Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.12.2012, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 12.12.2012, Qupperneq 22
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 22 Desembermánuði fylgja margar freistingar. Við erum misviðkvæm fyrir freistingum og utan- aðkomandi áreiti, en hefðir og matarmenn- ing kalla þó líklega fram löngun í ákveðinn mat hjá flestum. Aðventan einkennist hjá mörgum af minni tíma til að sinna daglegri hreyfingu, boð og samkomur ýta undir að meira sé borðað en ella og maturinn er annar en venjulega. Ofan á allt er svo setið lengur við matarborðið, margir borða af hlaðborðum og hefðin gerir ráð fyrir að mikið sé borðað og skammtar stórir. Það þarf svo sem ekki að hafa af því áhyggjur þótt við bregðum út af vananum og belgjum okkur út af þungum mat í örfáa daga á ári, en það er staðreynd að hjá flestum er meira og minna allur desembermánuður og jafnvel síðasta vika nóvembermánaðar undirlögð af veislumat. Í stórri rannsókn þar sem fylgst var með rúmlega 220.000 einstaklingum á tólf ára tímabili kom í ljós að dauðsföll af völdum hjartaáfalls voru mun fleiri í desember og janúar en aðra mánuði ársins. Hugsanlegar ástæður voru meðal annars taldar árstímabundin streita og ofát yfir hátíðarnar. Vikur sem vega þungt Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á þyngdaraukningu síð- ustu sex vikur ársins benda til að flest fólk bæti ekki á sig mikilli líkams þyngd á þessum tíma, þótt tilfinningin sé oft sú að kílóunum hafi fjölgað þar sem mata ræðið og lífsstíllinn er frábrugðinn öðrum mánuðum ársins. Nokkrar rannsóknir benda þó til að jafn- vel þótt um litla þyngdaraukn- ingu sé að ræða þá vegi þessar sex vikur nokkuð þungt miðað við restina af árinu og eigi sinn þátt í því að fólk þyngist smám saman á lífsleiðinni. Hins vegar eru það frekar þeir sem eru vel yfir kjörþyngd eða hafa verið að reyna að grennast sem bæta við þyngd sína á þessum árs- tíma og eiga erfiðara með að ná aftur fyrri þyngd eftir jólahaldið. Þetta á við bæði um börn og full- orðna. Vísbendingar hafa jafnframt komið fram um að jafnvel án mikillar þyngdaraukningar virðist kviðfita, sem tengd hefur verið við ýmsa lífsstíls- sjúkdóma, eiga greiðari leið í þeirri ofgnótt hita- eininga sem borðaðar eru á sama tíma og hreyfing vill gjarnan vera minni en ella og streita er mikil. Önnur frí svo sem sumarfríið geta haft sambæri- leg áhrif, en þar vegur væntan- lega hvað þyngst að við dettum út úr hefðbundnu dagsskipulagi og losna vill um daglegar venjur og reglur. Mikilvægt er að hafa þetta í huga og styðja við góða heilsu- hegðun alla mánuði ársins. Fjölskylduboð og félagsskapur Rannsóknir sýna að fjölskyldu- boð og félagsskapur auka líkurnar á að daglegar venjur fari úr skorðum, ekki síst hjá þeim sem eiga við offitu að stríða. Með því að halda skrá eða fylgjast meðvitað með mataræði og hreyfingu þessar vikur aukast líkur á að fyrri árangri sé haldið. Matvæli tengd jólahaldinu inni- halda oft á tíðum meira af hita- einingum miðað við þyngd, og eru því orkuþéttari en hvers- dagsmatur hinna mánaðanna. Sum matvara er nánast bundin við jólin eingöngu og lítið borðuð aðra daga ársins, svo sem laufa- brauð, hangikjöt og fleira, en annar matur er á borðum stóran hluta ársins og jafnvel bara hengt forskeytið „jóla-“ framan við til að koma matnum í réttan bún- ing. Þannig fáum við t.d. jólabjór, jólajógúrt, jólasíld og jólaepli. Í umræðu um hollustu og holdafar er mikilvægt að hafa í huga að það snýst ekki eingöngu um fæðuvalið heldur skiptir magnið líka máli. Þótt vissulega geti það verið kostur að breyta uppskriftum og skipta þeim óhollari út fyrir