Fréttablaðið - 12.12.2012, Page 12

Fréttablaðið - 12.12.2012, Page 12
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 wowtravel.is Verð á mann í tvíbýli, frá: 42.900 kr. Innifalið er flug fram og til baka með sköttum og gjöldum. 2 eða 3 nætur á Wake up Copenhagen. Bókaðu á wowtravel.is eða í síma 590 3000. Helgarferðir til kóngsins Köben allar helgar í janúar og febrúar LOFORÐ WOW LÆGSTA VERÐIÐNÝJAR VÉLAROG BREIÐASTA BROSIÐ pakkanum? Verður Köben í DÓMSMÁL Áfengis- og tóbaksversl- un ríkisins (ÁTVR) er óheimilt að neita að selja vörur á þeim forsend- um að umbúðir þeirra séu gildis- hlaðnar, ómálefnalegar eða brjóti í bága við almennt velsæmi. Þetta er mat EFTA-dómstólsins sem gaf í gær út ráðgefandi álit vegna dóms- máls sem heildsali höfðaði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Forsaga málsins er sú að á árinu 2010 falaðist heildverslunin HOB- vín eftir því að ÁTVR hefði sölu á þremur tegundum áfengisins Tempt Cider frá danska framleið- andanum Royal Unibrew. ÁTVR hafnaði hins vegar að taka vör- urnar til sölu þar sem framsetning þeirra þótti kynferðisleg. Í álitsgerð sem Skúli Bjarna- son hæstaréttarlögmaður vann fyrir ÁTVR um málið segir þannig meðal annars að í myndskreyting- um varanna sé að finna tilvísanir sem lýsa megi sem „léttúðugum eða nautna- legum“. HOB-vín kærði ákvörðunina og óskaði Héraðsdómur Reykjavíkur því eftir ráð- gefandi áliti frá EFTA-dómstólnum sem nú liggur fyrir. Taldi dómstóllinn að ÁTVR væri óheimilt að hafna sölu á vörum á grundvelli umbúða þar sem það bryti í bága við tilskipanir Evrópusambandsins. „Við fögnum þessum dómi sem þó er auð- vitað bara ráðgefandi og það þarf því að klára málið,“ segir Sigurður Bern- höft, framkvæmdastjóri HOB- vína, og bætir við: „En það sem við sjáum út úr dóminum heitir í einu orði sagt vald- níðsla þó það sé ekki sagt berum orðum.“ Þá segir Sigurður að fari Héraðsdómur Reykjavíkur að ráðum EFTA-dómstólsins muni HOB-vín í kjölfarið óska eftir því að umdeildu vörurnar verði settar í sölu hjá ÁTVR. ÁTVR hefur á síðustu árum ítrekað neitað að selja vörur á þeim forsendum að merkingar varanna hafi verið vafasam- ar. Hafa þær ákvarðan- ir byggt á grein í lögum um verslun með áfengi og tóbak þar sem segir að ÁTVR sé heimilt að hafna vörum sem innihalda gildishlaðnar eða ómálefnalegar upplýsingar, gefa til kynna að áfengi auki getu, eða brjóta á annan hátt í bága við almennt velsæmi. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarfor- stjóri ÁTVR, segir að í kjölfar dómsins verði breytingar gerðar á verklagi. „Við þurfum að skoða hvað þessi dómur felur í sér og í kjölfarið vinnum við það með ráðuneytinu með hvaða hætti verður brugðist við og gerum þær breytingar sem þörf verð- ur á,“ segir Sigrún. magnusl@frettabladid.is Mátti ekki neita sölu á kynferðislegu víni EFTA-dómstóllinn telur ÁTVR óheimilt að neita að selja áfenga drykki á þeim for- sendum að umbúðir þeirra brjóti í bága við almennt velsæmi. SIGRÚN ÓSK SIGURÐAR DÓTTIR SIGURÐUR BERNHÖFT ➜ Í febrúar árið 2010 neitaði ÁTVR að selja páskabjór brugghúss- ins Ölvisholts sem bar nafnið Heilagur papi á þeim forsendum að trúarlega