Fréttablaðið - 12.12.2012, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2012 5Vímulaus æska ●
Vímulaus æska stendur fyrir 12
vikna námskeiði í sjálfseflingu
fyrir unglinga í vanda.
Meginmarkmið námskeiðs-ins er að byggja upp og efla
sjálfsþekkingu, félagsfærni, til-
finningaþroska og getu ung-
linga til að takast á við sjálfa sig
og eigið líf. Á námskeiðinu er
meðal annars unnið með orsak-
andi þætti vanlíðunar, sjálfskað-
andi hegðunar og lélegrar sjálfs-
stjórnar.
Nálgun felst í sameiginlegri
uppbyggingu trausts og öruggs
umhverfis þar sem allir fá tæki-
færi til að vinna með sjálfan sig
út frá eigin forsendum. Leið-
beinendur sameina hæfni á sviði
sköpunar og mannlegra sam-
skipta og styðja þátttakendur við
að beita innsæi, getu, úrvinnslu
og tjáningu til að ná félagslegri
og tilfinningalegri kjölfestu.
Þátttakendur fá tækifæri til
að vinna með samskipti, tilfinn-
ingar og tengsl við nánasta um-
hverfi. Boðið er upp á margar
leiðir til tjáningar og að opna
sig, til að mynda leikræna tján-
ingu, myndlist og hreyfingu. Með
því gefst tækifæri til að kynnast
eigin sjálfstæði, sköpun, þörfum,
hæfni og tengslum við sjálfan sig
og aðra.
Á námskeiðinu er lögð áhersla
á samkennd, virka hlustun, heið-
arleg samskipti og ábyrgð. Í lok
námskeiðsins hafa þátttakendur
öðlast betri sýn á vanda sinn og
lært hvernig hægt er að takast á
við hann. Út frá þeim árangri er
hægt að fara í frekari hópavinnu
sem stendur til boða að nám-
skeiði loknu.
Leiðbeinendur eru Elísabet
Lorange listmeðferðafræðingur
og Helen Breiðfjörð, félagsfræð-
ingur með MA í gæðastjórnun.
HVETJANDI EINKAVIÐTÖL
Samhliða námskeiði í sjálfsefl-
ingu fara fram vikuleg einka-
viðtöl. Þau hafa að markmiði að
veita stuðning og hvatningu við
að hætta neyslu, benda á leiðir til
árangurs og hvernig hægt er að
lifa uppbyggilegu lífi. Aðgangur
að vímuefnaráðgjafa er í síma
allan sólarhringinn.
Ráðgjafi er Guðbjörg Erlings-
dóttir, ICADC-ráðgjafi.
Námskeiðið fer fram í Foreldrahúsi, Borgar-
túni 6. Næstu námskeið eru auglýst á www.
vimulaus.is
Heiðarleg samskipti
● FORELDRAHÓPURINN
AUÐVELDAR SAMSKIPTIN
Loksins þegar ég var tilbúin og dreif mig af stað til að leita
mér stuðnings, sá ég hvað hann var mér mikilvægur. For-
eldrahópurinn hjálpar mér að standa við þær reglur sem ég
vil setja barninu mínu, og það auðveldar samskipti fjölskyldunnar.
Takk fyrir mig, þetta hefur hjálpað mér mjög mikið.
● UMSÖGN MÓÐUR
Unglinganámskeiðið fór fram úr okkar björtustu vonum.
Unglingurinn var tregur til í upphafi en strax eftir fyrsta tímann
breyttist það svo sannarlega, hann hlakkaði til að fara í hvern
einasta tíma og hefði viljað hafa námskeiðið miklu lengra. Unglingur-
inn hefur öðlast aukið sjálfsöryggi, nýtur sín betur í öllum samskiptum
og er ánægðari og glaðværari en áður. Þessi námskeið sem þarna
er boðið upp á eru því svo sannarlega að skila góðum árangri og
leiðbeinendurnir virðast ná alveg einstaklega vel til krakkanna. Við
renndum nokkuð blint í sjóinn með þetta námskeið en munum svo
sannarlega mæla með því.
● MÓÐIR DRENGS Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Mín reynsla af Vímulausri æsku
er góð. Ég var í foreldrahópi með
sálfræðingi þegar eldri sonur minn
var í neyslu og ég fæ seint fullþakkað þann
stuðning og þá aðstoð sem ég fékk. Held
bara að ég hefði aldrei komist í gegnum
hlutina nema með þeirri aðstoð. Nú er yngri
sonur minn búinn að fara á sjálfsstyrkingar-
námskeið og ætlar á annað, því það var svo
gott og svo frábært. Sú starfsemi sem fer
fram hjá Vímulausri æsku er alveg frábær
og ættu allir foreldrar sem þurfa á aðstoð
að halda vegna neyslu eða einhvers hjá
börnunum sínum, að sækja þangað aðstoð.