hollustunammi og heilsusmákökur, þá eru flestar smákökur mjög orkuríkar og því skiptir mestu máli að hafa þær litlar og borða fáar. Ef hollustu- uppskriftirnar verða hrein við- bót í staðinn fyrir að koma í stað annarra er hætt við að ávinning- urinn sé lítill. Þar sem að jólin eru svo bundin við hefðir og minningar er kannski bara betra að baka færri sortir í smærra upplagi og njóta uppáhaldssort- anna í smáum skömmtum. Hollustan veltur ekki á ein- staka fæðutegund heldur á heild- inni, bæði samsetningunni og magninu. Hugað að heilsunni með jólamatnum ● Ekki sleppa morgunmatnum ● Gera ráð fyrir grænmeti með jólamatnum ● Ávexti í eftirrétt og millibita ● Léttari mat dagana á milli veisluhalda ● Huga að matreiðsluaðferðum ● Glöggin getur líka verið óáfeng ● Velja aðeins það besta – sleppa því hversdagslega ● Vatn í glasið í stað orkumeiri drykkja – að minnsta kosti í annað hvert skipti ● Borða hægt og njóta matarins ● Bjóða gestum í göngu fyrir matinn ● … og dansa í kringum jólatréð! Skrifað í tilefni 10 ára afmælis FFO – Félags fagfólks um offitu, 12.d esember 2012. Jóla-jóla – Jólamatur, jólastress og jólakíló Svo að vel takist til við varðveislu húsa, húsaraða og hverfa er mikilvægt að gömul hús fái að gegna hagnýtu hlutverki. Þegar vel tekst til er gamalt og jafnvel friðað hús eftir- sóknarverð eign sem eig- andinn leggur metnað sinn í að halda við og fegra að eigin frumkvæði. Reynslan sýnir að gömlum húsum og hverfum er af einhverjum ástæðum betur gefið að stuðla að lifandi mannlífi og menningu en afrakstri úthugsaðs skipulags og þarf ekki að leita langt í borgum og bæjum landsins því til sönnunar. Á forsendum hússins sjálfs Skilyrði þess að gömul hús geti áfram gegnt hagnýtu hlutverki er að breytingar og viðhald fari fram á forsendum hússins sjálfs. Mörg eldri húsa eru t.d. upphaflega íbúðar hús og geta gegnt því hlut- verki með ágætum oftar en ekki ef leyfðar eru ákveðnar breyt- ingar eða viðbyggingar. Þá geta mörg eldri hús, þ.á.m. íbúðarhús, vöruskemmur og sjóbúðir, verið eftirsótt til annarra nota en þau voru upphaflega gerð fyrir, t.d. verslunar eða veitingastaða. Við breytingar sem þessar verð- ur að líta til fleiri atriða svo sem byggingartíma, byggingarsögu og skipulags hússins svo og þess hvort breytingar eru afturkræfar. Sé hins vegar miðað við ítrustu kröfur sem gerðar eru til nútíma- bygginga þýðir það að jafn- aði að breytingar eru annað hvort ómögulegar eða þær þýða eyðileggingu á þeim verðmætum sem felast í gömlu húsi. Eðlilega stenst hús sem reist er skv. bygg- ingarreglugerð frá 1903 ekki kröfur skv. nútíma byggingarreglugerð í ýmsu tilliti. Það á hins vegar ekki að leiða til þess að hvers kyns breytingar á hús- inu séu gerðar tæknilega óframkvæmanlegar. Mikilvæg byggingararfleifð Í nýrri byggingarreglugerð, sem taka mun gildi af fullum krafti 1. janúar 2013, hefur lítill gaumur verið gefinn að framangreindum atriðum. Það er eins og gleymst hafi að við eigum mikilvæga byggingararfleifð sem verður aðeins viðhaldið á sjálfbærum forsendum. Þetta er stórt skref aftur á við frá fyrri byggingar- reglugerð sem í grein 12.8. kvað á um að við umfjöllun byggingar- leyfisumsókna um breytingar á byggingum sem byggðar væru fyrir gildistöku reglu gerðarinnar „skyldi taka mið af þeim reglu- gerðarákvæðum sem í gildi voru þegar þær voru byggðar eftir því sem hægt væri að teknu tilliti til gildandi krafna um öryggis- og heilbrigðismál.