vísanir á umbúðum bjórsins væru til þess fallnar að brjóta í bága við almennt vel- sæmi. Málið var kært til umboðs- manns Alþingis sem taldi ÁTVR ekki hafa verið heimilt að neita að selja Heilagan papa. ➜ Í febrúar á þessu ári neitaði ÁTVR að taka til sölu rauðvín merkt ensku rokkhljómsveitinni Motörhead með þeim rökum að nafnið væri vísun í amfetamín- neyslu og að sveitin syngi um stríð, óábyrgt kynlíf og fíkniefni. ➜ Í sama mánuði neitaði ÁTVR að taka bjórinn Svarta dauða í sölu en fundið var að orðunum „Drekkið í friði“ sem mátti finna á flöskunni. Stuttu síðar sneri ÁTVR þeirri ákvörðun þó við. ➜ Þá neitaði ÁTVR einnig að taka til sölu bjórinn Páskagull sem Ölgerðin setti á markað fyrir páskana í vor. Litur og mynd- skreytingar umbúða bjórsins þóttu höfða sérstaklega til barna. ÁTVR hefur ítrekað neitað að selja vörur EFNAHAGSMÁL Þak á verðbætur verðtryggðra lána gæti verið raunhæfur valkostur til þess að minnka þann þjóðhagslega óstöð- ugleika sem verðbólguskellur getur valdið með því að búa til skuldavanda hjá heimilum lands- ins. Þetta er niðurstaða úttektar sem dr. Ásgeir Jónsson, lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands, vann fyrir ráðherrahóp um skulda- og greiðsluvanda heimil- anna. Með því að setja þak á verðbæt- ur er skuldara veitt trygging fyrir því að höfuðstóll láns viðkom- andi hækki ekki umfram ákveðin mörk. Umframverðbólga færist þá heldur á reikning lánveitanda. Ætti slík trygging að vera sérstak- lega gagnleg fyrir þá sem standa veikastir gagnvart verðbólguskot- um, til að mynda þeim sem eru að kaupa íbúð í fyrsta sinn. Lántakandi þyrfti hins vegar að greiða fyrir trygginguna og mætti samkvæmt skýrslunni gera ráð fyrir um 1,5 prósentustiga vaxta- álagi sé miðað við 40 ára lán með 4% verðbótaþaki og núverandi verðbólguvæntingar á markaði. Í skýrslunni segir að færa megi rök fyrir því að slík lán séu hag- stæðari bæði fyrir lántakendur og lánveitendur þar sem minni þörf er á eigin fé við lántöku og minni líkur á vanskilum. Þess vegna geti slíkt lán allt eins notið betri vaxta- kjara en almenn verðtryggð lán. Guðbjartur Hannesson velferð- arráðherra segir að ekki hafi enn verið tekin afstaða til þess sem fram kemur í úttektinni en að það verði gert. - mþl Úttekt þar sem fjallað er um kosti og galla þaks á verðbætur verðtryggðra lána: Verðbótaþak raunhæfur kostur ÚTTEKTIN KYNNT Ásgeir Jónsson (til hægri), lektor í hagfræði, vann úttektina fyrir velferðarráðuneytið þar sem Guð- bjartur Hannesson ræður ríkjum. RÚMENÍA, AP Ríkisstjórnarflokk- arnir í Rúmeníu unnu örugg- an sigur í þingkosningum um helgina. Vart er þó að búast við því að erjum tveggja helstu stjórnmálaleiðtoga landsins linni. Bandalag vinstri- og miðju- flokkanna, með Victor Ponta forsætisráðherra í fararbroddi, hlaut nærri sextíu prósent atkvæða, en hægri flokkarnir, sem fylgja Traian Basescu for- seta að málum, fengu innan við sautján prósent. - gb Nýtt þing kosið í Rúmeníu: Victor Ponta vann stórsigur LJÓSADÝRÐ Ljósasýning sýndi úrslitin utan á höllinni sem Ceausescu lét reisa. N O RD IC PH O TO S/ AF P

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.