Svo er Foreldrasíminn hreint frábær. Það er
hvergi annars staðar hægt að fá aðstoð allan
sólarhringinn en hjá Vímulausri æsku.
V.E.R.A er úrræði Foreldrahúss
fyrir börn og unglinga með
áhættuhegðun og fjölskyldur
þeirra.
V.E.R.A. er fyrir börn og unglinga
frá tíu til sextán ára (börn í 5.-10.
bekk) með áhættuhegðun. Þetta eru
einstaklingar sem eiga við hegð-
unarerfiðleika og tilfinningalega
vanlíðan að stríða og þurfa mikinn
stuðning. V.E.R.A. er hugsað sem
langtímaúrræði og spannar minnst
tvær annir.
Meðferðin er í formi hópastarfs
sem á sér stað einu sinni í viku,
eina og hálfa klukkustund í senn,
auk vikulegra einstaklings- og fjöl-
skylduviðtala og sjálfsstyrking-
ar foreldra. Úrræðið getur staðið í
allt að ár og fer alveg eftir þörfum
hvers einstaklings. Megináhersla
úrræðisins er að vinna eftir þörf-
um einstaklingsins og meðferðar-
áætlunin er sett upp út frá þeim
forsendum.
Næsti meðferðarhópur mun hefj-
ast í janúar 2013. Tímasetning-
ar koma inn í byrjun janúar eftir
að skráningum er lokið. Skráning
fer fram á vef Vímulausrar æsku,
www.vimulaus.is og í síma 511
6160. Þátttökugjald er 15.000 krón-
ur á mánuði. Hægt er að nýta frí-
stundakort.
Þátttakendur og forráðamenn
eru boðaðir í forviðtöl, þar sem úr-
ræðið er kynnt og fengnar eru upp-
lýsingar um aðstæður. Starfsfólk
úrræðisins er Elísabet Lorange,
listmeðferðarfræðingur og kenn-
ari, Hrafndís Tekla Pétursdótt-
ir sálfræðingur og Sigríður Birna
Valsdóttir leiklistarmeðferðar-
fræðingur. Auk þeirra kemur fleira
fagfólk að hópastarfinu.
Meðferðarnálgunin í V.E.R.A.
felst í því að veita innsýn í þá
áhættuhegðun sem einstaklingur-
inn glímir við og þannig er reynt
að koma í veg fyrir og/eða draga úr
vanlíðan og vanda einstaklingsins
og fjölskyldu viðkomandi. Áhættu-
hegðun getur haft skaðlegar af-
leiðingar í för með sér og er mark-
miðið að grípa inn í þetta ferli og
veita þann stuðning, aðhald og ráð-
gjöf sem einstaklingurinn þarf á
að halda. Til að koma í veg fyrir
frekari skaða og bæta líðan ein-
staklingsins er mikilvægt að hlúa
einnig að fjölskyldu hans. Þar af
leiðandi er mikilvægt að einstak-
lingurinn fái að tjá sig í öruggu og
styðjandi umhverfi, bæði einn og
við aðra sem að honum koma. Með
aukinni getu einstaklingsins og
fjölskyldunnar til að taka ábyrgð á
þörfum sínum og tilfinningum með
virkri tjáningu og hlustun, styrkj-
ast tengslin og við þær aðstæður
fær einstaklingurinn tækifæri til
að þroskast á heilbrigðan hátt.
SJÁLFSTYRKINGARNÁMSKEIÐ FYRIR
FORELDRA HLUTI AF MEÐFERÐINNI
V.E.R.A.
Foreldrar þátttakenda í V.E.R.A.
taka þátt í sex vikna foreldranám-
skeiði. Meginmarkmið námskeiðs-
ins er að styrkja sjálfsmynd for-
eldra og efla vitund þeirra í hlut-
verkinu, sem og færni til þess að
skapa og viðhalda heilbrigðum og
nánum tengslum við börnin sín.
Þannig er verið að koma í veg fyrir
og einnig grípa inn í óæskilega
hegðun, meðal annars áhættuhegð-
un og samskiptaerfiðleika milli for-
eldra og barna og þar með draga
úr og/eða koma veg fyrir vanda í
fjölskyldunni og nánasta umhverfi
hennar.
Námskeiðið fer fram einu sinni í
á miðvikudögum einu sinni í viku,
tvær klukkustundir í senn (alls 12
klukkustundir).
Langtímaúrræði
UMSAGNIR