“ Á þessum grund- velli var t.d. hægt í hverju tilviki fyrir sig að huga að breytingum samfara endurbótum eða breyttri notkun og þannig m.a. efla bruna- varnir, bæta aðgengi hreyfihaml- aðra og sjónskertra án verulegra raskana á húsi. Í grein 137.6 í fyrri reglugerð var fjallað um að gerðar væru við- eigandi ráðstafanir til að vernda menningarverðmæti gegn bruna. Ekkert slíkt virðist að finna í hinni nýju reglugerð, jafnvel þótt aug- ljóslega sé brýnt að efla bruna- varnir í gömlum timburhúsum sem hafa sérstakt varðveislugildi, eink- um með vatnsúðakerfum þannig að þau verði síður eldi að bráð. Hin nýja byggingarreglugerð virðist gera fortakslausa kröfu um að breytingar á gömlum húsum séu í samræmi við kröfur til nýbygg- inga. Með þessu er í raun vegið að mikilvægri forsendu varðveislu og viðhalds gamalla húsa og borgar- hluta svo ekki sé minnst á það óhagræði og kostnaðarauka sem eigendur gamalla húsa verða fyrir. Nú mun vera unnið að endur- skoðun reglugerðarinnar á vegum umhverfisráðherra, þ.m.t. þessum atriðum, og brýnt er að þeirri vinnu ljúki sem fyrst og óvissu þar með eytt. Ný byggingarreglugerð – húsvernd MATARÆÐI dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur og dósent við HÍ ➜ Hin nýja byggingar- reglugerð virðist gera fortakslausa kröfu um að breytingar á gömlum húsum séu í samræmi við kröfur til nýbygginga. BYGGINGAR- REGLUGERÐ Magnús Skúlason arkitekt og fv. forstöðumaður Húsafriðunar- nefndar ríkisins ➜ Matvæli tengd jóla- haldinu innihalda oft á tíðum meira af hitaein- ingum miðað við þyngd, og eru því orkuþéttari en hversdagsmatur hinna mánaðanna. Árið 1989 reyktu 32% Íslendinga og 366 dauðs- föll á ári mátti rekja beint til reykinga. Árið 2011 var hlutfallið komið niður í 14,5% og dauðsföll á ári 263. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér, farið var í markvissar aðgerðir og átak gert í forvarnarstarfi af því að við vildum ekki vera reykingaþjóð. Enginn stóð upp og sagði: „Við erum reykingaþjóð“ eða „Þjóðin hefur valið sígar- ettuna!“ Flestir sáu það að reykingar voru orðnar gríðarlegt heilsufarsvandamál og að óbreytt ástand væri ekki í boði. Á Íslandi þjást 19% karla og 23% kvenna af offitu. Þessi árangur skilar okkur 6. sæti á heimslist- anum yfir feitustu þjóðirnar. Árið 1990 voru þessar tölur töluvert aðrar, en þá var þessi hópur 7% karla og 9% kvenna. Íslendingar hreyfa sig auk þess alltof lítið og auka þannig enn á hættu á sjúk- dómum tengdum ofeldi og hreyf- ingarleysi. Árið 1990 var einkabílaeign landsmanna 470 bílar á hverja 1.000 íbúa, fólk gekk og notaði almenningssamgöngur meira. Árið 2011 var einkabílaeignin komin í 650 bíla á hverja 1.000 íbúa og 72% allra ferða í borginni voru farnar á einkabíl. Vitundarvakning Ákveðin vitundarvakning hefur orðið upp á síðkastið á mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi. Hreyf- ingarleysi veldur nú eins mörgum dauðsföllum í heiminum og reyk- ingar. Talið er að 5,3 milljónir láti lífið árlega í heiminum af völdum hreyfingarleysis og hreyfingar- leysi er flokkað sem faraldur. Það þarf ekki mikið til að koma í veg fyrir ótímabær dauðs- föll af völdum hreyfingar- leysis. Talið er að þrjá- tíu mínútur af göngu á dag nægi til að sporna við alvarlegustu afleið- ingunum. Þessar þrjátíu mínútur mega skiptast upp í tvo til þrjá styttri göngutúra. Það er ekki eðlilegt að við segjum stolt „Við erum bílaþjóð“ vitandi það hversu slæm áhrif þessi óhóflega bílnotkun er að hafa á okkar heilsu. Við eigum ekki að vera stolt af því að vera feit og óheilbrigð, við eigum ekki að vera stolt af þeim ótímabæru dauðs- föllum sem verða á hverju ári. Meirihlutinn í Reykjavík hefur verið sakaður um að vera í aðför að einkabílnum. Valdar götur í mið- borginni hafa orðið göngugötur, fjárfest hefur verið í hjólastígum og gjaldskylda á bílastæðum hefur verið aukin. Nú tölum við fyrir breyttum