viðbragðsað-
ilum og þeirri löggæslu sem slysa-
varna- og björgunarsveitir telja sig
styðja við,“ segir Jónas og bætir við
að uppbygging ferðamannastaða
fylgi ekki fjölgun ferðamanna sem
auki líkur á slysum. Að hans mati
ofmetur fólk gjarnan eigin getu
eða vanmetur aðstæður. „Fræðslu
til ferðamanna þarf að efla og allir
sem koma að greininni þurfa að
vinna saman að því markmiði að
ná til sem flestra ferðamanna. Það
að upplýsa um aðstæður og rétta
ferðahegðun á að vera jafn sjálf-
sagt og að upplýsa um áhugaverða
staði. Hvar annars staðar í heim-
inum mætti labba á jökul án þess
að vera með plan og leiðsögn en á
Íslandi?“ spyr Jónas.
Vegaeftirlitið lagt niður
„Þessi staða, að björgunarmál og
öryggi landsmanna hafi færst æ
meira frá lögreglu til sjálfboða-
liða, á sér langa sögu,“ segir Snorri
Magnússon, formaður Landssam-
bands lögreglumanna. Á árunum
1979 til 1991 voru fjórar vega-
eftirlitsbifreiðar starfræktar hjá
lögreglunni í Reykjavík, tvær í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins
og tvær á landsbyggðinni. Á árun-
um 1992-1995 voru þær tvær og að
mestu notaðar í nágrenni Reykja-
víkur. Eftir 1995 var vegaeftir-
litið sem slíkt lagt niður. Það var
vegna samdráttar í fjárveiting-
um til lögreglunnar í Reykjavík, á
tímum aukinna verkefna, og emb-
ættin úti á landi voru á þeim tíma
betur í stakk búin en áður til að
sinna löggæslu á þjóðvegum sinna
umdæma.
„Síðan vegaeftirlitið var lagt
niður hafa einhver embætti reynt
af veikum mætti að halda úti eftir-
liti, til dæmis á hálendinu, en átt
erfitt um vik vegna mannfæðar.
Löggæsla er því mestmegnis ekki
til staðar víða á vinsælum ferða-
mannastöðum og björgunarsveit-
ir hafa verið fengnar til að aðstoða
lögreglu án þess í raun að hafa
löggæsluheimild til þess,“ segir
Snorri og nefnir til dæmis stærri
útihátíðir, lokun vega vegna eld-
gosa og óveðurs. „Þetta eru klár-
lega verkefni lögreglunnar.“
Rýrir trúverðugleika björgunarsveita
Snorri nefnir að hjá Landssam-
bandi lögreglumanna hafi í ára-
raðir verið bent á að fækkun
stöðugilda innan lögreglunnar
muni koma niður á löggæslunni,
öryggi lögreglumanna og ekki
síður öryggi borgaranna. Einnig
komi þetta niður á öryggi björg-
unarsveitafólks og rýri traust
almennings til þess ef það er nýtt
í verkefni sem klárlega er á hendi
lögreglu að sinna. „Björgunarsveit-
ir eiga að fá að sinna sínum verk-
efnum, að bjarga fólki, bundnar
trúnaði gagnvart sínum skjólstæð-
ingi eins og til dæmis sjúkraflutn-
ingamenn,“ segir Snorri.
Fækkun innan lögreglunnar
hefur kallað á að leitað er í auknum
mæli til björgunarsveitanna, segir
Snorri. „Í nágrannaríkjum okkar
er það á vegum hernaðaryfirvalda
auk þjóðvarðliða að aðstoða lög-
reglu við stórviðburði, almannavá
og fleira í þeim dúr.“
Jepplingar
29%
Fólksbílar
Hestafólk
1%
Vélhjól 3%
Reiðhjól 3%
Annað 5%
Jep
pa
r
18%
29
%
8%
G
ön
gu
fó
lk
4%
Rútur
Öryggi í höndum sjálfboðaliða
Álagið á 200 manna hálendisvakt Landsbjargar eykst stöðugt. Fjöldi útkalla hefur aukist um tugi prósenta. Sjálfboðaliðar
sinna verkefnum sem ættu að vera í verkahring lögreglu, fullyrðir fagfólk og formaður Landssambands lögreglumanna.
Í KAFI Útköll vegna slysa og veikinda voru um hundrað, sem er mikil aukning frá fyrri árum. MYND/LANDSBJÖRG
KOMIN NIÐUR Á LÆGSTU MÖRK Í NIÐURSKURÐI TIL LÖGREGLU
Greinin er hluti af samstarfsverkefni Fréttablaðsins og nemenda
í meistaranámi í blaða- og fréttamennsku við félags- og mann-
vísindadeild Háskóla Íslands.
Umsjón: Svavar Hávarðsson, svavar@frettabladid.is
Höfundur: Olga Björt Þórðardóttir, olgabjort@olgabjort.com
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðherra, segist gera greinarmun á því hvort björgunar-
sveitir séu kallaðar til vegna óskipulagðs vandræða-
ástands, sem lögreglan ætti að sinna, eða skipulagðs
starfs eins og hálendisvaktarinnar. En lögreglan hafi
vissulega þurft að skera niður, sé fáliðuð og umdæmi
víða stór.
„Við erum að horfast í augu við það að vera komin
niður í lægstu mörk í þessu eins og fleiru,“ segir Stein-
grímur og bætir við að stefnan sé að leggja meira til
þessara verkefna á komandi árum. Enginn vilji sé í sjálfu
sér til að björgunarsveitirnar sinni hálfgerðum löggæslu-
störfum því þær hafi ekki heimild til þess. Sveitirnar
skipti hins vegar miklu máli og þjóðin hafi verið ærlega
minnt á það undanfarin ár.
„Við erum einnig að vona núna að hægt sé að klára
málin þannig að niðurskurði sé lokið hjá lögreglunni til
þess að hún geti haldið óbreyttum umsvifum á næsta
ári. Það er nú aðeins í áttina því botninum hefur verið
náð og hægt er að spyrna í hann,“ segir Steingrímur.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Miele ryksugur
ASKÝRING | 10
ALMENN AÐSTOÐ OG ÚTKÖLL 2012; 1.917 ATVIK ALLS