ferðavenjum í tengslum við uppbyggingu nýs spítala og þar verða öll stæði gjaldskyld. Reykjavíkurborg sem stjórnvald á að þora að grípa inn í og fara í aðgerðir til þess að fólk gangi og hjóli meira. Það þarf kannski ekki að fara í aðför að einkabílnum, en það þarf að fara í aðför að þessari alltof miklu notkun. Við erum ekki bílaþjóð frekar en að við erum reykingaþjóð. Við eigum að vilja vera heilbrigð þjóð sem gefur fólki tækifæri á að lifa heilbrigðu lífi í heilbrigðu umhverfi. „Við erum reykingaþjóð“ Það er að mínu mati mjög mikið fagnaðarefni að notk- un vistvænna farartækja er sífellt að aukast. Margt er að gerast og meira að segja stígakerfið á höfuðborgar- svæðinu batnar með hverju ári. Nýjasta vistvæna farar tækið sem nýtur mik- illar vinsældar, sérlega hjá unga fólkinu, er rafmagns- vespan. Nú þegar er búið að flytja inn talsvert af þessum hljóðlátu og skemmtilegu fákum. En svo kemur babb í bátinn því ekki er búið að gera ráð fyrir hvar þessar vespur og reyndar líka rafmagnsreiðhjólin eiga að vera í umferðinni. Þetta minnir sterkt á fjórhjóla- og torfæruhjólaæðið sem gekk yfir án þess að lög og reglur náðu yfir notkun þeirra. Háværar raddir heyrast um að rafmagnsvespur og rafmagnsreið- hjól ættu einungis að nota á gang- stéttum og stígum. Þetta er auðvitað ekki mjög rökrétt. Venjuleg reiðhjól eru viðurkennd sem farartæki og má nota þau í umferðinni. Af hverju á þá að banna hin? Gangandi vegfar- endur eru ekki hressir með og eru beinlínis í hættu út af rafdrifnu hjól- unum, skriðþunginn er miklu meiri en hjá venjulegum reiðhjólum. Gestir á gangstéttunum Hjólreiðamenn eru gestir á gang- stéttunum og eiga að taka fullt tillit til gangandi vegfarenda, það er ekki spurning. En þegar ég nota hjól sem samgöngutæki þá langar mig helst að fara þægilegustu og stystu leið- ina. Þá nenni ég ekki að stoppa fyrir leikandi börnum, hundum í bandi eða gangandi fólk með tónlist í eyr- unum sem heyrir ekki í bjöllunni minni. Þá nenni ég ekki að fara óteljandi króka eða hoppa upp og niður gang- stéttabrúnir. Ég get einnig sagt það að í öllum tilfellum sem ég var virkilega í hættu sem hjólreiðamaður þá var ég hjól- andi á gangstétt þar sem bakkandi bílstjórar gerðu ekki ráð fyrir mér eða bílhurð opnaðist skyndilega beint fyrir framan nefið á mér. Hvað er til ráða? Auðvitað þarf með vaxandi vinsældum alls konar hjóla að bæta stígakerfið, breikka stígana og helst aðskilja gangandi og hjólandi vegfarendur. Að sjálf- sögðu á hjólandi fólk að hafa leyfi til að vera í umferðinni. En þeir sem hjóla í umferðinni þurfa að hafa þroska til þess. Þannig að það ætti að setja aldur stakmark, t. d. 15 ára, og ekki er spurning að það verður að krefjast lágmarksþekkingar á umferðarreglunum þegar hjólað er á umferðargötum. Og eitt í lokin: Enn þá er verið að búa til reiðhjólastíga sem eiga að vera samgöngustígar en eru hann- aðir sem útivistarstígar. Valin er fallegasta leiðin, fullt af brekkum og beygjum svo að leiðin lengist og verður erfiðari. Hvaða bílstjóri myndi velja að fara óþarfa auka- króka á sinni daglegu leið í vinnu, bara af því að þessi leið er sérlega falleg? Af hverju er þá ætlast til að hjólreiðafólk vilji þetta? Vistvænn ferðamáti: Hjól og rafmagnsvespur SAMGÖNGUR Kristín Soff ía Jónsdóttir varaformaður Umhverfi s- og samgönguráðs Reykjavíkur ➜ Reykjavíkurborg sem stjórnvald á að þora að grípa inn í og fara í aðgerðir til þess að fólk gangi og hjóli meira. SAMGÖNGUR Úrsúla Jünemann kennari og leiðsögumaður ➜ En þegar ég nota hjól sem samgöngu- tæki þá langar mig helst að fara þægi- legustu og stystu leiðina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.